Reglur > Keppnisgreinarreglur fyrir tímaat 2023

Útgáfudagur 19.12.2022
Bera saman við aðra útgáfu
GREIN 1 ALMENNT
GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1

Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í tímaati.

1.1.1.a

Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.

1.1.2

Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinarreglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3

Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.

GREIN 2 SKRÁNING
GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN
2.1.1

Keppendum er heimilt að skrá sig mörgum sinnum í hvern flokk í hverri keppni.

2.1.2

Hver ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í hverjum flokki.

2.1.3

Ökumaður skal hafa mætt á að lágmarki eina æfingu á þeirri braut sem keppnin fer fram á.

2.1.3.a

Keppnisstjóra er heimilt að falla frá þessari reglu telji hann ökumann hafa reynslu sem gefur tilefni til þess.

2.1.4

Í unglingaflokkum (flokkar með "junior" í heiti sínu) má sá keppa sem verður að minnsta kosti 15 ára á árinu.

2.1.4.a

Við 17 ára aldur er ökumaður ekki lengur gjaldgengur í unglingaflokk nema að hann verði 17 ára þegar Íslandsmót er hafið. Hefur ökumaður þá undanþágu til að klára Íslandsmót í unglingaflokki.

2.1.4.b

Í sérreglum keppni er heimilt að leyfa þeim sem orðnir eru 17 ára á árinu að aka í unglingaflokki hafi þeir ekið í honum að lágmarki einu sinni í keppni í Íslandsmóti á yfirstandandi keppnistímabili.

GREIN 2.2 ÖKUTÆKI
2.2.1

Hvert ökutæki má aðeins nota í einum flokk í hverri keppni.

2.2.2

Ekki er heimilt að skipta út ökutæki í keppni eftir að skoðun lýkur.

GREIN 3 KEPPNI
GREIN 3.1 ALMENNT
3.1.1

Á meðan á keppni stendur má einungis ökumaður vera í ökutækinu.

3.1.2

Ræsing á ferð er framkvæmd án fylgdarbíls frá ráspól og er ökutækjum ætlað að aka á eigin vegum að ráslínu.

3.1.3

Keppandi, ökumaður eða liðstjóri skal alltaf vera við ökutæki meðan á keppni stendur.

3.1.4

Keppandi má hafa tvo aðstoðarmenn inni á pittsvæði og ber á þeim fulla ábyrgð.

3.1.4.a

Keppnishaldara er heimilt að leyfa fleiri aðstoðarmenn á þeim forsendum sem hann ákveður.

3.1.5

Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum.

3.1.5.a

Nánar má kveða á um aksturshegðun í sérreglum eða með tilkynningum á upplýsingatöflu.

GREIN 3.2 BRAUTIN
3.2.1

Brautin skal vera með hægri og vinstri beygjum og ekki meiri hæðarmun en svo að hún henti til brautaraksturs í þeim flokkum sem keppt er í.

3.2.2

Brautarlengd skal vera á milli 0,5 km og 10 km. Lágmarks breidd brautar er 6 metrar.

GREIN 3.3 PITTURINN
3.3.1

Afmarka skal svæði fyrir pitt þar sem ökutæki skulu vera á milli þess sem þau keppa.

3.3.2

Pittsvæðið skal vera vel merkt og staðsett þannig að frá því sé auðvelt að komast á og af brautinni.

3.3.3

Inn- og útkeyrsla af pittsvæði skal merkt með skýrum hætti.

3.3.4

Pittur skal vera það stór að þar sé að minnsta kosti pláss fyrir öll keppnistæki, alla keppendur, ökumenn, þjónustuliða og brautarstarfsmenn sem þar gegna skyldum.

3.3.5

Innan pittsins skal afmarka einn reit fyrir hvert ökutæki og þjónustulið þess sem það hefur til afnota.

3.3.5.a

Ökumaður skal aka beint í og úr sínu afmarkaða svæði í pittinum og forðast að koma í svæði annarra ökutækja en síns eigin.

3.3.6

Spól er stranglega bannað á pittsvæði.

3.3.7

Á pittsvæði er 15 km/klst hámarkshraði, nema annað sé tekið fram í íþróttareglum eða tilkynningu á upplýsingatöflu, og skal aka þar með fyllstu gát.

GREIN 3.4 SKOÐUN
3.4.1

Ökumaður skal vera við ökutæki sitt meðan skoðun fer fram.

3.4.1.a

Við skoðun skal ökumaður vera í keppnisgalla og með allan persónulegan öryggisbúnað með sér.

GREIN 4 KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 4.1 ALMENNT
4.1.1

Ræsir skal ræsa keppendur í braut með hæfilegu millibili.

4.1.1.a

Lengd brautar ræður hve margir bílar eru á brautinni samtímis.

4.1.1.b

Þegar fleiri ökutæki eru í keppni en komast á brautina samtímis skal skipt í eins marga riðla og þörf krefur.

4.1.2

Keppnisfyrirkomulag skal vera með þeim hætti að hver ökumaður fái að lágmarki eina æfingarlotu og eina keppnislotu.

4.1.3

Besti tími ökumanns úr keppnislotum ræður úrslitum í hverjum flokki.

4.1.4

Merkja má svæði á brautinni þar sem framúrakstur er ekki leyfður ef aðstæður krefjast þess að mati keppnisstjóra og öryggisfulltrúa.

4.1.5

Séu keilur notaðar til afmörkunar á keppnisbraut og ökutækið snertir keilu skal ógilda þann hring.

4.1.6

Sú regla skal gilda að ökumenn hægari ökutækja skulu leitast við að hleypa hraðari ökutækjum framúr á öruggan hátt.

4.1.6.a

Keppnishaldari notar blá flögg til að minna hægari ökumenn á að víkja til hliðar við fyrsta tækifæri þar sem framúrakstur er öruggur.

4.1.6.b

Heimilt er að refsa keppanda með 10 sekúndna viðbót við besta brautartíma hans séu reglur um framúrakstur ekki virtar. Refsingin er tekin út í þeirri umferð sem brotið er framið í.

4.1.7

Ákveði keppnisstjóri að brautin sé það blaut að hætta geti hlotist af notkun semislikka eða slikka getur hann krafist þess að öll ökutæki noti regndekk.

4.1.7.a

Regndekk eru dekk með að minnsta kosti 3 mm djúpum raufum sem veita vatni að ytri brúnum dekksins, líkt og venjuleg götudekk gera.

4.1.8

Keppendur fá stig fyrir sæti í lokaúrslitum:

  1. sæti : 25 stig
  2. sæti : 18 stig
  3. sæti : 15 stig
  4. sæti : 12 stig
  5. sæti : 10 stig
  6. sæti : 8 stig
  7. sæti : 6 stig
  8. sæti : 4 stig
  9. sæti : 2 stig
  10. sæti : 1 stig
GREIN 4.2 ÁKVÖRÐUN ÍSLANDSMEISTARA
4.2.1

keppandi sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.

4.2.2

Þegar tveir eða fleiri eru með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem var ofar í þeirra síðustu innbyrðis keppni.

GREIN 5 ÖRYGGISMÁL
GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNA
5.1.1

Ökumenn skulu vera í að lágmarki tveggja laga eldheldum heilgalla með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000), SFI (SFI 3.2A/5 eða hærra).

5.1.1.a

Undanskilinn er flokkur götubíla þar sem nægir að vera í alfatnaði, síðerma og síðbuxna úr náttúrulegum efnum, til dæmis ull, bómull eða öðru slíku.

5.1.1.b

Ekki má prenta auglýsingar beint á heilgallann eða sauma í hann nema af framleiðanda hans.

5.1.2

Fyrir öll hlífðarföt gildir að þau skulu formuð og sniðin þannig að þau skýli vel öllum líkamanum þar á meðal hnakka, ristum og úlnliðum.

5.1.3

Undirföt skulu vera úr bómull eða ull.

5.1.4

Myndavélar eða annar búnaður festur á hjálm eða ökumann á annan hátt er bannaður.

5.1.5

HANS búnaður er skylda í ökutækjum sem búin eru fimm eða sex punkta öryggisbeltum og skal hann vera með viðurkenningu frá FIA (FIA 8858) eða SFI (SFI 3.3).

5.1.6

Hjálmar skulu uppfylla staðla samkvæmt viðauka L, kafla III, grein 1 í Reglubók FIA, um útbúnað ökumanns.

GREIN 5.2 BRAUTARVERÐIR
5.2.1

Brautarverðir skulu staðsettir við alla brautina þannig að hver brautarvörður sjái til næsta brautarvarðar á báðar hendur sér öllum stundum.

5.2.2

Hver brautarvörður skal hafa hjá sér:

5.2.2.a

slökkvitæki nema þau séu staðsett í sérstökum öryggisbíl(um);

5.2.2.b

eitt af hverju flaggi sem reglur kveða á um að geti verið notað.

5.2.3

Brautarvörður skal nota flögg eins og kveðið er á um í viðauka H, grein 2, lið 2.5 í Reglubók FIA.

GREIN 5.3 ÖRYGGISBÚNAÐUR VIÐ BRAUTINA
5.3.1

Slökkvitæki skulu staðsett við allar flaggarastöðvar eða í öryggisbifreið(um) við brautina þannig að tryggt sé að viðbragð við eldi sé skjótt.

GREIN 5.4 ÖRYGGISBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.4.1

Ökutæki í Hot Wheels TURBO flokki, opnum flokki fjöldaframleiddra bíla og opnum flokki kappakstursbíla skulu uppfylla eftirfarandi atriði sem heimilt er að útfæra nánar eða takmarka enn frekar í flokkareglum eða sérreglum:

5.4.1.a

Ökutækið skal vera með öryggisbúri samkvæmt reglum FIA, viðauka J, grein 253-8.

5.4.1.b

Húddlæsing og læsing að vélarrými þarf að vera lágmark tvö splitti eða krækjur sem hægt er að opna utan frá með augljósum hætti.

5.4.1.b.i

Fjarlægja þarf eða aftengja upprunalega húddlæsingu hindri hún opnun utan frá.

5.4.1.c

Körfustólar eru skylda og skulu þeir bera vottun FIA til notkunar í kappakstri.

5.4.1.c.i

Stólafestingar verða að henta stólnum og festa hann tryggilega og mega ekki ógna öryggi ökumanns.

5.4.1.d

Öryggisbelti skulu vera samkvæmt stöðlum FIA eða SFI, með lágmark 5 punkta festingum.

5.4.1.e

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá að lágmarki 5 mm þykkt.

5.4.1.e.i

Skylda er að hafa allar aðrar rúður í ökutækinu eða lexan plast í þeirra stað (lágmark 2 mm þykkt).

5.4.1.e.ii

Heimilt er að setja FIA/SFI vottað net í stað rúðu í ökumannshurð.

5.4.1.f

Skylda er að hafa rúðuþurrkur á framrúðu ökutækisins og móðuvörn í ökumannsrými.

5.4.1.g

Baksýnisspegill eða hliðarspegill á báðum hliðum ökutækisins er skylda.

5.4.1.h

Vatnsrör að kælikerfi sem liggja í gegnum farþegarými skulu vera ósamsett. Olíuleiðslur skulu vera viðurkenndar háþrýstislöngur.

5.4.1.i

Útfærsla hjólabúnaðar, svo sem demparar, gormar, fjaðrir og klafar er frjáls, svo framarlega sem hann stenst öryggiskröfur sem almennt eru gerðar til ökutækja.

5.4.1.j

Handhemill er skylda.

5.4.1.j.i

Þegar ökutækið er óskráð skal hemlabúnaður vera tekinn út af skoðunarstöð og vottorði þar að lútandi framvísað.

5.4.1.k

Sé notaður eldsneytisgeymir annar en sá upprunalegi skal hann vera tryggilega festur, minnst 30 cm frá úthlið yfirbyggingar. Útöndun skal ná út fyrir yfirbyggingu og niður fyrir tank og hafa einstreymisloka. Þannig skal gengið frá honum að bensín leki ekki út. Bannað er að staðsetja eldsneytisgeymi í ökumannsrými.

5.4.1.l

Eldsneytisinngjöf skal útbúin með þeim hætti að ef hún aftengist færist gangur vélar sjálfkrafa í hægagang.

5.4.1.m

Eldsneytislagnir inni í ökutækinu skulu vera úr eir, stáli eða vírofnum slöngum. Öll samskeyti á eldsneytislögnum eru bönnuð í ökumannsrými.

5.4.1.n

Ekki er heimilt að loftinntak vélar sé inni í ökumannsrými.

5.4.1.o

Rafgeymir skal tryggilega festur.

5.4.1.o.i

Sé rafgeymir í farþegarými skal hann vera þurrgeymir.

5.4.1.p

Straumrofi er skylda. Hann skal vera með hnappi, snerli eða handfangi og greinilega merktur á/af (on/off).

5.4.1.p.i

Straumrofa skal staðsetja fyrir framan framrúðu eða á aftasta hluta ökutækisins.

5.4.1.p.ii

Straumrofi á að rjúfa allan straum og drepa á ökutækinu.

5.4.1.p.iii

Straumrofinn skal merktur með rauðri eldingu inn í bláum þríhyrning með hvítri brún. Merkið skal vera með að minnsta kosti 12 cm löngum hliðum.

5.4.1.q

Að minnsta kosti tvö rauð bremsuljós skulu vera staðsett á afturhluta ökutækisins og vera vel sýnileg.

5.4.1.q.i

Styrkur ljóssins skal vera 15-30 watta glópera eða 6-10 watta LED ljós.

5.4.1.r

Slökkvitæki sem hentar á föst efni og rafmagns-, gas- og olíeld eða slökkvikerfi sem viðurkennt er af FIA er skylda.

5.4.1.r.i

Slökkvitæki skal staðsett þannig að auðvelt sé fyrir ökumann að ná til þess og skal það tryggilega fest.

5.4.1.s

Allir loftpúðar skulu fjarlægðir úr ökutækinu.

5.4.2

Ökutæki í öllum flokkum skulu uppfylla eftirfarandi:

5.4.2.a

Opnir bílar, bílar með blæju eða fjarlæganlegan topp skulu hafa veltivörn sem ver ökumann.

GREIN 5.5 ÖRYGGISFULLTRÚI
5.5.1

Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

5.5.2

Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

5.5.3

Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu til AKÍS um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

5.5.4

Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild á að óhappi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.

5.5.4.a

Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 6 KEPPNISFLOKKAR
GREIN 6.1 REGLUR SEM GILDA FYRIR ALLA FLOKKA
6.1.1

Dómnefnd er heimilt, að fenginni tillögu skoðunarmanns, að færa keppendur um flokk fram að ræsingu fyrstu ferðar í tímatöku.

6.1.2

Dráttarlykkjur skulu vera framan og aftan á ökutækinu.

6.1.3

Gluggar og topplúgur skulu vera lokaðar í akstri.

6.1.4

Óheimilt er að nota nítró eða rafmagn sem aflgjafa ökutækis.

GREIN 6.2 HOT WHEELS FLOKKUR
6.2.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.2.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.2.2

Fjöldaframleiddir götubílar sem seldir hafa verið á almennum markaði með drif á einum öxli, óblásnir og slagrými allt að 1000 cm3.

6.2.3

Ökutæki skulu vera skráningarskyld með tryggingaskírteini.

6.2.3.a

Hægt að fá leyfi keppnishaldara til að keppa á óskráðu ökutæki.

6.2.4

Óheimilt er að fjarlægja ytra byrði eða veikja burðarvirki.

6.2.5

Ökutæki skulu ekki vera opnir- eða blæjubílar.

6.2.6

Dekk skulu hafa treadwear 80 eða meira og vera að hámarki 205mm breið.

6.2.6.a

Alveg slétt dekk (dekk án þvermunsturs) eða „slikkar“ eru ekki leyfðir.

6.2.7

Loftflæðibreytingar eru leyfðar.

6.2.8

Innréttingu má fjarlægja.

6.2.9

Einungis er leyfilegt að nota eldsneyti sem fæst á dælu í almennri sölu á Íslandi.

GREIN 6.3 HOT WHEELS JUNIOR FLOKKUR (UNGLINGAFLOKKUR)
6.3.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.3.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.3.2

Sömu reglur og gilda um Hot Wheels flokk nema:

6.3.2.a

slagrými vélar má vera allt að 1600 cm3.

6.3.3

Ökumenn þurfa að uppfylla skilyrði unglingaflokka sem sett eru í grein 2.1.

GREIN 6.4 HOT WHEELS SPORT FLOKKUR
6.4.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.4.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.4.2

Sömu reglur og gilda um Hot Wheels flokk nema

6.4.2.a

slagrými vélar má vera allt að 2000 cm3;

6.4.2.b

engin takmörk eru á breidd dekkja.

GREIN 6.5 HOT WHEELS TURBO FLOKKUR
6.5.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.5.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.5.2

Sömu reglur og gilda um Hot Wheels flokk nema:

6.5.2.a

slagrými vélar má vera allt að 2500 cm3;

6.5.2.b

turbo er leyfilegt;

6.5.2.c

engin takmörk eru á breidd dekkja.

GREIN 6.6 ÓBLÁSNIR RALLYBÍLAR FLOKKUR
6.6.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.6.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.6.2

Ökutæki sem eru gjaldgeng í AB varahlutaflokkinn í rally. Þau skulu standast allar reglur AKÍS í þeim flokki rallyreglnanna.

GREIN 6.7 GÖTUBÍLAFLOKKUR
6.7.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.7.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.7.2

Fjöldaframleiddir götubílar sem seldir hafa verið á almennum markaði.

6.7.3

Hámarksafl vélar er 249 hestöfl (samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda sem koma fram í skráningarskírteini).

6.7.4

Ökutæki skulu vera skráningarskyld með tryggingaskírteini.

6.7.4.a

Hægt að fá leyfi keppnishaldara til að keppa á óskráðu ökutæki.

6.7.5

Dekk skulu hafa treadwear 300 eða meira og vera að hámarki 235mm breið.

6.7.5.a

Alveg slétt dekk (dekk án þvermunsturs) eða „slikkar“ eru ekki leyfð.

6.7.6

Allar breytingar á yfirbyggingu eru bannaðar.

6.7.7

Vél skal vera af upprunalegri gerð en þó má skipta út vél frá sama framleiðanda ef vélin hefur verið í boði í einhverri útgáfu af ökutækinu.

6.7.8

Heimilt er að gera breytingar með búnaði frá framleiðanda sem bauðst fyrir sama ökutæki þegar það var framleitt.

6.7.9

Innrétting skal öll vera í ökutækinu.

6.7.9.a

Þó má skipta út framstólum, beltum og stýri en ekki létta ökutækið að öðru leyti.

6.7.9.b

Heimilt er að fjarlægja hluta innréttingar til að koma fyrir öryggisbúri eða það sem þarf fyrir aftan B póst til að koma fyrir veltiboga eða stöng fyrir sætisbelti.

6.7.10

Einungis er leyfilegt að nota eldsneyti sem fæst á dælu í almennri sölu á Íslandi.

GREIN 6.8 GÖTUBÍLAR RWD FLOKKUR
6.8.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.8.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.8.2

Sömu reglur og gilda um götubílaflokk nema:

6.8.2.a

lágmarksafl vélar er 250 hestöfl (samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda sem koma fram í skráningarskírteini);

6.8.2.b

drif má aðeins vera á afturási;

6.8.2.c

lágmarks þyngd er 1450 kg;

6.8.2.d

engin takmörk eru á breidd dekkja og mega þau vera treadware 180 eða meira.

GREIN 6.9 GÖTUBÍLAR R-SPORT FLOKKUR
6.9.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.9.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.9.2

Sömu reglur og gilda um götubílaflokk nema:

6.9.2.a

lágmarksafl vélar er 250 hestöfl (samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda sem koma fram í skráningarskírteini);

6.9.2.b

engin takmörk eru á breidd dekkja og mega þau vera treadware 180 eða meira.

GREIN 6.10 BREYTTIR GÖTUBÍLAR FLOKKUR
6.10.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.10.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.10.2

Fjöldaframleiddir götubílar sem seldir hafa verið á almennum markaði.

6.10.3

Engar takmarkanir á mótor, drifbúnaði og yfirbyggingu.

6.10.4

Burðarvirki skal vera óbreytt, en má þó styrkja það að vild.

6.10.5

Ökutæki skulu vera skráningarskyld með tryggingaskírteini.

6.10.5.a

Hægt að fá leyfi keppnishaldara til að keppa á óskráðu ökutæki.

6.10.6

Dekk skulu hafa treadwear 80 eða meira.

6.10.6.a

Alveg slétt dekk (dekk án þvermunsturs) eða „slikkar“ eru ekki leyfðir.

6.10.7

Allar breytingar á yfirbyggingu eru leyfðar.

6.10.8

Skipta má út framstólum, beltum og stýri.

6.10.8.a

Heimilt er að fjarlægja innréttingu ef sett er öryggisbúr í ökutækið eða það sem þarf fyrir aftan B póst til að koma fyrir veltiboga eða stöng fyrir sætisbelti.

6.10.9

Einungis er leyfilegt að nota eldsneyti sem fæst á dælu í almennri sölu á Íslandi.

GREIN 6.11 OPINN FLOKKUR FJÖLDAFRAMLEIDDRA BÍLA
6.11.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.11.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.11.2

Fjöldaframleiddir götubílar sem seldir hafa verið á almennum markaði.

6.11.3

Allt breytingar leyfðar.

GREIN 6.12 OPINN FLOKKUR KAPPAKSTURSBÍLA
6.12.1

Allar breytingar eru leyfðar á bremsum, fjöðrunarkerfi, loftinntaki og pústi.

6.12.1.a

Heimilt er að bæta driflæsingu í ökutæki sem ekki hefur slíkan búnað fyrir.

6.12.2

Ökutæki sem ekki falla inn í aðra flokka. Má þar nefna sérsmíða bíla, og kappakstursbíla.

6.12.3

Ökutæki sem eru ekki á númerum skulu vera með keppnistryggingar og framvísa vottorði frá skoðunarstöð fyrir hemla- og stýrisbúnað.

GREIN 6.13 STANDARD 1000 FLOKKUR
6.13.1

Fjöldaframleiddir boddy bílar með drif á einum öxli og óblásna vél með slagrými undir 1050 rúmsentimetrum.

6.13.1.a

Slagrými uppgefið af framleiðanda gildir.

6.13.2

Lágmarksþyngd á ráslínu með ökumanni er 900 kílógrömm.

6.13.3

Hámarksþyngd 1300 kílógrömm.

6.13.4

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.13.4.a

Brettin skulu hylja allan bana hjólbarðanna.

6.13.5

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki.

6.13.6

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki nema burðarvirki ökutækis sé þannig hannað að þær séu hluti af því.

6.13.6.a

Þegar þörf er á styrkingu fyrir framan framstykki má einungis nota ál prófíl í stærðinni 60 mm x 30 mm með 3 mm efnisþykkt.

6.13.6.a.i

Prófíl efnið má skrúfa í grindarbita og skal prófíllinn vera lárétt á milli þeirra og má ekki fara út fyrir hliðar á grindarbita.

6.13.7

Hvalbaksbreytingar eru bannaðar.

6.13.7.a

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis skal vera þéttur.

6.13.8

Blæjubílar og opnir bílar eru bannaðir.

6.13.9

Óheimilt er að hafa varadekk í ökutækinu.

6.13.10

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.13.11

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri stífri klæðningu.

6.13.12

Þegar upprunaleg mælaborðshilla er fjarlægð verður að hylja svæðið frá framrúðu niður að stýristúbu með stífri klæðningu með engum hvössum brúnum sem ekki getur valdið hættu komi til áreksturs.

6.13.13

Hjólkoppa og útstæða hluti skal fjarlægja.

6.13.14

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.13.15

Vatnsrör og kælikerfi skulu vera óbreytt.

6.13.16

Hjólabúnaður og fjöðrun skal vera óbreytt.

6.13.17

Hemlar skulu vera óbreyttir en þó er heimilt að skipta um bremsudiska og bremsuklossa.

6.13.17.a

Hemlarör og slöngur skulu vera heil og óskemmd.

6.13.18

Eldsneyti skal vera fáanlegt á almennri bensínstöð á Íslandi.

6.13.18.a

Íblöndunarefni eru bönnuð í eldsneyti.

6.13.18.b

Nitro er bannað.

6.13.18.c

Rafmagn er ekki leyfilegt sem aflgjafi ökutækis.

6.13.19

Eldsneytiskerfi skal vera óbreytt.

6.13.19.a

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar.

6.13.20

Rafgeymir og staðsetning hans skal vera óbreytt.

6.13.21

Allar breytingar á vél eru bannaðar.

6.13.21.a

Breytingar á forritun vélartölvu eða útskipting hennar er bönnuð.

6.13.22

Breyting á staðsetningu vélar er bönnuð.

6.13.23

Upprunaleg gerð pústgreinar skal vera í ökutækinu.

6.13.24

Útblástursrör skal tryggja að útblástursgufur geti ekki borist í ökumannsrými.

6.13.25

Gírkassi skal vera af upprunalegri gerð.

6.13.26

Allar driflæsingar eru bannaðar.

6.13.27

Eingöngu radial hjólbarðar eru leyfðir.

6.13.27.a

Hámarks breidd hjólbarða er 205 millimetrar.

6.13.27.b

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.13.27.c

Allur skurður á dekkjum er bannaður.

6.13.27.d

Slikkar og hrágúmmí/R-compound/soft-compound dekk eru bönnuð.

6.13.27.e

Lágmarks treadware dekkja er 300.

6.13.27.e.i

Gefi framleiðandi ekki upp treadware ákveður skoðunarmaður hvort dekk teljast gjaldgeng.

GREIN 6.14 FORMULA 1000 KAPPAKSTURSBÍLAR
6.14.1

Fjöldaframleiddir boddy bílar með drif á einum öxli og óblásna vél með slagrými undir 1050 rúmsentimetrum.

6.14.1.a

Slagrými uppgefið af framleiðanda gildir.

6.14.2

Lágmarksþyngd á ráslínu með ökumanni er 900 kílógrömm.

6.14.3

Hámarksþyngd 1300 kílógrömm.

6.14.4

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.14.4.a

Brettin skulu hylja allan bana hjólbarðanna að ofanverðu.

6.14.4.b

Heimilt er að rúlla brettakanta upp að því marki að engar hvassar brúnir myndist.

6.14.5

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki.

6.14.6

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki nema burðarvirki ökutækis sé þannig hannað að þær séu hluti af því.

6.14.6.a

Þegar þörf er á styrkingu fyrir framan framstykki má einungis nota ál prófíl í stærðinni 60 mm x 30 mm með 3 mm efnisþykkt.

6.14.6.a.i

Prófíl efnið má skrúfa í grindarbita og skal prófíllinn vera lárétt á milli þeirra og má ekki fara út fyrir hliðar á grindarbita.

6.14.7

Hvalbaksbreytingar eru bannaðar.

6.14.7.a

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis skal vera þéttur.

6.14.8

Blæjubílar og opnir bílar eru bannaðir.

6.14.9

Óheimilt er að hafa varadekk í ökutækinu.

6.14.10

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.14.11

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri stífri klæðningu.

6.14.12

Þegar upprunaleg mælaborðshilla er fjarlægð verður að hylja svæðið frá framrúðu niður að stýristúbu með stífri klæðningu með engum hvössum brúnum sem ekki getur valdið hættu komi til áreksturs.

6.14.13

Hjólkoppa og útstæða hluti skal fjarlægja.

6.14.14

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.14.15

Vatnsrör og kælikerfi skulu vera óbreytt.

6.14.16

Hemlarör og slöngur skulu vera heil og óskemmd.

6.14.17

Eldsneyti skal vera fáanlegt á almennri bensínstöð á Íslandi.

6.14.17.a

Íblöndunarefni eru bönnuð í eldsneyti.

6.14.17.b

Nitro er bannað.

6.14.17.c

Rafmagn er ekki leyfilegt sem aflgjafi ökutækis.

6.14.18

Eldsneytiskerfi skal vera óbreytt.

6.14.18.a

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar.

6.14.19

Rafgeymir og staðsetning hans skal vera óbreytt.

6.14.20

Allar breytingar á vél eru bannaðar.

6.14.20.a

Breytingar á forritun vélartölvu eða útskipting hennar er heimil.

6.14.21

Breyting á staðsetningu vélar er bönnuð.

6.14.22

Upprunaleg gerð pústgreinar skal vera í ökutækinu.

6.14.23

Útblástursrör skal tryggja að útblástursgufur geti ekki borist í ökumannsrými.

6.14.24

Gírkassi skal vera af upprunalegri gerð.

6.14.25

Allar driflæsingar eru bannaðar.

6.14.26

Eingöngu radial hjólbarðar eru leyfðir.

6.14.26.a

Hámarks breidd hjólbarða er 205 millimetrar.

6.14.26.b

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.14.26.c

Allur skurður á dekkjum er bannaður.

6.14.26.d

Slikkar og hrágúmmí/R-compound/soft-compound dekk eru bönnuð.

6.14.26.e

Lágmarks treadware dekkja er 300.

6.14.26.e.i

Gefi framleiðandi ekki upp treadware ákveður skoðunarmaður hvort dekk teljast gjaldgeng.