Reglur > Rally flokkur TO (jeppaflokkur) 2023
Útgáfudagur 30.12.2022
GREIN 1 |
REGLUR FYRIR RALLY FLOKK TO (jeppaflokk)
Taka gildi 1.1.2023. Gilda a.m.k. til 31.12.2025. | |
GREIN 2 |
OPINN FLOKKUR - TO
| |
2.1 |
SKILGREININGAR | |
2.1.1 |
Ökutæki þarf ekki að halda upprunalegu útliti í hvívetna, en þarf að standast almenna bifreiðaskoðun. | |
2.1.1.a |
Breytingaskoðun er einnig leyfileg. | |
2.1.2 |
Upphafleg grind eða styrktarvirki ökutækis skal notað. | |
2.1.2.a |
„Space frame" burðarvirki er ekki leyft. (Ekki telst vera space frame þegar veltibúr er soðið á verksmiðjuframleidda grind). | |
2.1.3 |
Heimilt er að færa og breyta hvalbak. | |
2.1.4 |
Staðsetning vélar verður að vera þar sem hún er samkvæmt skráningu bifreiðar, það er að segja fram í eða aftur í. | |
2.1.5 |
Hámarks slagrými vélar er 6.000 sm3. | |
2.1.6 |
Hámarks afl vélar er 300 hestöfl. | |
2.1.7 |
Ef vél ökutækis er með forþjöppu skal nota þrengingar samkvæmt reglum FIA. | |
2.1.8 |
Ökutæki skal ekki vera þyngra en 3.000 kg. á ráslínu. | |
2.1.9 |
Lágmarksþyngd ökutækis skal vera 1.500 kg án áhafnar. | |
2.1.10 |
Ökutæki skal vera fjórhjóladrifið | |
2.1.10.a |
Drifbúnaðurinn þarf að samanstanda af gírkassa/sjálfskiptingu, millikassa og drifsköftum tengdum millikassa og ganga fram og aftur úr millikassanum og tengjast þar með drifásum bifreiðarinnar. | |
2.1.11 |
Hæð hjólbarða skal að hámarki vera 33", eða 10% meira en þvermál dekkja er bifreiðin kemur á. | |
2.1.12 |
Ökutækis skal uppfylla öryggiskröfur FIA til ökutækja í rally samkvæmt Reglubókinni, viðauka J grein 283, sem og aðrar viðeigandi greinar. | |
2.2 |
TAKMARKANIR | |
2.2.1 |
Allar breytingar á ökutækjum sem ekki eru leyfðar samkvæmt þessum reglum eru bannaðar. | |
2.2.1.a |
Breytingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla öryggiskröfur FIA og kafla 5.2 í Keppnisgreinareglum fyrir rally eru leyfðar. | |
2.2.1.b |
Koma má fyrir viðbótar mælum til að fylgjast með vél og drifrás. | |
2.2.1.c |
Aftursæti má fjarlægja, svo og innréttingu. | |
2.2.1.d |
Leyfilegt er að smíða innréttingu en hún skal vera án skarpra brúna og kanta. | |
2.2.1.e |
Í framhurðum skulu vera hurðarspjöld. | |
2.2.1.f |
Eldveggur verður að vera milli vélar og ökumanna. | |
2.2.1.g |
Fjöðrun er frjáls, þar með talið afstaða, fjöldi og lengd stífa. | |
2.2.1.h |
Demparar eru frjálsir. | |
2.2.1.h.i |
Breytingar á fjöðrun, dempurum, bremsum og stýrisgangi skal standast sérskoðun fyrir breyttar bifreiðar. | |
2.2.1.i |
Bremsur og bremsu efni er frjálst. | |
2.2.1.j |
Stýrisgangur er frjáls, en tjakkstýri bannað. | |
2.2.1.k |
Lofthreinsarar eru frjálsir og má vera án þeirra. Loftrás má aldrei draga loft innan úr ökumannsrými. | |
2.2.1.l |
Hásingar eru frjálsar. | |
2.2.1.l.i |
Drifhlutföll og driflæsingar eru frjálsar. | |
2.2.1.m |
Gírkassi frjáls. | |
2.2.1.n |
Millikassi frjáls. | |
2.2.1.o |
Tryggilega festan auka varahjólbarða má vera með inni í eða utaná bifreiðinni. | |
2.2.1.p |
Auka ljósbúnaði má koma fyrir í pörum. | |
2.2.1.q |
Bæta má við undirvagnsvörn. | |
2.2.1.r |
Heimilt er að setja tank inn í bílinn en þá skal hann vera í aðskildu rými frá ökumönnum. | |
2.2.1.r.i |
Ef FIA viðurkennd bensínsella (e. fuel cell) er notuð þarf ekki aðskilið rými. |