Reglur > Keppnisgreinarreglur fyrir hermikappakstur 2023

Útgáfudagur 13.11.2022
Bera saman við aðra útgáfu
GREIN 1 ALMENNT
GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1

Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í hermikappakstri.

1.1.1.a

Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.

1.1.2

Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3

Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.

GREIN 2 SKRÁNING
GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN
2.1.1

Keppendum er heimilt að skrá sig einu sinni í hverja keppni.

2.1.2

Skráður ökumaður verður sjálfur að stýra sínum bíl í keppni.

2.1.3

Fyrstu 40 keppendur til að skrá sig og greiða á síðu AKÍS fá þátttökurétt.

2.1.4

Sá má keppa sem verður að minnsta kosti 15 ára á árinu sem keppnin er haldin.

GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 3.1 ALMENNT
3.1.1

Ræst er á ferð með fylgdarbíl og stillingum iRacing.

3.1.2

Komi upp sú staða að iRacing þjónn krefjist ræsingar frá stoppi mun keppnistjórn taka yfir ræsingu. keyrður verður upphitunarhringur með öryggisbíl eknum af keppnisstjórn og svo ræst á ferð samkvæmt tilmælum Keppnisstjórnar í gegnum hljóðrás iRacing.

3.1.2.a

Þegar ræst er án fylgdarbíls iRacing er keppendum ætlað að aka upphitunarhring á eftir öryggisbíl keppnisstjórnar að ráslínu í réttri röð og ekki hraðar en 120kmh, öryggisbíll mun aka inní pit að loknum upphitunarhring og ræsing fer fram þegar fremsti bíll fer yfir Ráslínu Eða þegar keppnisstjórn kallar “ræs ræs ræs” á hljóðrás iRacing.

3.1.2.b

Sé þörf á að tala við keppendur gerir keppnisstjóri það í gegnum hljóðrásir iRacing ef tæknilegar ástæður innan iRacing forritsins krefjast ekki endurræsingar.

3.1.3

Skylt er að virkja hljóðrásir í iRacing svo keppnisstjóri geti gefið fyrirmæli ef þörf er á.

3.1.4

Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum.

3.1.4.a

Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að marktækur hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé ekki við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu.

3.1.4.b

Til að taka af allan vafa, nemi framendi ökutækis sem reynir að komast framúr við afturdekk fremra ökutækisins telst það vera marktækur hluti.

3.1.4.c

Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur.

3.1.5

Ætli ökumenn sér að nota EXIT VEHICLE möguleikan í æfingu eða tímatöku, verða þeir að gera það utan brautar eða augljósrar aksturslínu.

3.1.6

Æfing á ræsingu eða önnur svipuð aksturshegðun er einungis leyfð á meðan æfingu stendur, og má aðeins framkvæma á lengsta beina kafla og úr aksturslínu.

3.1.7

Í lok aksturs ber ökumönnum að forðast árekstra og aka sem fyrst inn í pit.

3.1.7.a

Fagnaðar spól er leyfilegt en velja skal stað sem er ekki á miðri braut eða gæti valdið árekstri.

3.1.8

Verði meiriháttar árekstur við upphaf keppni hefur keppnisstjóri möguleika á að kalla út öryggisbíl til að hægja niður keppni þar til ökumenn sem atvik hafði áhrif á hafa látið laga skemmdir bílanna og eru komnir aftast í röðina.

3.1.9

Sé öryggisbíll sendur út fá þeir ökumenn sem lentu í atviki að fara aftast í röðina sem er á eftir öryggisbíl í þeirri röð sem þeir koma úr pittinum. Öryggisbíll er í sumum tilfellum ekinn af keppnisstjórn og mun þá Keppnistjórn nota Hljóðkerfi iRacing til að gefa skipanir

3.1.9.a

Þegar ökumenn koma úr pitti undir þessum kringumstæðum er þeim gert kleift að taka fram úr öryggisbíl til þess að ná stöðu sinni aftast í röð. Svokallað “WAVEBY” er notað.

3.1.9.b

Ökumönnum ber að fylgjast vel með skipunum sem iRacing gefur á meðan öryggisbíll er í braut.

GREIN 3.2 KEPPNISUMHVERFI
3.2.1

Keppt er í iRacing tölvuleiknum.

3.2.2

Keppendur þurfa að vera í áskrift hjá iRacing og eiga þær brautir og bíl sem notuð eru í mótaröðinni.

3.2.3

Keppendur hafa kost á að keppa með eigin búnaði, láns eða leigubúnaði, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

3.2.3.a

Keppendum er heimilt að vera staðsettir hvar sem þeim hentar.

3.2.3.b

Keppendur verða nota stýri sem stjórntæki eða álíka búnað, ekki er heimilt að nota stýripinna.

3.2.4

Keppendur verða að nota iRacing aðgang með því nafni sem þeir eru skráðir undir til keppni.

3.2.5

Keppendur verða vera skráðir í GT Akademíu deildina/League(Deild #4302) í iRacing þar sem hún er notuð til að halda utan um Íslandsmótið innan iRacing hugbúnaðarins.

3.2.6

Aðstoðar tækni ekki leyfð. Td, sjálfvirk kúpling, sjálfvirk gírskipting.

3.2.6.a

“Anti-stall” og “Autostart” verður leyft, svo keppendur þurfa ekki að ræsa bílana sína sjálfir.

3.2.7

Skemmdir á bílum eru hafðar á raunverulegustu stillingu.

3.2.8

Ætli ökumenn að virkja hraða takmarkara (e. pit limiter) þurfa þeir að gera það sjálfir áður en ekið er inn á pittsvæðið.

GREIN 3.3 TÆKNILEGT UMHVERFI
3.3.1

iRacing forritið mun að mestu leyti sjá um tæknilega keppnisstjórn og úthlutar refsingum fyrir útafakstur, þjófstart, árekstra og svo framvegis sem teljast gildir staðreyndadómar.

3.3.2

Komi upp sú staða í keppni að allir ökumenn missi samband við netþjón iRacing er keppnistjóra heimilt að ljúka keppni ef 67% hennar hafa þegar verið eknir. Að öðrum kosti skal endurræsa keppnina með 15 mínútna keppnistíma eftir á klukkunni.

GREIN 3.4 REFSINGAR
3.4.1

Atvikastig/Incident points (sem iRacing forritið dæmir á ökumenn):

3.4.1.a

Létt snerting við annan bílstjóra (e. Light contact with another driver) x 0

3.4.1.b

Dekk útaf braut (e. Wheels off the racing surface) x1

3.4.1.c

Missa stjórn (e. Loss of control) x2

3.4.1.d

Snerting við hluti í braut (e. Contact with other object) x2

3.4.1.e

Mikil snerting við annan bílstjóra (e. Heavy contact with another driver) x4

3.4.2

Þegar ökumaður hefur fengið 25 atvikastig eða fleiri ber honum að stoppa í pitti.

3.4.2.a

Fyrir hver auka 10 stig eftir það er annað stopp í pitti.

3.4.3

Fyrir of hraðan akstur ökutækis inn í pittsvæði eða pittakrein má vísa keppanda úr keppni

3.4.4

Ströngustu reglur og viðurlög leiksins gilda í keppni og er refsingum beitt innan leiksins gerist ökumaður brotlegur (styttir sér leið, ekur utan vegar, ekur of hratt in á pittsvæði og svo framvegis).

GREIN 3.5 ÆFING/UPPHITUN
3.5.1

Skráðir keppendur skulu skrá sig inn á keppnisþjón(server) á keppnisdegi í gegnum iRacing forritið áður en iRacing æfingarlotu(practice) lýkur svo þeir geti fengið aðgang að tímatökum. Ekki þarf að opna leikinn sjálfan, en að lágmarki þarf að ýta á “register” takkann áður en æfingalotu lýkur.

3.5.1.a

Keppnisþjón er að finna í GT Akademíu Deildinni í iRacingUI.

3.5.2.b

Liðsstjóri eða aðstoðarmaður keppenda skal skrá sig inn með “Watch” takkanum.

3.5.2.c

Aðeins einn aðstoðarmaður eða liðstjóri má tengjast keppnisþjón.

3.5.3

Keppendafundur verður haldinn þegar 20 mínútur eru eftir af þessari æfingu/upphitun.

GREIN 3.6 TÍMATAKA FYRIR RÁSPÓL
3.6.1

Að loknum keppendafundi klárast æfing á keppnisþjóni og þá hefst Tímataka.

3.6.2

Tímataka fyrir ráspól er opin í 30 mínútur og eru allir ökumenn saman á brautinni meðan á henni stendur.

3.6.3

Ökumaður sem er á úthring verður að víkja fyrir umferð.

3.6.3.a

Óheimilt er að tefja fyrir bíl á hröðum hring og ber ökumanni að víkja úr aksturslínu til að hleypa bíl á hröðum hring framúr. (“Ökumaður á hröðum hring” er ökumaður sem er að aka hraðar en þú þrátt fyrir að þú sért búinn að ljúka þínum úthring.)

3.6.3.b

Ef hraðari bíll nær keppanda þarf sá keppandi að víkja fyrir hraðari bíl.

GREIN 3.7 KEPPNI
3.7.1

Að lokinni tímatöku fyrir ráspól hefst keppnislota.

3.7.1.a

Raðað er upp í rásröð eftir niðurstöðum tímatöku, í réttri röð.

3.7.2

keppnislota er 60 mínútur.

3.7.3

Gefin eru stig samkvæmt stigatöflu til Íslandsmeistara.

GREIN 6 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA
6.1

keppandi sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr 5 efstu sætum hvers keppanda í keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.

6.2

Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu:

  1. sæti : 25 stig
  2. sæti : 18 stig
  3. sæti : 15 stig
  4. sæti : 12 stig
  5. sæti : 10 stig
  6. sæti : 8 stig
  7. sæti : 6 stig
  8. sæti : 4 stig
  9. sæti : 2 stig
  10. sæti : 1 stig
6.3

Að auki fást tvö stig fyrir hraðasta hring hverrar keppni.

6.4

Að auki fær “Cleanest Driver” kurteisasti ökumaður keppninnar eitt auka stig.

6.4.1

séu tveir eða fleiri ökumenn með fæstu atvikastigin, fá allir þeir allir eitt stig.

6.5

Að auki fá allir ökumenn með tvö eða færri atvikstig eftir að hafa lokið keppni, eitt auka stig

6.6

Séu tveir eða fleiri með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem oftar hefur sigrað keppnir á tímabilinu.

6.6.a

Sé staða enn jöfn skal telja fjölda 2. sætis og svo koll af kolli.

GREIN 7 KEPPNISFLOKKAR
GREIN 7.1 GT3
7.1.1

Allir ökumenn aka á bílum í GT3 flokk með stillingum úthlutuðum af keppnishaldara (e. fixed setup).

7.1.2

Listi leyfilegra bíla í GT3 flokki: McLaren MP4-12C GT3 Audi R8 LMS GT3 BMW M4 GT3 Lamborghini Huracán GT3 EVO Porsche 911 GT3 R Ferrari 488 GT3 Evo 2020 Mercedes-AMG GT3 2020

7.1.3

Keppnishaldara er frjálst að úthluta stillingum þegar honum hentar en þó ekki seinna en 4 klukkustundum fyrir keppni.

7.1.4

Setup/stillingar frá iRacing verða notaðar og einungis verður átt við bensínmagn.