Reglur > Rally flokkur C (óbreyttir bílar án túrbínu) 2023

Útgáfudagur 1.2.2023
Bera saman við aðra útgáfu
GREIN 1 SKILGREININGAR
1.1

Reglur þessar gilda fyrir óbreytt ökutæki án forþjöppu.

1.2

Hæf ökutæki teljast þau sem skráð hafa verið sem venjulegar fólksbifreiðar hjá Samgöngustofu.

1.3

Allar breytingar á ökutækjum sem ekki eru leyfðar samkvæmt reglum þessum eru bannaðar.

1.4

Kvaðir á keppendur vegna auglýsingasamnings

1.4.1

Keppnishöldurum er heimilt að semja um kostun á nafni á mótaröðinni í flokknum gegn auglýsingum á ökutækjum. Skal upplýst um slíka kostun á heimasíðunni akis.is í síðasta lagi 15. mars ár hvert.

1.4.2

Keppendum er heimilt, gegn gjaldi, að hafna hugsanlegum kvöðum sem slík sala kann að fela í sér. Gjaldið skal reiknast sem tvöföld keppnisgjöld hverrar keppni.

1.4.3

Kaupi keppandi sig frá þessum kvöðum hafnar hann jafnframt þeim verðlaunum sem samningurinn kann að kveða á um. Þó verða stig til Íslandsmeistara reiknuð óháð þessu, sem og verðlaun sem keppnishaldari veitir, t.d. bikar.

1.4.4

Keppandi getur orðið Íslandsmeistari í flokknum þó hann kaupi sig frá þessum kvöðum.

GREIN 2 VÉL
2.1

Hámarks slagrými vélar ökutækis er 2.000 sm3 fyrir ökutæki með drifi á báðum öxlum, en 2.400 sm3 fyrir ökutæki með drifi á einum öxli.

2.2

Hámarks afl vélar er 160 hestöfl samkvæmt framleiðanda eða viðurkenndri aflmælingu AKÍS.

2.3

Eftirtalið er frjálst:

2.3.1

Inngjafarbarkar,

2.3.2

vatnslás,

2.3.3

kerti,

2.3.4

kertaþræðir,

2.3.5

snúningstakmarkarar,

2.3.6

loftsíur, eldsneytissíur,

2.3.7

skvettibúnaður í olíupönnu

2.3.8

rafstýribúnaður og

2.3.9

útblásturskerfi, annað en pústgrein.

2.4

Heimilt er að skipta um vél og viðeigandi rafkerfi, en vélin verður að hafa verið til í samskonar módeli/boddýi ökutækis, og hafi þannig vél fengist í ökutæki innfluttu af umboði viðkomandi framleiðanda á Íslandi.

2.5

Vél skal ekki vera úr nýrra módeli ökutækis nema leyft er að uppfæra vélar upp að 2.000 sm3 slagrými og 130 hö ef ökutæki eru þyngri en 1.300 kg.

2.5.1

Vél verður að koma frá sama framleiðanda og ökutækið.

2.5.2

Dæmi 1: Heimilt er að taka 115 ha. vél úr Subaru Impreza árgerð 1997 og setja í staðinn 125 ha. vél úr 1999 árgerð Subaru Impreza.

2.5.3

Dæmi 2: Leyft er að setja 125 ha mótor í Subaru Legacy að því gefnu að hann sé a.m.k. 1.300 kg samkvæmt skráningarskírteini.

2.6

Heimilt er að skipta um mótorpúða en staðsetning og fjöldi skal vera óbreyttur.

2.7

Óheimilt er að bora út vél meira en 0,5 mm.

GREIN 3 STÝRISBÚNAÐUR
3.1

Fjarlægja skal stýrislás.

3.2

Heimilt er að skipta um stýrishjól.

GREIN 4 DRIFRÁS
4.1

Gírkassi / sjálfskipting skal vera óbreytt.

4.2

Heimilt er að skipta um gírkassa / sjálfskiptingu.

4.2.1

Gírkassi / sjálfskipting skal vera úr fjöldaframleiddu ökutæki sömu tegundar sem flutt hefur verið inn af umboði viðkomandi framleiðanda hérlendis.

4.3

Raðskiptibúnaður (sequential) er bannaður.

4.4

Gírkassar með beinskornum tannhjólum (dog-box) og/eða þétthlutfalla (close-ratio) gírsett eða gírkassar eru bönnuð.

4.5

Tengslisdiskar eru frjálsir.

4.6

Drifhlutföll eru frjáls.

4.7

Driflæsing er leyfð á einum öxli.

4.8

Heimilt er að styrkja bita og aðrar festingar drifbúnaðar.

GREIN 5 YFIRBYGGING
5.1

Útlit og lögun skal vera óbreytt miðað við upphaflegt útlit ökutækis.

5.2

Styrking yfirbyggingar er frjáls.

5.3

Óheimilt er að fjarlægja efni úr yfirbyggingu, né setja annað í staðinn, nema um jafnþungt efni sé að ræða.

5.4

Sílsalistar, vindskeiðar og aurhlífar eru frjálsar.

5.5

Rúður skulu vera upprunalegar.

5.6

Sé notuð yfirbygging (skel) ökutækis sem framleitt var með öflugri vél en leyfileg er samkvæmt reglum þessum, má skelin ekki vera léttari en framleiðsluþyngd.

5.6.1

Aðeins má nota yfirbygginguna (skelina) en ekki aðra hluti.

5.6.2

Dæmi: Subaru Impreza GT skel má ekki vera léttari en GL skel.

GREIN 6 UNDIRVAGN OG HJÓLABÚNAÐUR
6.1

Sporvídd og hjólhaf skal vera óbreytt.

6.1.1

Skekkjumörk eru 40mm.

6.2

Spyrnur, stífur og aðrar festingar hjólabúnaðar skulu vera upprunalegar.

6.2.1

Heimilt er að styrkja spyrnur, stífur og festingar hjólabúnaðar.

6.2.2

Fóðringar í spyrnum og stífum eru frjálsar.

6.3

Fjöðrun er frjáls en notast skal við upphaflega festipunkta hennar.

6.3.1

Skekkjumörk eru 25 mm.

6.4

Hemlar skulu vera af sömu stærð og gerð og upprunalega.

6.4.1

Heimilt er að setja diska og annan viðeigandi búnað að aftan í stað skála.

6.4.2

Hemlavökvi er frjáls

6.4.3

Efni í klossum og skóm er frjálst.

6.5

Stærð og gerð felga er frjáls.

6.6

Stærð og gerð hjólbarða er frjáls.

GREIN 7 ELDSNEYTISKERFI
7.1

Eldsneytistank er heimilt að staðsetja að vild utan ökumannsrýmis.

7.1.1

Stærð, tegund og gerð eldsneytistanks er frjáls.

7.1.2

Sé eldsneytistankur í farangursrými ökutækis skal vera fullnægjandi eldveggur milli þess og ökumannsrýmis.

7.2

Tegund, gerð og staðsetning eldsneytisdælu er frjáls.

GREIN 8 ANNAÐ
8.1

Rafkerfi er frjálst.

8.2

Innréttingu má fjarlægja að undanskildu mælaborði.

8.3

Rúðuupphalarar í framhurðum skulu vera til staðar og virka.

8.4

Fjarlægja skal alla loftpúða úr ökumannsrými.