Reglur > Reglur fyrir fjölmiðlafólk í aksturskeppnum

Útgáfudagur 1.1.2017
Bera saman við aðra útgáfu
1

Almennt

1.1

Keppnishaldari ákveður hverjir það eru sem fá aðgang að keppni sem myndatöku- og fjölmiðlafólk. Skrá skal viðkomandi sérstaklega inn í gögn keppninnar.

1.2

Gengið skal úr skugga um að þeir sem eru við myndatöku, eða er leyft að fara um lokuð keppnissvæði, séu klæddir í áberandi öryggisvesti.

1.3

Fari myndatöku- og fjölmiðlafólk ekki eftir leiðbeiningum starfsfólks getur það átt von á því að verða vísað burt af keppnissvæðinu.

2

Leyfi til myndbirtingar

2.1

Umsóknarferli

2.1.1

Aðilar geta sótt um að fá leyfi til myndbirtingar fyrir ákveðið keppnistímabil. Umsóknir eiga að vera sendar til stjórnar AKÍS.

2.1.2

Umsókn skal gerð á umsóknareyðublaði á vef AKÍS og verður að uppfylla kröfur sem fram koma á því eyðublaði. Þar er tekið fram hvort um er að ræða ljósmyndir eða myndbönd ásamt því hvar efnið er birt.

2.1.3

AKÍS getur beðið umsækjendur að leggja fram frekari upplýsingar en þær sem eru í umsókn.

2.1.4

AKÍS er heimilt að ákveða gjald fyrir útgáfu leyfa til myndbirtingar og verða umsóknir um leyfi til myndbirtingar ekki veittar fyrr en gjaldið er að fullu greitt.

2.1.5

AKÍS hefur einhliða rétt til að samþykkja, hafna, afturkalla eða breyta leyfi til myndbirtingar að hluta eða öllu leyti.

2.1.6

Aðilar fá sérstakt skírteini til að bera á viðburðum ásamt sérmerktu vesti. Tryggingargjald greiðist fyrir vestið og ber að skila vestinu í lok keppnistímabils gegn endurgreiðslu tryggingargjalds.

2.2

Gildistími og framsal

2.2.1

Samþykkt umsókn gildir út það keppnistímabilið er hún var samþykkt á.

2.2.2

Samþykkt umsókn er ekki framseljanleg til þriðja aðila og verða handhafar leyfis til myndbirtingar að tryggja að leyfi þeirra sé ekki notað af öðrum aðilum.

2.3

Stig leyfa til myndbirtingar

2.3.1

AKÍS gefur út leyfi til myndbirtingar í tveimur mismunandi stigum.

2.3.1.a

Leyfið er ætlað aðilum með reynslu og að verk þeirra hafi verið birt. Einnig er þetta ætlað atvinnumönnum sem birta efni reglulega í fjölmiðlum sem fjalla um akstur og akstursíþróttir.

2.3.1.b

Leyfið er ætlað byrjendum í myndatöku akstursíþrótta og er ólíklegt til að gefa aðgang að stærri viðburðum akstursíþrótta. Það er ætlað til notkunar hjá félögum og er gott fyrsta skref til að öðlast reynslu í faginu.

2.3.2

Aðilar með leyfi til myndbirtingar fá ekki sjálfkrafa aðgang á viðburð. Aðgangur og leyfi til myndatöku er ávallt ákvörðun keppnisstjórnar. Hins vegar geta þeir sem hafa hærra stig viðurkenningar almennt búist við að vera heimill aðgangur að fleiri viðburðum.

2.4

Afturköllun leyfis

2.4.1

AKÍS getur afturkallað eða breytt leyfi til myndbirtingar hvenær sem er vegna brota á ákvæðum þessara reglna eða annarra gefnum út af AKÍS.

2.5

Sýning leyfis

2.5.1

Þegar aðilar með leyfi til myndbirtingar eru að taka upp skulu þeir bera gilt skírteini með sýnilegum hætti og vera í vestinu sem AKÍS úthlutaði.

2.6

Hættur og bótaréttur

2.6.1

Hvort sem aðili er með leyfi AKÍS til myndbirtingar eða fær leyfi keppnishaldara til myndatöku skal hann ætíð:

2.6.1.a

hafa kynnt sér lög og reglur AKÍS er varðar keppnishald og samþykkir að fara eftir þeim

2.6.1.b

muna að hann er á eigin ábyrgð

2.6.1.c

gera sér grein fyrir að akstursíþróttir eru hættulegar

2.6.1.d

fara eftir öllum tilmælum frá starfsfólki keppninnar að viðlagðri fyrirvaralausri brottvísun af keppnissvæðinu

2.6.1.e

halda AKÍS, keppnishaldara, keppnisstjóra, landeiganda eða starfsmönnum keppninnar skaðlausum vegna hugsanlegs tjóns sem hann kann að verða fyrir

2.6.1.f

afsala sér öllum hugsanlegum bóta- og/eða kröfurétti á hendur AKÍS, keppnishaldara, starfsmönnum keppninnar, keppendum eða landeiganda vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni hvort heldur sem um er að ræða eigna- eða líkamstjón og hvernig sem því er valdið

2.6.1.g

virða friðhelgi einstaklinga sem lenda í slysum eða öðrum atvikum, hvort heldur er í eða utan keppni. Forðist að birta myndir af slysum eða öðrum viðkvæmum atvikum.

2.7

Hættusvæði

2.7.1

Hvort sem aðili er með leyfi AKÍS til myndbirtingar eða fær leyfi keppnishaldara til myndatöku skal hann ætíð:

2.7.1.a

fylgja reglum og reglugerðum í tengslum við viðburð og:

2.7.1.a.i

semja við keppnishaldara tímanlega til að ræða aðgengi ásamt því að mæta á kynningarfundi viðburðar

2.7.1.a.ii

einungis vera þar sem heimilt er og ekki á bannsvæði

2.7.1.a.iii

uppfylla allar reglur og reglugerðir AKÍS og keppnisstjórnar ásamt leiðbeiningum gefnum af starfsmönnum keppninnar

2.7.1.a.iv

haga sér í samræmi við öll skilti, hindranir og önnur leiðarmerki sem sýna hvar á og á ekki að vera

2.7.1.b

vera ljóst að keppnistæki í keppni getur:

2.7.1.b.i

skotið frá sér grjóti eða rusli

2.7.1.b.ii

tekið óvænta stefnu og ekki fylgt nákvæmlega merktri eða ætlaðri leið

2.7.1.b.iii

rekist á og losað hindranir eða aðra hluti í kringum það

2.7.1.c

vera meðvitaðir um eigið öryggi og:

2.7.1.c.i

standa frekar en að leggjast eða setjast niður

2.7.1.c.ii

standa þar sem auðvelt er að færa sig ef óhapp verður og forðast að standa framan varnargarða, ræsi, veggi og þess háttar

2.7.1.c.iii

vera í öryggisvesti því sem AKÍS úthlutaði

2.7.1.c.iv

að vera utan öryggissvæðis keppnisbrauta (enska: run-off area, safety zone). Ef það er ekki hægt, að vera á bakvið hlut sem er líklegur til að stöðva keppnistækið

2.7.1.c.v

aldrei stíga inn á brautina eða annars staðar þar sem keppnistæki er á ferðinni

2.7.1.c.vi

ekki standa á svæðum þar sem keppnistæki getur eða eru líkleg til að geta farið út úr braut, það er hemlunarsvæði, utanverðar beygjur og þess háttar

2.7.1.c.vii

ekki valda öðrum hættu

2.7.1.c.viii

að hindra ekki sýn á merki og önnur atriði sem hafa verið sett til að tryggja öryggi viðburðarins

2.7.1.d

gera sér grein fyrir því að sjónsviðið er takmarkað þegar myndavél eða önnur tæki eru notuð og tryggja að:

2.7.1.d.i

vera vakandi

2.7.1.d.ii

vera meðvitaður um umhverfi sitt og takmörkunum á sjónsviði og heyrn

2.7.1.d.iii

þeir hafa skýra sjónlínu til keppnistækja og þeirrar hættu sem skapast getur

2.7.1.e

vera kurteis og sýna nærstöddum tillitssemi og virðingu

2.8

Leyfi til myndbirtingar

2.8.1

Aðilar með leyfi til myndbirtingar geta fengið aðgang að svæðum sem yfirleitt eru ekki í boði fyrir almenning. Eins og áður hefur komið fram tryggir leyfi til myndbirtingar þó ekki aðgang að viðburði þar sem keppnisstjórn hefur heimild til að ákvarða aðgengi.

2.9

Samþykki

2.9.1

Aðilar með leyfi til myndbirtingar gera sér grein fyrir því að ávallt er krafist upplýsts samþykkis. Það er því á ábyrgð þessara aðila að tryggja fullt samþykki frá öllum aðilum (og hugsanlega forráðamanni ef einstaklingur er undir 18 ára aldri) áður en efnið er birt opinberlega.

2.9.2

Aðilar með leyfi til myndbirtingar ættu að huga vandlega að efni sem dreifa á í atvinnuskyni svo það sé ekki:

2.9.2.a

óeðlilegt eða uppáþrengjandi

2.9.2.b

ósæmilegt

2.9.2.c

ærumeiðandi