Reglur > Keppnisgreinarreglur fyrir rallycross 2023

Útgáfudagur 22.12.2022
Bera saman við aðra útgáfu
GREIN 1 ALMENNT

Rallycross er hraðakeppni fyrir ökutæki á lokaðri braut.

GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1

Reglur þessar gilda fyrir allar rallycross keppnir.

1.1.1.a

Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.

1.1.2

Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code, ISC), þessum keppnisgreinarreglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3

Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.

GREIN 2 SKRÁNING
GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN
2.1.1

Keppendum (keppnisliði) er heimilt að skrá sig mörgum sinnum í hvern flokk í hverri keppni.

2.1.2

Ekki er heimilt að tveir eða fleiri ökumenn keppi á sama ökutæki í hverri keppni.

2.1.2.a

Ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í hverjum flokki.

2.1.3

Ökumaður skal hafa mætt á að lágmarki eina æfingu á þeirri braut sem keppnin fer fram á.

2.1.3.a

Keppnisstjóra, með samþykkt dómnefndar, er heimilt að falla frá þessari reglu telji hann ökumann hafa reynslu sem gefur tilefni til þess.

2.1.4

Í unglingaflokki má sá keppa sem verður að minnsta kosti 15 ára á árinu þar til sá verður 17 ára á árinu.

GREIN 2.2 ÖKUTÆKI
2.2.1

Ökutæki má aðeins nota í einum flokk í hverri keppni.

2.2.2

Ekki er heimilt að skipta út ökutæki í keppni eftir að skoðun lýkur.

2.2.3

Ökutæki verður að uppfylla allar kröfur þess flokks sem það er notað í.

GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 3.1 BRAUTIN

Sjá reglur um Gerð rallycrossbrauta á Íslandi á vef AKÍS, www.akis.is.

GREIN 3.2 KEPPNIN
3.2.1

Keppni samanstendur af valkvæmri forkeppni, tímatöku, þremur umferðum og úrslitum.

3.2.2

Á meðan á keppni stendur má einungis ökumaður vera í ökutækinu.

3.2.3

Keppandi, ökumaður eða liðstjóri skal alltaf vera við ökutæki meðan keppni fer fram.

3.2.4

Ökumaður má hafa tvo aðstoðarmenn/þjónustuliða inni á pittsvæði og ber á þeim fulla ábyrgð.

3.2.4.a

Keppnishaldara er heimilt að leyfa fleiri aðstoðarmenn á þeim forsendum sem hann ákveður.

3.2.4.b

Keppnishaldara er heimilt að setja sérstök takmörk á fjölda aðstoðarmanna með sérreglum ef ytri aðstæður krefjast þess, að fengnu samþykki keppnisráðs í rallycrossi.

3.2.5

Á pittsvæði er hámarkshraði 5 km/klst og ökumaður skal aka þar með fyllstu gát.

3.2.6

Hjólbarðahitun og spól er stranglega bannað á pittsvæði.

3.2.7

Um hegðun ökumanna í brautarakstri sjá Reglubók FIA, HEGÐUN Í MALARHRINGAKSTRI - Viðauki L-Kafli V (e.CHAPTER V - CODE OF DRIVING CONDUCT ON OFFROAD CIRCUITS í appendix L).

3.2.7.a

Ekki má aka aftan á annað ökutæki.

3.2.7.b

Aftanákeyrsla miðast við miðju afturhjóls.

3.2.8

Þegar stöðva þarf keppni vegna:

3.2.8.a

hættuástands eða þjófstarts er það gert með rauðu flaggi á öllum flaggpóstum og við marklínu;

3.2.8.a.i

skulu ökumenn hætta keppni og aka rólega að ráslínu eða fylgja leiðbeiningum starfsmanna;

3.2.8.b

annarra óviðráðanlegra ástæðna, áður en forystuökutæki er komið yfir marklínu í einstökum riðlum, skal endurræsa með upprunalegri uppröðun riðilsins.

GREIN 3.3 RÆSING
3.3.1

Ræst er úr kyrrstöðu án fylgdarbíls frá ráslínu.

3.3.1.a

Í tímatökum og forkeppni er ræst á ferð.

3.3.1.a.i

Heimilt er í sérreglum að útfæra fyrirkomulag ræsingar í tímatöku nánar.

3.3.2

Þegar raðað er upp á ráslínu skal kalla upp númer ökutækis tvisvar sinnum með mínútu millibili.

3.3.2.a

Þegar ökutæki er ekki mætt á ráslínu eftir annað útkall fær það eina mínútu til að mæta en fellur annars úr umferðinni.

3.3.3

Fyrir ræsingu sýnir ræsir merki og 5 sekúndum síðar má hann ræsa riðilinn.

3.3.3.a

Ræsir skal vera staðsettur þannig að allir ökumenn sjái hann greinilega.

3.3.4

Viðgerðartími fyrir ræsingu í úrslitum skal vera lágmark 5 mínútur frá því að síðasta riðli ökutækis lauk.

3.3.4.a

Smá viðgerðir á ráslínu eru einungis leyfðar ef endurræst er, til dæmis, skipta um hjólbarða og þess háttar.

3.3.5

Séu merktar aksturslínur þar sem ræsing fer fram verða keppendur að halda sig innan þeirra þar til þeim líkur. Krossun á aksturslínum í ræsingu er farið með sem þjófstart.

3.3.6

Þjófstarti ökutæki skal stöðva akstur með rauðu flaggi.

3.3.6.a

Það ökutæki sem þjófstartaði skal ræst fyrir aftan aftasta ökutæki.

3.3.7

Þjófstarti ökutæki tvisvar í sama riðli varðar það brottvísun úr riðlinum.

3.3.8

Þjófstart ákvarðast af:

3.3.8.a

Ákvörðun staðreyndadómara við ráslínu.

3.3.8.b

Notkun ljósgeisla.

3.3.8.c

Myndbandsupptöku.

GREIN 3.4 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
3.4.1

Auðkennisnúmer

3.4.1.a

Ökutæki skal bera merkimiða með keppnisnúmeri þess sem eru:

3.4.1.a.i

22 sm háir gulir stafir á svörtum fleti á aftari hliðarrúðum báðum megin;

3.4.1.a.ii

12 sm háir gulir stafir á svörtum fleti á á vinstra horni vélarhlífar og/eða í framrúðu hægra megin;

3.4.1.a.iii

Litur á stöfum skal vera í Pantone 803 c, lit, í Ariel Narrow bold letri, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og breiddar hvers tölustafs.

3.4.1.b

Heimilt er að hafa merkimiðana allt að 3x stærri en uppgefin mál og skulu þá flötur og letur stækka hlutfallslega jafn mikið.

3.4.2

Vanti merkimiða (grein 3.4.1.a.i) þegar ökutæki mætir á ráslínu, fær það ekki heimild til að ræsa í viðkomandi umferð.

3.4.3

Auglýsingar á ökutæki.

3.4.3.a

Keppnishaldara er heimilt að láta setja auglýsingar á ökutæki.

3.4.3.b

Auglýsingar keppnishaldara á ökutæki mega vera:

3.4.3.b.i

undir merkimiða með keppnisnúmeri;

3.4.3.b.ii

25x120 sentimetra borði efst á framrúðu;

3.4.3.b.iii

40x20 sentimetra flötur í hliðarrúður eða ofarlega á afturbretti.

3.4.3.c

Auglýsingar keppnishaldara á ökutæki mega ekki trufla útsýni ökumanns.

3.4.3.d

Keppandi skal sjá um að setja auglýsingar frá keppnishaldara á ökutæki.

3.4.3.e

Keppnishaldara er heimilt að sleppa keppanda við að merkja ökutæki með auglýsingum hans gegn greiðslu gjalds sem hann ákveður. Gjaldið skal auglýst í sérreglum keppninnar, að hámarki kr. 20.000 fyrir hvert ökutæki.

GREIN 3.5 SKOÐUN
3.5.1

Keppandi og/eða ökumaður skulu vera við ökutæki sitt meðan skoðun þess fer fram.

3.5.2

Við skoðun skal ökumaður vera í keppnisgalla og með allan persónulegan öryggisbúnað meðferðis.

GREIN 3.6 FORKEPPNI
3.6.1

Þegar fleiri en 24 ökumenn eru skráðir til keppni í sama flokki er keppnishaldara heimilt að halda forkeppni.

3.6.1.a

Hyggist keppnishaldari halda forkeppni skal þess getið í sérreglum keppninnar.

3.6.2

Ökutæki er ekið samfellt í fjóra tímamælda hringi og gildir hraðasti hringur til úrslita.

3.6.3

Áfram komast þeir 24 ökumenn sem hafa bestu tíma.

GREIN 3.7 TÍMATAKA
3.7.1

Tímataka sker úr um röðun við ráslínu í riðlum fyrstu umferðar. Ökutæki verða því að aka tímatöku til að vinna sér inn valrétt á stöðu við ráslínu.

3.7.2

Ökutæki sem ekki fá skráðan tíma í tímatöku ræsa fyrir aftan aftasta ökutæki sem vinnur sér inn stöðu á ráslínu.

3.7.3

Þegar fleiri en eitt ökutæki fá ekki skráðan tíma í tímatöku ræður keppnisstjóri með samþykkt dómnefndar innri röðun ökutækja.

3.7.4

Í tímatöku má ökutæki aka að hámarki þrjá tímamælda hringi.

GREIN 3.8 UMFERÐIR
3.8.1

Eknar skulu þrjár umferðir að loknum tímatökum.

3.8.2

Í hverri umferð skal aka 3.000 til 8.000 metra.

3.8.2.a

Eknir skulu fimm hringir í hverri umferð.

3.8.3

Ökutæki telst hafa lokið umferð þegar það er flaggað út við marklínu.

3.8.4

Árangur ökutækis í umferð skal mældur í tíma eða úrslitum.

3.8.5

Við uppröðun á ráslínu í fyrstu umferð skulu tímar úr tímatöku ráða valrétti á rásstöðu í braut.

3.8.5.a

Í annarri umferð ræðst valréttur af úrslitum í fyrstu umferð.

3.8.5.b

Í þriðju umferð ræðst valréttur af úrslitum í annarri umferð.

3.8.5.c

Í úrslitum ræðst valréttur af samanlögðum tveimur bestu úrslitum í umferðum 1, 2 og 3.

3.8.6

Ljúki ökutæki ekki tveimur umferðum fellur það úr keppni.

GREIN 3.9 RIÐLAR
3.9.1

Hverjum keppnisflokki má skipta í riðla.

3.9.1.a

Fjöldi ökutækja skal vera sem jafnastur í riðlum.

3.9.2

Áður en keppni hefst skal keppnisstjóri gera keppendum grein fyrir fjölda ökutækja í hverjum riðli.

3.9.3

Til að minnka hættu skal takmarka fjölda ökutækja í hverjum riðli við 12.

3.9.4

Sérstakar takmarkanir eru á fjölda ökutækja í hverjum riðli í unglingaflokki:

3.9.4.a

Hámark 8 ökutæki á braut undir 10 metrum að breidd;

3.9.4.b

hámark 10 ökutæki á braut yfir 10 metrum að breidd.

3.9.5

Þegar fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni verður ökutækjum skipt í riðla.

3.9.5.a

Ökutæki með besta tíma í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, það með næst besta tíma í riðil 2, þriðja besta tíma í riðil 1, fjórða besta tíma í riðil 2 og svo framvegis.

3.9.5.b

Í A úrslit komast þau sex ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.

3.9.5.c

Önnur ökutæki fara í B úrslit.

3.9.5.d

Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.

3.9.5.e

Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.

3.9.6

Þegar fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 10 skal þeim skipt í riðla.

3.9.6.a

Þegar fjöldi ökutækja er 9-16 / 11-20 miðað við breidd á braut.

3.9.6.a.i

Ökutæki með besta tíma í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, það með næst besta tíma í riðil 2, þriðja besta tíma í riðil 1, fjórða besta tíma í riðil 2 og svo framvegis.

3.9.6.a.ii

Í A úrslit komast þau 4/5 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.

3.9.6.a.iii

Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-8/10 í lokaúrslitum. Fjöldi fer eftir breidd brautar.

3.9.6.a.iv

Önnur ökutæki fara í B úrslit.

3.9.6.a.v

Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 9-16/11-20 í lokaúrslitum.

3.9.6.b

Þegar fjöldi ökutækja er 17-24 / 21-30 miðað við breidd á braut.

3.9.6.b.i

Ökutæki með besta tíma í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, það með næst besta tíma í riðil 2, þriðja besta tíma í riðil 1, fjórða besta tíma í riðil 2 og svo framvegis.

3.9.6.b.ii

Í A úrslit komast þau 3/4 ökutæki úr hverjum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.

3.9.6.b.iii

Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-9/12 í lokaúrslitum. Fjöldi fer eftir breidd brautar.

3.9.6.b.iv

Í B úrslit komast þau næstu 3/4 ökutæki úr hverjum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.

3.9.6.b.v

Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 10-16/13-24 í lokaúrslitum.

3.9.6.c

Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.

3.9.6.d

Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.

3.9.7

Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.

3.9.8

Riðli lýkur í síðasta lagi 2 mínútum eftir að fyrsta ökutæki fer yfir marklínu.

GREIN 3.10 ÚRSLITAFERÐ
3.10.1

Í úrslitaferð komast þeir sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum, sjá grein 3.8.

3.10.1

Séu tveir eða fleiri jafnir í sæti skal árangur úr fyrsta riðli ráða.

3.10.1.a

Hafi tveir eða fleiri einnig verið jafnir í fyrsta riðli skal betri tími í tímatöku skera úr um hver uppröðun verður.

3.10.2

Ökutæki verður að komast að ráslínu fyrir eigin vélarafli.

3.10.3

Ökutæki verður að taka þátt í ræsingu úrslitaferðar til að teljast hafa ekið hana.

3.10.4

Falli ökutæki úr keppni og endurræsing á sér stað eftir það, verður stæði ökutækisins autt í endurræsingu.

3.11

STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA

3.11.1

ökumaður sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.

3.11.2

Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu:

  1. sæti : 20 stig
  2. sæti : 17 stig
  3. sæti : 15 stig
  4. sæti : 13 stig
  5. sæti : 12 stig
  6. sæti : 11 stig
  7. sæti : 10 stig
  8. sæti : 9 stig
  9. sæti : 8 stig
  10. sæti : 7 stig
  11. sæti : 6 stig
  12. sæti : 5 stig
  13. sæti : 4 stig
  14. sæti : 3 stig
  15. sæti : 2 stig
  16. sæti : 1 stig
3.11.3

Að auki eru gefin stig til Íslandsmeistara þannig að fyrir:

3.11.3.a

sæti í úrslitum riðla eru gefin stig samkvæmt eftirfarandi töflu:

  1. sæti : 10 stig
  2. sæti : 9 stig
  3. sæti : 8 stig
  4. sæti : 7 stig
  5. sæti : 6 stig
  6. sæti : 5 stig
  7. sæti : 4 stig
  8. sæti : 3 stig
  9. sæti : 2 stig
  10. sæti : 1 stig
3.11.3.b

fyrir hraðasta hring í tímatökum í hverjum flokki eru gefin 3 stig til Íslandsmeistara, fyrir næst hraðasta hring 2 stig og þriðja hraðasta hring 1 stig.

3.11.4

Stig til Íslandsmeistara tekin af ökumanni – Afleiðing vegna áminningar.

  • Eftir 3 áminningar á keppnistímabili: 3 stig tekin af
  • Eftir 4 áminningar á keppnistímabili: 5 stig tekin af
  • Eftir 6 áminningar á keppnistímabili: 10 stig tekin af
GREIN 4 JÓKER
GREIN 4.1 SKILGREINING
4.1.1

Jóker er einn hringur í hverri umferð og úrslitaferðum keppni, sem er að hluta með aðra akstursleið en hefðbundin leið brautarinnar.

4.1.2

Jóker verði þannig gerður að hann sé lengur ekinn en hraðasti hringur sem næst í tímatökum í hverjum flokki.

4.1.3

Ökutæki sem aka jóker eiga að geta verið á sama hraða út úr honum og er á hefðbundinni akstursleið brautarinnar.

GREIN 4.2 SKILYRÐI
4.2.1

Ökutæki skal aka jóker einu sinni í hverjum riðli og úrslitaferð.

4.2.2

Þegar ökutæki kemur úr jóker skal það víkja fyrir ökutæki sem er að aka hefðbundna akstursleið brautarinnar.

GREIN 4.3 REFSINGAR
4.3.1

Ökutæki sem sleppir jóker í umferð telst ekki hafa klárað hana og skal ræsa fyrir aftan aftasta ökutæki í næstu umferð.

4.3.1.a

Sleppi fleiri en eitt ökutæki jóker í sama riðli færast þau aftast í sömu innbyrðis röð og þau voru við ræsingu hans.

4.3.2

Aki ökutæki fleiri en einn jóker í sömu umferð telst það ekki hafa lokið þeirri umferð.

GREIN 5 ÖRYGGISMÁL
GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNS
5.1.1

Ökumaður skal hafa eftirfarandi búnað:

5.1.1.a

Hjálm, opinn eða lokaðan, samkvæmt stöðlum AKÍS/FIA (FIA tæknilisti N°25);

5.1.1.b

HANS búnað með viðurkenningu frá FIA (FIA 8858) eða SFI (SFI 3.3);

5.1.1.c

keppnisgalla sem er lágmark tveggja laga eldheldur heilgalli með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000), SFI (SFI 3.2A/5 eða hærra);

5.1.1.d

keppnishanska með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra);

5.1.1.e

keppnisskó með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra);

5.1.1.f

lambhúshettu með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra);

5.1.1.g

undirföt (síðerma bol, buxur, sokka) með viðurkenningu frá FIA (8856) eða SFI (SFI 3.3/5 eða hærra).

5.1.2

Myndavélar eða annar aukabúnaður festur á hjálm eða ökumann á annan hátt er bannaður.

GREIN 5.2 BRAUTARVERÐIR
5.2.1

Brautarverðir skulu staðsettir með hámark 200 metra millibili við brautina en þó þannig að brautarvörður sjái ávallt til næsta brautarvarðar á báðar hendur.

5.2.2

Brautarvörður skal hafa hjá sér:

5.2.2.a

Slökkvitæki;

5.2.2.b

sett af flöggum samkvæmt grein 5.4, utan köflótta flaggsins;

5.2.2.c

hitaþolna og einangrandi vinnuhanska.

5.2.3

Brautarvörður við marklínu skal hafa köflótt flagg meðferðis.

5.2.4

Brautarvörður skal nota flögg eins og kveðið er á um í grein 5.4.

GREIN 5.3 ÖRYGGISBÚNAÐUR VIÐ BRAUTINA
5.3.1

Slökkvitæki skulu staðsett með lágmark 200 metra millibili meðfram allri brautinni.

GREIN 5.4 FLÖGG OG MERKJAGJÖF
5.4.1

Brautarverðir gefa ökumönnum merki með eftirfarandi flöggum:

Köflótt flagg, því skal flaggað í lok riðils og/eða keppni.

Svart/hvítt flagg (skiptist horn í horn) því er haldið kyrru ásamt númeri ökutækis og merkir háskalegan akstur.

Svart flagg ásamt númeri viðkomandi ökumanns þýðir að ökumaður hefur verið dæmdur úr riðli/keppni.

Svart flagg með gulum hring er notað með númeri ökumanns og merkir að ökutæki hans sé ekki í lagi og geti skapað hættu fyrir hann og aðra ökumenn. Ökumaður skal fara inn á viðgerðarsvæði umsvifalaust í næsta hring.

Gult flagg merkir hindrun í braut, ef ökutæki er hindrunin og ökumaður er í ökutæki skal flaggi veifað, sé ökumaðurinn er kominn út úr ökutæki skal flaggi haldið úti.

Rautt flagg merkir að keppni hefur verið stöðvuð og skulu ökumenn aka að ráslínu og bíða fyrirmæla keppnisstjóra.

Blátt flagg þýðir að ökumaður hindri framúrakstur og skuli víkja strax.

5.4.2

Brot á flaggreglum geta varðað refsingum, jafnvel brottvísun úr keppni, samkvæmt ákvörðun dómnefndar.

Grein 5.5 ÖRYGGISFULLTRÚI
5.5.1

Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum, ökumönnum eða tengdum aðilum í hættu.

5.5.2

Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

5.5.3

Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu til AKÍS um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

5.5.4

Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild á að óhappi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.

5.5.4.a

Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 6 KEPPNISFLOKKAR
GREIN 6.1 REGLUR SEM GILDA FYRIR ALLA FLOKKA
6.1.1

Keppnisstjóra með samþykki dómnefndar er heimilt að færa keppendur um flokk fram að ræsingu fyrstu ferðar í tímatöku.

6.1.2

Körfustóll með höfuð spjöldum er skylda og skal hann bera vottun FIA til notkunar í rallycrosskeppni. Festingar fyrir körfustóla skulu vera samkvæmt reglubók FIA, APPENDIX J – ARTICLE 253 ART. 16. SEATS, ANCHORAGE POINTS AND SUPPORTS.

6.1.3

Öryggisbelti skulu vera samkvæmt stöðlum FIA eða SFI, með lágmark 5 punkta festingum samkvæmt reglubók FIA, APPENDIX J – ARTICLE 253 ART. 6. SAFETY HARNESSES.

6.1.4

Ökutæki skal vera með öryggisbúr samkvæmt reglum FIA, viðauka J, grein 253-8.

6.1.4.a

Um sérsmíðuð ökutæki (undir það falla buggybílar og röragrindur) gilda eftirfarandi frávik.

6.1.4.a.i

Sérsmíðuð ökutæki yfir 600 kg. - veltibúr: lágmark 45x2.5mm í aðalboga og annað lágmark 38x2.0mm.

6.1.4.a.ii

Sérsmíðuð ökutæki undir 600 kg. - veltibúr: lágmarks efni 38x2.5mm í aðalboga og annað lágmark 38x2.0mm.

6.1.5

Dráttarlykkjur skulu vera framan og aftan á ökutæki og mega þær ekki ná út fyrir yfirbygginguna.

6.1.6

Óheimilt er að hafa varadekk í ökutæki.

6.1.7

Allir loftpúðar skulu fjarlægðir úr ökutæki.

6.1.8

Eldsneytisinngjöf skal útbúin með þeim hætti að ef hún aftengist færist gangur vélar sjálfkrafa í hægagang.

6.1.9

Aurhlífar eru skylda og skulu þær ná 5 sentimetra út fyrir felgur og vera hámark 4 sentimetra frá jörðu þegar ökutæki stendur eðlilega í öll hjól og ná að 2/3 hlutum hæðar hjóls.

6.1.9.a

Efnisval skal taka mið af því að aurhlífar séu áhrifarík takmörkun á grjótkasti frá ökutæki.

6.1.10

Straumrofi er skylda. Skal hann vera með snerli eða handfangi og greinilega merktur af/á (on/off).

6.1.10.a

Straumrofa eða haldfang tengt straumrofa skal staðsetja fyrir framan framrúðu ökumannsmegin.

6.1.10.b

Straumrofi á að rjúfa allan straum og drepa á ökutæki.

6.1.11

Baksýnisspegill skal vera inni í ökutæki og hliðarspeglar utan á báðum hliðum við skoðun ökutækis.

6.1.12

Ökutæki skal hafa rúðuþurrkur og rúðupiss.

6.1.13

Tvö vel sýnileg og virkandi rauð bremsuljós skulu vera staðsett á afturhluta ökutækis, styrkur ljóssins skal vera lágmark 15 watta glópera eða 6 watta LED ljós í lágmark 60 sentimetra hæð frá jörðu.

6.1.13.a

Öll glerljós skal fjarlægja.

6.1.13.b

Allar glóperur aðrar en bremsuljósaperur skal fjarlægja.

6.1.14

Stýrislás skal fjarlægður.

6.1.15

Ökutæki telst lokað þegar allar rúður/plast eru í því, á sínum stað.

6.1.15.a

Blæjubílar teljast ekki lokuð ökutæki.

GREIN 6.2 STANDARD 1000 FLOKKUR
6.2.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.2.2

Ökutæki með drif á einum öxli og vél með slagrými undir 1050 rúmsentimetrum.

6.2.2.a

Slagrými uppgefin af framleiðanda gilda.

6.2.2.b

Sé ökutæki upprunalega með forþjöppu skal rúmtak vélar uppreiknast með stuðlinum 1,7.

6.2.3

Lágmarksþyngd á ráslínu með ökumanni er 850 kílógrömm.

6.2.4

Hámarksþyngd er 1300 kílógrömm.

6.2.5

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.2.5.a

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir brettabrún.

6.2.6

Burðarvirki skal vera óbreytt á milli fram og aftur demparaturna.

6.2.6.a

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki (sjá mynd 1 í viðauka A). Vatnskassabita má smíða úr hámark 1,5 mm plötuefni eða nota prófíl efni hámark 70 mm x 30 mm og 1.5 mm þykkt. Vatnskassabiti má ekki ná fram fyrir stuðarabita eða grindarenda, en það má festa hann í grindarbita. Leyfilegt er að festa hlífðarpönnu við vatnskassabita.

6.2.7

Auka stuðarabitar að framan eru bannaðir, einungis upprunalegir stuðarabitar sem hæfa gerð ökutækis eru leyfðir.

6.2.7.a

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki.

6.2.8

Hvalbaksbreytingar eru bannaðar.

6.2.9

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.2.10

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri klæðningu.

6.2.11

Upprunaleg húddlæsing skal fjarlægð og húddi skal lokað með þar til gerðum húddlæsingum.

6.2.12

Mælaborð og mælaborðseiningu má ekki fjarlægja.

6.2.13

Hjólkoppa og útstæða hluti skal fjarlægja.

6.2.14

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.2.15

Ökutæki skal vera lokað.

6.2.16

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá lágmark 5 millimetra þykk.

6.2.16.a

Leyfilegt er að setja net fyrir framan framrúðu ef það hindrar ekki útsýni ökumanns.

6.2.16.b

Aðrar rúður skulu vera í ökutæki eða lágmark 2 millimetra þykkt lexan plast í þeirra stað.

6.2.17

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis skal vera þéttur.

6.2.18

Vatnsrör og kælikerfi skulu vera óbreytt.

6.2.19

Hjólabúnaður og fjöðrun skal vera óbreytt.

6.2.20

Hemlar skulu vera óbreyttir.

6.2.20.a

Hemlarör og slöngur skulu vera heil og óskemmd.

6.2.21

Eldsneyti skal vera fáanlegt á almennri bensínstöð á Íslandi.

6.2.21.a

Íblöndunarefni eru bönnuð í eldsneyti.

6.2.21.b

Rafmagn er ekki leyfilegt sem orkugjafi ökutækis.

6.2.22

Eldsneytiskerfi skal vera óbreytt.

6.2.22.a

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar.

6.2.23

Rafgeymir og staðsetning hans skal vera óbreytt.

6.2.24

Allar breytingar og viðbætur á vél og tengdum búnaði eru bannaðar.

6.2.25

Breyting á staðsetningu vélar er bönnuð.

6.2.26

Upprunaleg gerð pústgreinar skal vera í ökutækinu.

6.2.27

Útblástursrör skal vera aftur fyrir ökutækið.

6.2.28

Loftinntak vélar skal vera í vélarrými.

6.2.29

Gírkassi skal vera af upprunalegri gerð.

6.2.30

Driflæsingar eru bannaðar.

6.2.31

Eingöngu radial sumarhjólbarðar eru leyfðir.

6.2.31.a

Hjólbarðar merktir M/S (Mud/Snow) eru bannaðir nema annað sé tekið fram í sérreglum.

6.2.31.b

Hámarks breidd hjólbarða er 185 millimetrar.

6.2.31.c

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.2.31.d

Rallyhjólbarðar eru bannaðir.

6.2.31.e

Allur skurður á hjólbörðum er bannaður.

6.2.31.f

Slikkar og hrágúmmídekk eru bönnuð.

6.2.31.g

Lágmarks treadware hjólbarða er 220.

6.2.31.g.i

Gefi framleiðandi ekki upp treadware ákveður skoðunarmaður hvort hjólbarðar teljist gjaldgengir.

GREIN 6.3 1400 FLOKKUR
6.3.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.3.2

Ökutæki með drif á einum öxli, slagrými vélar undir 1450 rúmsentimetrum og hámark 100 hestöfl.

6.3.2.a

Slagrými og hestöfl uppgefin af framleiðanda gilda.

6.3.3

Forþjappa og nítró er bannað.

6.3.4

Lágmarksþyngd á ráslínu með ökumanni er 1000 kílógrömm.

6.3.5

Hámarksþyngd er 1300 kílógrömm.

6.3.6

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.3.6.a

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir brettabrún.

6.3.7

Burðarvirki skal vera óbreytt á milli fram og aftur demparaturna.

6.3.7.a

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki (sjá mynd 1 í viðauka A).

6.3.8

Auka stuðarabitar að framan eru bannaðir, einungis upprunalegir stuðarabitar sem hæfa gerð ökutækis eru leyfðir.

6.3.8.a

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki.

6.3.9

Hvalbaksbreytingar eru bannaðar.

6.3.10

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.3.11

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri klæðningu.

6.3.12

Upprunaleg húddlæsing skal fjarlægð og húddi skal lokað með þar til gerðum húddlæsingum.

6.3.13

Mælaborð og mælaborðseiningu má ekki fjarlægja.

6.3.14

Hjólkoppa og útstæða hluti skal fjarlægja.

6.3.15

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.3.16

Ökutæki skal vera lokað.

6.3.17

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá lágmark 5 millimetra þykk.

6.3.17.a

Leyfilegt er að setja net fyrir framan framrúðu ef það hindrar ekki útsýni ökumanns.

6.3.17.b

Aðrar rúður skulu vera í ökutækinu eða lágmark 2 millimetra þykkt lexan plast í þeirra stað.

6.3.18

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis og rými fyrir bensíntank og vatnskassa skal vera eldtraust og þétt.

6.3.19

Vatnsrör og kælikerfi skulu vera óbreytt.

6.3.20

Hjólabúnaður og fjöðrun skal vera óbreytt, en:

6.3.20.a

heimilt er að setja stillanlega dempara og gorma sem skulu festast í upprunalegar festingar.

6.3.21

Hemlar skulu vera óbreyttir.

6.3.21.a

Hemlarör og slöngur skulu vera heil og óskemmd.

6.3.22

Eldsneyti skal vera fáanlegt á almennri bensínstöð á Íslandi.

6.3.22.a

Íblöndunarefni eru bönnuð í eldsneyti.

6.3.22.b

Nitro er ekki leyfilegt sem orkugjafi ökutækis.

6.3.22.c

Rafmagn er ekki leyfilegt sem orkugjafi ökutækis.

6.3.23

Sé notaður annar en upprunalegur eldsneytisgeymir má hann ekki vera stærri en 25 lítra.

6.3.23.a

Eldsneytisgeymir skal vera tryggilega festur minnst 30 sentimetra frá ytra byrði.

6.3.23.b

Útöndun skal ná út fyrir ökutækið og niður fyrir tank.

6.3.23.c

Eldsneyti má ekki leka út.

6.3.23.d

Eldsneytisgeymi má ekki staðsetja í ökumannsrými.

6.3.23.e

Einstreymisloki skal vera á öndun eldsneytisgeymis.

6.3.24

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar, þær skulu vera úr eir, stáli eða vírofnum slöngum sem þola bensín.

6.3.24.a

Öll samskeyti á eldsneytislögnum í ökumannsrými eru bönnuð.

6.3.25

Tegund, stærð og staðsetning rafgeymis er frjáls.

6.3.25.a

Rafgeymir skal tryggilega festur.

6.3.25.b

Sé rafgeymir ekki á upprunalegum stað skal hann vera minnst 30 sentimetra frá ytra byrði og vel frá honum gengið þannig að hann leiði ekki út eða leki.

6.3.25.c

Rafgeymir í farþegarými skal vera þurrgeymir.

6.3.26

Allar breytingar og viðbætur á vél og tengdum búnaði eru bannaðar.

6.3.27

Breyting á staðsetningu vélar er bönnuð.

6.3.28

Útblástursrör skal vera aftur fyrir ökutækið.

6.3.29

Loftinntak vélar skal vera í vélarrými.

6.3.30

Gírkassi skal vera af upprunalegri gerð.

6.3.31

Allar driflæsingar eru bannaðar

6.3.32

Hámarks breidd hjólbarða er 185 millimetrar.

6.3.32.a

Hjólbarðar merktir M/S (Mud/Snow) eru bannaðir nema annað sé tekið fram í sérreglum.

6.3.32.b

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.3.32.c

Rallyhjólbarðar eru bannaðir.

6.3.32.d

Allur skurður á hjólbörðum er bannaður.

GREIN 6.4 2000 FLOKKUR
6.4.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.4.2

Ökutæki með drif á einum öxli og vél með slagrými undir 2080 rúmsentimetrum.

6.4.2.a

Slagrými uppgefið af framleiðanda vélar gildir.

6.4.2.b

Sé notast við forþjöppu, nítró eða aðra aflauka skal margfalda slagrými með stuðlinum 1,3. Dæmi: 1600 sm3 x 1,3 = 2080 sm3.

6.4.2.c

Slagrými Wankel vélar uppreiknast með stuðlinum 1,3 við flokkun ökutækis.

6.4.3

Hámarksþyngd er 1300 kílógrömm.

6.4.4

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.4.4.a

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir brettabrún.

6.4.4.b

Engir aukahlutir eru leyfilegir utan á ökutæki nema brettaútvíkkanir sem má skrúfa eða punktsjóða á yfirbyggingu.

6.4.5

Burðarvirki skal vera óbreytt á milli fram og aftur demparaturna.

6.4.5.a

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki (sjá mynd 1 í viðauka A). Vatnskassabita má smíða úr hámark 1,5 mm plötuefni eða nota prófíl efni hámark 70 mm x 30 mm og 1.5 mm þykkt. Vatnskassabiti má ekki ná fram fyrir stuðarabita eða grindarenda, en það má festa hann í grindarbita. Leyfilegt er að festa hlífðarpönnu við vatnskassabita.

6.4.6

Stuðarabitar að framan eru bannaðir.

6.4.6.a

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki nema burðarvirki ökutækis sé þannig hannað að þær séu hluti af því.

6.4.6.b

Ef þörf er á styrkingu fyrir framan framstykki má einungis nota ál prófíl í stærðinni 60 mm x 30 mm með 3 millimetra efnisþykkt.

6.4.6.b.i

Prófíl efnið má skrúfa í grindarbita og skal prófíllinn vera lárétt á milli þeirra og má ekki fara út fyrir hliðar á grindarbita (sjá mynd 13 í viðauka A).

6.4.7

Hvalbaksbreytingar bannaðar.

6.4.8

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.4.9

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri klæðningu.

6.4.10

Upprunaleg húddlæsing skal fjarlægð og húddi skal lokað með þar til gerðum húddlæsingum.

6.4.11

Mælaborð og mælaborðseiningu má ekki fjarlægja.

6.4.12

Hjólkoppa og útstæða hluti skal fjarlægja.

6.4.13

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækis.

6.4.14

Ökutæki skal vera lokað.

6.4.15

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá lágmark 5 millimetra þykk.

6.4.15.a

Leyfilegt er að setja net fyrir framan framrúðu ef það hindrar ekki útsýni ökumanns.

6.4.15.b

Setja skal fínofið net fyrir bílstjórahurð ef rúðan er fjarlægð.

6.4.15.c

Aðrar rúður skulu vera í ökutækinu eða lágmark 2 millimetra þykkt lexan plast í þeirra stað.

6.4.16

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis og rými fyrir bensíntank og vatnskassa skal vera eldtraust og þétt.

6.4.17

Vatnsrör að kælikerfi sem liggja í gegnum farþegarými eiga að vera ósamsett, olíuleiðslur skulu vera háþrýstislöngur

6.4.18

Útfærsla hjólabúnaðar, svo sem demparar, gormar, fjaðrir og klafar er frjáls, svo lengi sem hún stenst öryggiskröfur.

6.4.19

Eldsneyti er frjálst, með þeim takmörkunum þó að:

6.4.19.a

Rafmagn er ekki leyfilegt sem orkugjafi ökutækis;

6.4.20

Sé notaður annar en upprunalegur eldsneytisgeymir má hann ekki vera stærri en 25 lítra.

6.4.20.a

Eldsneytisgeymir skal vera tryggilega festur minnst 30 sentimetra frá ytra byrði.

6.4.20.b

Útöndun skal ná út fyrir ökutækið og niður fyrir tank.

6.4.20.c

Eldsneyti má ekki leka út.

6.4.20.d

Eldsneytisgeymi má ekki staðsetja í ökumannsrými.

6.4.20.e

Einstreymisloki skal vera á öndun eldsneytisgeymis.

6.4.21

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar, þær skulu vera úr eir, stáli eða vírofnum slöngum sem þola bensín.

6.4.21.a

Öll samskeyti á eldsneytislögnum í ökumannsrými eru bönnuð.

6.4.22

Tegund, stærð og staðsetning rafgeymis er frjáls.

6.4.22.a

Rafgeymir skal tryggilega festur.

6.4.22.b

Ef rafgeymir er ekki á upprunalegum stað skal hann vera minnst 30 sentimetra frá ytra byrði og vel frá honum gengið þannig að hann leiði ekki út eða leki.

6.4.22.c

Rafgeymir í farþegarými skal vera þurrgeymir.

6.4.23

Staðsetning vélar er frjáls svo framarlega að tryggilega sé frá henni gengið.

6.4.24

Útblástursrör skal vera aftur fyrir ökutækið.

6.4.25

Heimilt er að loftinntak vélar sé inni í ökumannsrými ef það er búið eldtraustum loftsíum.

6.4.26

Eingöngu sumarhjólbarðar og slikkar eru leyfðir.

6.4.26.a

Hjólbarðar merktir M/S (Mud/Snow) eru bannaðir nema annað sé tekið fram í sérreglum.

6.4.26.c

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.4.26.d

Rallyhjólbarðar eru bannaðir.

6.4.26.e

Allur skurður á hjólbörðum er bannaður.

GREIN 6.5 4WD NON TURBO
6.5.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.5.2

Ökutæki með drif á tveimur öxlum og vél með slagrými undir 2500 rúmsentimetrum.

6.5.2.a

Slagrými uppgefið af framleiðanda vélar gildir.

6.5.2.b

Ökutæki skal vera framleitt orginal/upprunalega 4X4 af framleiðanda.

6.5.2.c

Vélbúnaður og drifrás skal vera frá sama framleiðanda og ökutækið.

6.5.3

Aflaukar eru bannaðir nema samkvæmt grein 6.5.20.b.

6.5.4

Hámarksþyngd 1450 kílógrömm.

6.5.5

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.5.5.a

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir brettabrún.

6.5.5.b

Engir aukahlutir eru leyfilegir utan á ökutæki nema brettaútvíkkanir sem má skrúfa eða punktsjóða á yfirbyggingu.

6.5.6

Burðarvirki skal vera óbreytt á milli fram og aftur demparaturna.

6.5.6.a

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki (sjá mynd 1 í viðauka A). Vatnskassabita má smíða úr hámark 1,5 mm plötuefni eða nota prófíl efni hámark 70 mm x 30 mm og 1.5 mm þykkt. Vatnskassabiti má ekki ná fram fyrir stuðarabita eða grindarenda, en það má festa hann í grindarbita. Leyfilegt er að festa hlífðarpönnu við vatnskassabita.

6.5.7

Stuðarabitar að framan eru bannaðir.

6.5.7.a

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki nema burðarvirki ökutækis sé þannig hannað að þær séu hluti af því.

6.5.7.b

Ef þörf er á styrkingu fyrir framan framstykki má einungis nota ál prófíl í stærðinni 60 mm x 30 mm með 3 millimetra efnisþykkt.

6.5.7.b.i

Prófíl efnið má skrúfa í grindarbita og skal prófíllinn vera lárétt á milli þeirra og má ekki fara út fyrir hliðar á grindarbita (sjá mynd 13 í viðauka A).

6.5.8

Hvalbaksbreytingar eru bannaðar.

6.5.9

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.5.10

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri klæðningu.

6.5.11

Upprunaleg húddlæsing skal fjarlægð og húddi skal lokað með þar til gerðum húddlæsingum.

6.5.12

Mælaborð og mælaborðseiningu má ekki fjarlægja.

6.5.13

Hjólkoppa og útstætt skraut skal fjarlægja.

6.5.14

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.5.15

Ökutæki skal vera lokað.

6.5.16

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá lágmark 5 millimetra þykk.

6.5.16.a

Leyfilegt er að setja net fyrir framan framrúðu ef það hindrar ekki útsýni ökumanns.

6.5.16.b

Setja skal fínofið net fyrir bílstjórahurð ef rúðan er fjarlægð.

6.5.16.c

Aðrar rúður skulu vera í ökutækinu eða lágmark 2 millimetra þykkt lexan plast í þeirra stað.

6.5.17

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis og rými fyrir bensíntank og vatnskassa skal vera eldtraust og þétt.

6.5.18

Vatnsrör að kælikerfi sem liggja í gegnum farþegarými eiga að vera ósamsett, olíuleiðslur skulu vera háþrýstislöngur

6.5.19

Útfærsla hjólabúnaðar, svo sem demparar, gormar, fjaðrir og klafar er frjáls, svo framarlega sem hún stenst öryggiskröfur.

6.5.20

Eldsneyti skal vera fáanlegt á almennri bensínstöð á Íslandi.

6.5.20.a

Íblöndunarefni eru bönnuð í eldsneyti.

6.5.20.b

Nitró er leyfilegt á vélum 1800 rúmsentimetrum og minni.

6.5.20.c

Nitró er bannað á 1801 rúmsentimetrum og stærri.

6.5.20.d

Rafmagn er ekki leyfilegur orkugjafi ökutækis.

6.5.21

Sé notaður annar en upprunalegur eldsneytisgeymir má hann ekki vera stærri en 25 lítra.

6.5.21.a

Eldsneytisgeymir skal vera tryggilega festur minnst 30 sentimetra frá ytra byrði.

6.5.21.b

Útöndun skal ná út fyrir ökutækið og niður fyrir tank.

6.5.21.c

Eldsneyti má ekki leka út.

6.5.21.d

Eldsneytisgeymi má ekki staðsetja í ökumannsrými.

6.5.21.e

Einstreymisloki skal vera á öndun eldsneytisgeymis.

6.5.22

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar, þær skulu vera úr eir, stáli eða vírofnum slöngum sem þola bensín.

6.5.22.a

Öll samskeyti á eldsneytislögnum í ökumannsrými eru bönnuð.

6.5.23

Tegund, stærð og staðsetning rafgeymis er frjáls.

6.5.23.a

Rafgeymir skal tryggilega festur.

6.5.23.b

Ef rafgeymir er ekki á upprunalegum stað skal hann vera minnst 30 sentimetra frá ytra byrði og vel frá honum gengið þannig að hann leiði ekki út eða leki.

6.5.23.c

Rafgeymir í farþegarými skal vera þurrgeymir.

6.5.24

Staðsetning vélar er frjáls svo framarlega að tryggilega sé frá henni gengið.

6.5.25

Útblástursrör skal vera aftur fyrir ökutækið.

6.5.26

Heimilt er að loftinntak vélar sé inni í ökumannsrými ef það er búið eldtraustum loftsíum.

6.5.27

Eingöngu radial sumarhjólbarðar og DOT slikkar eru leyfðir

6.5.27.a

Allir hjólbarðar merktir M/S (Mud/Snow) bannaðir nema annað sé tekið fram í sérreglum.

6.5.27.b

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.5.27.c

Rallyhjólbarðar eru bannaðir.

6.5.27.d

Allur skurður á hjólbörðum er bannaður.

GREIN 6.6 OPINN FLOKKUR
6.6.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.6.2

Hámarksþyngd ökutækis án ökumanns á ráslínu er 1500 kg (með fullan eldsneytistank, rúðupiss fullt, olíu á vél og kælivökvar).

6.6.3

Sérsmíðuð ökutæki falla í þennan flokk.

6.6.4

Allar breytingar á ökutækinu eru leyfilegar svo framarlega sem þær standast þessar flokksreglur og öryggiskröfur.

6.6.5

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki (sjá mynd 1 í viðauka A). Vatnskassabita má smíða úr hámark 1,5 mm plötuefni eða nota prófíl efni hámark 70 mm x 30 mm og 1.5 mm þykkt. Vatnskassabiti má ekki ná fram fyrir stuðarabita eða grindarenda, en það má festa hann í grindarbita. Leyfilegt er að festa hlífðarpönnu við vatnskassabita.

6.6.6

Stuðarabitar að framan eru bannaðir.

6.6.6.a

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki nema burðarvirki ökutækis sé þannig hannað að þær séu hluti af því.

6.6.6.b

Ef þörf er á styrkingu fyrir framan framstykki má einungis nota ál prófíl í stærðinni 60 mm x 30 mm með 3 millimetra efnisþykkt.

6.6.6.b.i

Prófíl efnið má skrúfa í grindarbita og skal prófíllinn vera lárétt á milli þeirra og má ekki fara út fyrir hliðar á grindarbita (sjá mynd 13 í viðauka A).

6.6.7

Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri og þær sé hægt að opna utan frá og innan úr ökutækinu.

6.6.8

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri klæðningu.

6.6.9

Upprunaleg húddlæsing skal fjarlægð og húddi skal lokað með þar til gerðum húddlæsingum.

6.6.10

Hjólkoppa og útstætt skraut skal fjarlægja.

6.6.11

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.6.12

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá lágmark 5 millimetra þykk.

6.6.12.a

Leyfilegt er að setja net fyrir framan framrúðu ef það hindrar ekki útsýni ökumanns.

6.6.12.b

Setja skal fínofið net fyrir bílstjórahurð ef rúðan er fjarlægð.

6.6.12.c

Aðrar rúður skulu vera í ökutækinu eða lágmark 2 millimetra þykkt lexan plast í þeirra stað.

6.6.12.d

Sé um grind eða buggy að ræða má vera fínofið net í stað framrúðu.

6.6.12.e

Í grind eða buggy skal vera fínofið net eða rúður til að loka ökumannsrými.

6.6.13

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis og rými fyrir bensíntank og vatnskassa skal vera eldtraust og þétt.

6.6.14

Vatnsrör að kælikerfi sem liggja í gegnum ökumannsrými eiga að vera ósamsett, olíuleiðslur skulu vera háþrýstislöngur

6.6.15

Útfærsla hjólabúnaðar, svo sem demparar, gormar, fjaðrir og klafar er frjáls, svo framarlega sem hún stenst öryggiskröfur.

6.6.16

Drifskaftsbremsur eru bannaðar.

6.6.17

Eldsneyti er frjálst.

6.6.17.a

Rafknúin ökutæki eru leyfð, svo lengi sem það stenst skoðun og öryggisfulltrúi heimili að rafknúin ökutæki taki þátt í keppni. Sjá reglur FIA um öryggiskröfur fyrir rafknúin ökutæki.

6.6.18

Sé notaður annar en upprunalegur eldsneytisgeymir má hann ekki vera stærri en 25 lítra.

6.6.18.a

Eldsneytisgeymir skal vera tryggilega festur minnst 30 sentimetra frá ytra byrði.

6.6.18.b

Útöndun skal ná út fyrir ökutækið og niður fyrir tank.

6.6.18.c

Eldsneyti má ekki leka út.

6.6.18.d

Eldsneytisgeymi má ekki staðsetja í ökumannsrými.

6.6.18.e

Einstreymisloki skal vera á öndun eldsneytisgeymis.

6.6.19

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar, þær skulu vera úr eir, stáli eða vírofnum slöngum sem þola bensín.

6.6.19.a

Öll samskeyti á eldsneytislögnum í ökumannsrými eru bönnuð.

6.6.20

Tegund, stærð og staðsetning rafgeymis er frjáls.

6.6.20.a

Rafgeymir skal tryggilega festur.

6.6.20.b

Ef rafgeymir er ekki á upprunalegum stað skal hann vera minnst 30 sentimetra frá ytra byrði og vel frá honum gengið þannig að hann leiði ekki út eða leki.

6.6.20.c

Rafgeymir í farþegarými skal vera þurrgeymir.

6.6.21

Staðsetning vélar er frjáls svo framarlega að tryggilega sé frá henni gengið.

6.6.22

Útblástursrör er frjálst en skal vera undan ökutæki.

6.6.23

Heimilt er að loftinntak vélar sé inni í ökumannsrými ef það er búið eldtraustum loftsíum.

6.6.24

Eingöngu sumarhjólbarðar og slikkar eru leyfðir.

6.6.24.a

Allir hjólbarðar merktir M/S (Mud/Snow) eru bannaðir.

6.6.24.b

Hámarks hæð hjólbarða er 31” (78cm).

6.6.24.c

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.6.24.d

Rallyhjólbarðar bannaðir.

6.6.24.e

Allur skurður á hjólbörðum bannaður.

6.6.25

Smíðuð ökutæki verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

6.6.25.a

Vera smíðuð þannig að þau nái lágmarks stærð og málum í kringum ökumann eins og sést á mynd 9 og 10 í viðauka A;

6.6.25.b

Vera með hliðarvörn eins og sést á mynd 9 og 10 í viðauka A.

6.6.25.c

Hafa net í öllum gluggum/opum eins og sést á mynd 11 í viðauka A.

6.6.25.d

Hliðarnet verða vera opnanleg að innan og utan.

6.6.25.e

Hafa quick release á stýri frá viðurkenndum framleiðendum (dæmi sýnd á mynd 12 í viðauka A).

6.6.26

Skylda er að vera með lokaðan hjálm með gleri í smíðuðu ökutæki.

GREIN 6.7 UNGLINGAFLOKKUR
6.7.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.7.2

Ökutæki með drif á einum öxli og vél með slagrými undir 1050 rúmsentimetrum og hámark 75 hestöfl.

6.7.2.a

Slagrými og hestöfl uppgefin af framleiðanda gilda.

6.7.3

Forþjöppur eru bannaðar.

6.7.4

Hámarksþyngd er 1300 kílógrömm.

6.7.5

Upprunalegu útliti skal halda, það er, stuðurum, grilli, hurðum ofl.

6.7.5.a

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir brettabrún.

6.7.6

Burðarvirki skal vera óbreytt á milli fram og aftur demparaturna.

6.7.6.a

Krumpusvæði fyrir framan demparaturna að framan og aftur fyrir turna að aftan verða að vera óbreytt nema breytingarnar teljist sambærilegar upprunalegri högun og séu gerðar með plötuefni með hámarks þykkt 1,5 millimetrar. Þetta á einnig við um vatnskassabita og framstykki (sjá mynd 1 í viðauka A)

6.7.7

Auka stuðarabitar að framan eru bannaðir, einungis upprunalegir stuðarabitar sem hæfa gerð ökutækis eru leyfðir.

6.7.7.a

Allar styrkingar í stuðurum sem eru úr málmi eða hörðu plasti eru bannaðar fyrir framan framstykki.

6.7.8

Hvalbaksbreytingar eru bannaðar.

6.7.9

Læsingarbúnaður á hurðum skal vera óbreyttur. Tryggt skal að hurðir opnist ekki í akstri.

6.7.10

Ökumannshurð skal vera með hurðaspjaldi eða annarri klæðningu.

6.7.11

Upprunaleg húddlæsing skal fjarlægð og húddi skal lokað með þar til gerðum húddlæsingum.

6.7.12

Mælaborð og mælaborðseiningu má ekki fjarlægja.

6.7.13

Hjólkoppa og útstæða hluti skal fjarlægja.

6.7.14

Hlífðarpanna er leyfileg, en hún má ekki standa út fyrir fram eða afturhluta ökutækisins.

6.7.15

Ökutæki skal vera lokað.

6.7.16

Framrúða skal vera úr lamineruðu öryggisgleri eða lexan plasti og þá lágmark 5 millimetra þykk.

6.7.16.a

Leyfilegt er að setja net fyrir framan framrúðu ef það hindrar ekki útsýni ökumanns.

6.7.16.b

Aðrar rúður skulu vera í ökutækinu eða lágmark 2 millimetra þykkt lexan plast í þeirra stað.

6.7.17

Eldveggur milli ökumannsrýmis og vélarrýmis skal vera þéttur.

6.7.18

Vatnsrör og kælikerfi skulu vera óbreytt.

6.7.19

Hjólabúnaður og fjöðrun skal vera óbreytt.

6.7.20

Hemlar skulu vera óbreyttir.

6.7.20.a

Hemlarör og slöngur skulu vera heil og óskemmd.

6.7.21

Eldsneyti skal vera fáanlegt á almennri bensínstöð á Íslandi.

6.7.21.a

Íblöndunarefni eru bönnuð í eldsneyti.

6.7.21.b

Nitro er ekki leyfilegt sem orkugjafi ökutækis.

6.7.21.c

Rafmagn er ekki leyfilegt sem orkugjafi ökutækis.

6.7.22

Eldsneytiskerfi skal vera óbreytt.

6.7.22.a

Eldsneytislagnir skulu vera heilar og óskemmdar.

6.7.23

Rafgeymir og staðsetning hans skal vera óbreytt.

6.7.24

Allar breytingar og viðbætur á vél og tengdum búnaði eru bannaðar.

6.7.25

Breyting á staðsetningu vélar er bönnuð.

6.7.26

Upprunaleg gerð pústgreinar skal vera í ökutækinu.

6.7.27

Útblástursrör skal vera aftur fyrir ökutækið.

6.7.28

Loftinntak vélar skal vera í vélarrými.

6.7.29

Gírkassi skal vera af upprunalegri gerð.

6.7.30

Allar driflæsingar eru bannaðar

6.7.31

Eingöngu radial sumarhjólbarðar eru leyfðir

6.7.31.a

Allir hjólbarðar merktir M/S (Mud/Snow) eru bannaðir nema annað sé tekið fram í sérreglum.

6.7.31.b

Hámarks breidd hjólbarða er 185 millimetrar.

6.7.31.c

Naglar og keðjur eru bannaðar.

6.7.31.d

Rallyhjólbarðar eru bannaðir.

6.7.31.e

Allur skurður á hjólbörðum er bannaður.

6.7.31.f

Slikkar og hrágúmmídekk eru bönnuð.

6.7.31.g

Lágmarks treadware hjólbarða er 220.

6.7.31.g.i

Gefi framleiðandi ekki upp treadware ákveður skoðunarmaður hvort hjólbarðar teljist gjaldgengir.

7 VIÐAUKI A
7.1
7.2
7.3
7.4
7.5
7.6
8 VIÐAUKI B

Útdráttur um líklegar refsingar við brot á keppnisreglum.
Þessi listi er ekki tæmandi og er aðeins ætlaður til að gefa hugmynd um líklegar eða mögulegar refsingar við broti á reglum. Sé misræmi á milli þessa lista og reglna þá gilda reglurnar. Dómnefnd keppninar ákveður um mál sem eru ekki tekin fyrir í reglum og ákveður refsingar í samræmi við keppnisreglur og eða sérreglum fyrir keppni.