Reglur > Torfærureglur - Götubílar - Tæknilegar reglur 2024
Útgáfudagur 23.1.2024
1 |
ÖRYGGISBÚNAÐUR ÖKUMANNA | |
1.1 |
Keppnisgalli samþykktur af:
| |
1.1.1 |
Séu aðrir samþykktir FIA eða SFI gallar notaðir skal keppandi vera í eldvörðum fatnaði undir:
| |
1.2 |
Lokaður keppnishjálmur samkvæmt eftirfarandi:
| |
1.2.1 |
Smellulásar eru leyfðir en mælt er með þræddri ól. | |
1.3 |
Hlífðargler í hjálmi eða hlífðargleraugu. Mótorkross hjálmar eru bannaðir. | |
1.4 |
Hálsbúnaður sem uppfyllir SFI 38.1 eða FIA 8858-2010 er skylda (HANS Head and Neck Restraint Systems eða FHR Frontal Head Restraint). | |
1.5 |
Eingöngu 3” breið FIA/SFI samþykkt belti með króklás (ekki stjörnulás) eru leyfileg. | |
1.5.1 |
Heimilt að nota 3" breið belti sem sniðin eru fyrir HANS. | |
1.5.2 |
Beltin skulu vera óskemmd og hafa gilda dagsetningu frá framleiðanda. Heimilt er að nota belti sem falla út á árinu út keppnisárið. | |
1.5.3 |
Axlabelti skal festa í láréttri línu frá öxlum eða niður allt að 45 gráður. | |
1.5.4 |
Ef belti er fest með boltum skal að lágmarki nota 7/16 UNF (11mm) bolta. | |
1.5.5 |
Belti skulu ávallt vera tryggilega fest við veltibúr eða grind bílsins. | |
1.5.6 |
Bannað er að bora í veltibúr fyrir beltafestingum. | |
1.5.7 |
Belti skulu hvergi liggja utan í einhverju sem getur valdið skemmdum á þeim. | |
1.6 |
Skylt er að nota armólar eða glugganet. | |
1.6.1 |
Glugganet skulu vera FIA viðurkennd til akstursíþrótta. | |
1.6.2 |
Armólar skulu festar neðan við olnboga og vera losanlegar með öryggisbelti. | |
2 |
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR | |
2.1 |
Ökutæki skal skráð hjá Samgöngustofu. | |
2.1.1 |
Heimilt er að ökutæki sé tímabundið skráð úr umferð hjá Samgöngustofu. | |
2.2 |
Þegar ökutæki er skráð í umferð hjá Samgöngustofu skal það hafa gilda skoðun og vátryggingu. | |
2.3 |
Þegar ökutæki er skráð í umferð hjá Samgöngustofu skal það hafa tryggingarviðauka til keppna og æfinga. | |
2.4 |
Ökutæki sem tímabundið er skráð úr umferð hjá Samgöngustofu skal hafa gildan tryggingarviðauka eða ígildi hans | |
2.5 |
Prófílgrind skal vera í öllum tækjum að lágmarki tveir þriðju af hjólhafi bíls (lengd milli hjóla), eða úr fjöldaframleiddum bíl. | |
2.5.1 |
Prófílgrindin skal vera að lágmarki 40x80mm prófíll með 3mm veggþykkt | |
2.6 |
Stýrisgangur skal vera beintengdur með stýrismaskínu. | |
2.7 |
Æskilegt er að fjarlægja rúður og ljós úr tækjum á meðan keppni stendur. | |
3 |
DEKK | |
3.1 |
Bannað er að skera heila kubba úr dekkjum. | |
3.2 |
Hjólbarðar skulu vera löglegir og D.O.T merktir. | |
3.3 |
Leyfilegt er að skera í dekk en ekki breiðari skurði en 10mm og skal þá brún yfir næsta skurð vera 10mm eða meira. | |
3.4 |
Keðjur, álspyrnur eða hver sá aukahlutur á dekk til að auka grip er ekki leyfður. | |
4 |
ORKUGJAFI | |
4.1 |
Eldsneyti skal vera bensín, diesel eða annar orkugjafi samþykktur í almennri umferð. | |
5 |
NITROUS OXIDE - NÍTRÓ Noktun nítrókerfa er heimil ef farið er eftir þessum reglum: | |
5.1 |
Einungis fjöldaframleidd kerfi sem sett eru upp samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda eru lögleg. | |
5.2 |
Nítró flaska skal tryggilega fest með tveimur stálfestingum að lágmarki 2,5x25mm og skulu ná utanum alla flöskuna. | |
5.3 |
Óheimilt er að staðsetja nítróflösku í vélarrúmi. | |
5.4 |
Stútur flöskunnar skal vísa frá ökumanni eða hafa hlíf frá tengingum hennar sem skulu að lágmarki vera úr 2mm stáli eða 4mm áli. | |
5.5 |
Nítró flaskan skal staðsett með þeim hætti að hún verði ekki fyrir skemmdum eða höggi við veltu. | |
5.6 |
Allar nítróslöngur skulu vera hannaðar til að þola að lágmarki 3000psi. | |
5.7 |
Allar nítróslöngur skulu vera tryggilega festar. | |
5.8 |
Kerfið má ekki ræsa í gegnum negatíva rafmagnstengingu. | |
5.9 |
Kerfið má ekki vera virkt nema straumur sé á kveikjukerfi. | |
5.10 |
Kerfið verður að hafa sér rofa fyrir ökumann þar sem kyrfilega er merkt að kveikt sé á því NOS On/Off. | |
5.11 |
Kerfið má einungis vera virkt við botngjöf. | |
5.12 |
Kerfið má einungis vera virkt yfir 2000 snúningum á motor (2000 rpm). | |
5.13 |
Lokuð ökutæki verða að hafa FIA/SFI samþykkt slökkvikerfi með minnst einum stút sem vísar að ökumanni og einum sem vísar að mótor. | |
5.14 |
FIA/SFI viðvörun merkt NOS, græn með hvítum stöfum, skal vera staðsett aftan á ökutæki með nítrókerfi. | |
5.15 |
Flöskuhitari skal framleiddur af viðurkenndum aðila og frá honum gengið samkvæmt leiðbeiningum. | |
5.16. |
Þrýstimælir fyrir nítró er skylda í bifreiðum með flöskuhitara. | |
6 |
RAFKERFI | |
6.1 |
Rafgeymir skal vera þurrgeymir og tryggilega festur að ofan og neðan. | |
6.2 |
Plús á geymir skal vera með plasti eða öðrum efnum sem leiða ekki. | |
6.3 |
Allir kaplar skulu tryggilega festir. | |
6.4 |
Höfuðrofi skal vera staðsettur þannig að ökumaður nái örugglega til hans þegar hann er spenntur í belti. | |
6.5 |
Annar höfuðrofi eða vírtengdur ádrepari skal staðsettur aftan á ökutæki. | |
6.6 |
Ádrepari skal vera skilmerkilega merktur með bláum þríhyrningi með rauðri eldingu inn í honum. | |
6.7 |
Ekki skal vera hægt að ræsa sjálfskiptu tæki nema í P og N. | |
6.8 |
Beinskipt ökutæki skulu hafa startrofa tengdan við kúplingsfetil svo ekki sé hægt að starta nema stíga að fullu á fetilinn. | |
7 |
ÖKUMANNSRÝMI | |
7.1 |
Hvalbakur eða sambærileg hlið sem skilur ökumann frá mótor, olíu og vatnskælum er skylda til að varna því að óæskilegir vökvar fari i ökumannsrými. | |
7.2 | ||
7.3 |
Í götubílum skal farþegasæti vera við hlið ökumannssætis. Gerð farþegasætis er frjáls en skal vera í venjulegri stærð. | |
7.4 |
Baksýnisspegill er skylda. | |
8 |
ÖKUMANNSSÆTI | |
8.1 |
Sæti skal vera keppnisstóll og vera með götum fyrir 5 punkta belti. | |
8.2 |
Sæti skal tryggilega fest og bak sætis verður að hvíla á þverstífu veltibúrs eða fest á sambærilegan hátt. | |
8.3 |
Sæti á sleða er ekki leyfileg. | |
8.4 |
Sætisbak skal vera nægilega hátt til þess að hylja 2/3 af hjálmi ökumanns. | |
8.5 |
Hliðarstuðningur fyrir hjálm skal festur á sæti eða á festingar aftan við sæti. Lágmarks þykkt skal vera 3mm álplata eða 3mm stálplata. | |
8.6 |
Hliðarstuðningur skal vísa fram um minnst 20cm frá sætisbaki og skal vísa ekki minna en 75° og þannig að ekki sé hætta á að hlífin skemmi hjálm við venjulega noktun. | |
8.7 |
Fjarlægð frá hjálmi að hlíf má ekki vera meiri en 10 cm. | |
8.8 |
Hlífin verður að vera soðin föst eða boltuð með minnst 2x M8 boltum á hvorri hlið. | |
8.9 |
Notast má við samþykkt FIA/SFI sæti með stuðningi fyrir hjálm i stað hliðarhlífar. | |
8.10 |
Fjarlægð frá efsta punkti hjálms og upp í veltibúr skal að lágmarki vera 10 cm. | |
9 |
VELTIBÚR | |
9.1 |
Öll keppnistæki skulu hafa að lágmarki sex punkta veltibúr og grindar eða burðarvirkistengt. | |
9.2 |
Veltibúr skal hannað þannig að það verji ökumann úr öllum áttum. | |
9.3 |
Heil og óskemmd heildregin stálrör með að lágmarki 350 N/mm2 eru skylda. Einnig má nota Docol R8 (eða sambærileg) rör með saum. | |
9.4 |
Ál, ryðfrítt stál eða Chromemoly stál er ekki leyft. | |
9.5 |
Lágmarks stærð röra skal vera 2,5x45mm eða 2x50mm. | |
9.6 |
Engin beygja á röri í búrinu má vera minna en 3x sverleiki. | |
9.7 |
Allar suður skulu vera hágæða suður og ekki má slípa yfirborð þeirra. | |
9.8 |
Lágmarkskröfur í hönnun veltibúrs (sjá nánar á “demo“ teikningu). | |
9.8.1 |
Heill aðalbogi frá annari hlið ökutækis að hinni hlið þess. | |
9.8.2 |
Aðalbogi skal vera staðsettur innan 75 – 105 gráður(+/- 15 gráður lóðrétt). | |
9.8.3 |
Heill frambogi frá annari hlið ökutækis að hinni hlið eða heilir hliðarborgar sem tengja aðalboga og framboga saman. | |
9.8.4 |
Stífur frá aðalboga að ofan og í afturhorn bifreiðar með að lágmarki 40-80 gráðu horni. | |
9.8.5 |
Kross í aðalboga eða í afturstífum. (Ökutæki smíðuð eftir 01.01.2006 skulu hafa þennan kross í aðalboga). | |
9.8.6 |
Ef veltibúr er breiðara en 100 cm, skal staðsetja lóðrétt rör frá miðju aðalboga og niður í kross í aðalboga. | |
9.8.7 |
“V“ eða “X“ rör í top veltibúrs. | |
9.8.8 |
Rör sem tengir hægri og vinstri hlið aðalboga saman, staðsett eins neðarlega og kostur er á í grind eða burðavirki. | |
9.8.9 |
Rör sem tengir saman framaðalboga, eins neðarlega og kostur er að framan og við miðju í aðalboga. | |
9.8.10 |
Lágmarksbreidd veltibúrs er 100cm. | |
9.8.11 |
Lágmarksfjarlægð frá miðju bílstjórasæti og að ytri brún veltibúrs er 40cm (mælt í axlarhæð). | |
10 |
ÞAKPLATA | |
10.1 |
Öll keppnistæki skulu hafa plötu festa yfir topp veltibúrs. | |
10.2 |
1mm stálplata soðin á búrið, 2mm stálplata boltuð með M8 boltum með ekki meira en 50cm bili eða 3mm ál plötu boltaða með M8 boltum með ekki meira en 50cm bili. | |
10.3 |
Ef platan er boltuð þá skulu festingar soðnar í búrið. | |
10.4 |
Ekki má bora í veltibúr. | |
10.5 |
Lágmarksstærð þakplötu er 0,75m2. | |
11 |
DRÁTTARAUGU | |
11.1 |
Dráttaraugu skulu vera að framan og aftan og með minnst 35mm gati. | |
11.2 |
Einnig skal vera gert ráð fyrir að hægt sé að hífa ökutæki að ofan og má það vera í gegnum veltibúr. | |
11.3 |
Dráttaraugu skulu vera auðkennd með skærum lit. | |
12 |
AUKAHLUTIR | |
12.1 |
Allir aukahlutir (slökkvitæki, fánar, vindskeiðar og þess háttar) skulu tryggilega festir og þannig frá þeim gengið að þeir geti ekki valdið ökumanni, starfsmönnum eða áhorfendum hættu. |