Reglur > Keppnisgreinarreglur fyrir spyrnu 2022

Útgáfudagur 20.11.2021
Bera saman við aðra útgáfu
GREIN 1 ALMENNT
GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1

Reglur þessar gilda fyrir allar spyrnukeppnir

1.1.1.a

Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.

1.1.2

Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinarreglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3

Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og keppnisreglum- eða Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.

GREIN 2 SKRÁNING
GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN
2.1.1

Keppendum er heimilt að skrá sig mörgum sinnum í hvern flokk í hverri keppni.

2.1.2

Ekki er heimilt að fleiri en einn ökumaður keppi á sama ökutæki í hverri keppni.

2.1.2.a

Hver ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í hverjum flokki.

GREIN 2.2 ÖKUTÆKI
2.2.1

Hvert ökutæki má aðeins nota í einum flokk í hverri keppni.

2.2.2

Ökutæki verður að uppfylla allar kröfur þess flokks sem það er notað í.

2.2.3

Ekki er heimilt að skipta um ökutæki eftir að tímatökum er lokið

2.2.3.a

Sé skipt um ökutæki í tímtökum gilda einungis þeir tímar sem settir eru á því ökutæki sem keppandi ætlar að nota í keppinni

2.2.4

Keppnisstjórn er heimilt að færa keppendur um flokk fram að ræsingu fyrstu ferðar í útslætti.

GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 3.1 BRAUTIN
3.1.1

Kvartmílubraut

3.1.1.a

Brautin skal vera 1/4 úr mílu eða 402,336 metrar

3.1.2

Áttungsmíla / Götuspyrna

3.1.2.a

Brautin skal vera 1/8 úr mílu eða 201,168 metrar

3.1.3

Sandspyrna

3.1.3.a

Brautin skal vera 100 yardar eða 91,44 metrar

3.1.4

Braut skal mæld frá Stage geisla að marklínu

3.1.4

Eftirfarandi er mælt með að sé til staðar á svæðinu

3.1.4.a

Klósett

3.1.4.b

Neyðarsturta

3.1.4.c

Vatnskranar

3.1.4.d

Rafmagn

3.1.4.e

Fjarskiptabúnaður (símar, talstöðvar osfrv.)

3.1.4.f

Stjórnstöð

3.1.4.g

Sjoppa / veitingar

3.1.4.h

Slökkvitæki

3.1.4.i

Verðlaunapallur

3.1.4.j

Hátalarakerfi

3.1.4.k

Aðstaða fyrir áhorfendur

GREIN 3.2 KEPPNIN
3.2.1

Keppandi verður að fara eina tímatökuferð til að komast í uppröðun og hljóta stig ef við á.

3.2.2

Í keppni mælist brautartími upp á 1/1000 úr sek.

3.2.3

Keppandi sem skráir sig í flokk sem ekki næst þátttaka í ekur tímatöku í þeim flokki sem gildir í útslátt og fær mætingarstig sbr. gr. 3.5.1.c.

3.2.3.a

Hann má þá færa sig í annan flokk sem hann er löglegur í.

3.2.3.b

Honum er heimilt að reyna við met í þeim flokki er hann skráði sig í, en það skal þá framkvæmt eftir að öll úrslit eru ráðin.

3.2.3.c

Tímar hans í þeim flokki er hann keppir í gilda ekki til meta í fyrr skráða flokknum.

3.2.4

Að lokinni ferð skulu keppendur yfirgefa brautina strax, á til baka braut og fara í pitt. Hámarkshraði á henni er 35 km.

3.2.5

Falli keppandi úr keppni vegna bilana eða annars heldur hann stigum og sæti úr þeim riðlum sem lokið er, og seinna sætinu á móti þeim keppanda í riðlinum sem hann lauk ekki við.

3.2.6

Mæti mótaðili ekki á ráslínu á tilteknum tíma skal keppandi ljúka sinni ferð. Komi mótaðili ekki í seinni ferð hefur keppandi rétt til að ljúka ferðinni, aðeins ef um úrslit er að ræða um 1. og 2. sætið.

3.2.7

Sé um staka ferð að ræða telst keppandi sigurvegari hafi hann stillt sér rétt upp fyrir eigin vélarafli og fengið merki um að fara af stað.

3.2.8

Öllum öðrum en keppnisstjórn er óheimilt að vera í stjórnstöð meðan á keppni stendur, nema keppnisstjórn heimili það s.s. fjölmiðlamönnum eða fólki sem kann að vera kvatt til sérstakra starfa þar.

3.2.9

Keppnisstjórn er ekki skylt að gefa upp stöðu eða brautartíma keppanda nema í gegnum hátalarakerfið, keppandi láti aðstoðarfólk sitt hlusta eftir upplýsingum.

GREIN 3.3 PITTURINN
3.3.1

Afmarka skal svæði fyrir pitt þar sem ökutæki skulu vera á milli þess sem þau keppa.

3.3.2

Pittsvæðið skal vera vel merkt og staðsett þannig að frá því sé auðvelt að komast á og af brautinni.

3.3.3

Inn- og útkeyrsla af pittsvæði skal merkt með skýrum hætti.

3.3.4

Pittur skal vera það stór að þar sé pláss fyrir öll keppnistæki, alla keppendur, ökumenn, þjónustuliða, brautarstarfsmenn, gesti o.s.frv.

3.3.5

Innan pittsins skal afmarka einn reit fyrir hvert ökutæki og þjónustulið þess sem það hefur til afnota.

3.3.6

Keppandi skal hafa dúk undir ökutækinu þar sem það er staðsett í pittnum.

3.3.6

Spól er stranglega bannað á pittsvæði.

3.3.7

Á pittsvæði er 15 km/klst hámarkshraði og skal aka þar með fyllstu gát.

GREIN 3.4 SKOÐUN
3.4.1

Ökumaður skal vera við ökutæki sitt meðan skoðun fer fram. Við skoðun skal keppnisgalli og allur persónulegur öryggisbúnaður vera til staðar.

3.4.2

Skoðunarmaður skal skoða ökutæki með hliðsjón af flokkaskráningu og færa viðkomandi ökutæki um flokk eða visa frá keppni uppfylli ökutæki ekki flokka- og öryggisreglur.

3.4.3

Óskráð ökutæki skulu vera með vottorð frá skoðunarstöð um bremsur og stýrisgang.

3.5 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA
3.5.1

Útsláttur

3.5.1.a

Keppnisstig: 1. sæti 90 stig / 2. sæti 70 stig / 3.-4. sæti 50 stig / 5.-8. sæti 30 stig / 9.-16. sæti 10 stig.

3.5.1.b

Tímatökustig: 1. Sæti 16 stig / 2. Sæti 15 stig / 3. Sæti 14 stig / 4. Sæti 13 stig / 5. Sæti 12 stig / 6. Sæti 11 stig / 7. Sæti 10 stig / 8. Sæti 9 stig / 9. Sæti 8 stig / 10. Sæti 7 stig / 11. Sæti 6 stig / 12. Sæti 5 stig / 13. Sæti 4 stig / 14. Sæti 3 stig / 15. Sæti 2 stig / 16. Sæti 1 stig.

3.5.1.c

Mætingarstig: 10 stig

3.5.1.d

Mæting í allar keppnir: 31 stig

3.5.1.e

Íslandsmet: 5 stig

3.5.2

Second chance útsláttur

3.5.2.a

Keppnisstig: 1. sæti 90 stig / 2. sæti 70 stig / 3. sæti 55 stig / 4. sæti 45 stig / 5.-6. sæti 35 stig / 7.-8. sæti 25 stig / 9.-12. sæti 15 stig / 13.-16. sæti 5 stig /

3.5.2.b

Tímatökustig: 1. Sæti 16 stig / 2. Sæti 15 stig / 3. Sæti 14 stig / 4. Sæti 13 stig / 5. Sæti 12 stig / 6. Sæti 11 stig / 7. Sæti 10 stig / 8. Sæti 9 stig / 9. Sæti 8 stig / 10. Sæti 7 stig / 11. Sæti 6 stig / 12. Sæti 5 stig / 13. Sæti 4 stig / 14. Sæti 3 stig / 15. Sæti 2 stig / 16. Sæti 1 stig.

3.5.2.c

Mætingarstig: 10 stig

3.5.2.d

Mæting í allar keppnir: 31 stig

3.5.2.e

Íslandsmet: 5 stig

3.5.3

Stig til meistara er ekki hægt að taka með sér á milli flokka

GREIN 4 Íslandsmet
4.1

Met eru aðeins gild séu þau sett í ferð sem keyrð er í tímatöku eða útslætti keppni

4.2

Tæki sem setur nýtt met skal fært til flokkaskoðunar og standast hana athugasemdalaust svo metið teljist gilt

4.3

Styðji keppandi ekki nýtt met í keppni getur keppnisstjóri heimilað 2 stuðningsferðir í lok keppni

4.4

Stuðningstími skal vera 1% frá nýjum tíma. Fari keppandi 2 ferðir undir gildandi meti og þær eru ekki innan við 1% frá hvorri annari þá gildir betri tíminn eða meiri hraðinn sem stuðningur við lélegri tímann og/eða minni hraðann

4.5

Í sandspyrnu er stuðningstími 2% frá fyrra meti

4.6

Öll met eru reiknuð upp á 1/1000 úr sek, en hraðamet upp á 1/100 Km/klst

4.7

Séu tveir keppendur jafnir upp á 1/1000 úr sek í sömu keppni skráist metið á þann er mældist á meiri hraða í þeirri ferð er metið var sett. Sé enn jafnt gildir metið sem var fyrr sett.

4.8

Sé metið jafnað skal sá eiga það er fyrr setti það

4.9

Ef tveir eru jafnir með hraðamet þá á sá metið er fór á bestum tíma í viðkomandi ferð

4.10

Hraðamet eru óháð tímametum

4.11

Aðeins eitt tímamet og eitt hraðamet er skráð fyrir hvern flokk í lok hverrar keppni

GREIN 5 ÖRYGGISMÁL
GREIN 5.1 Almennt
5.1.1

Keppandi ber ábyrgð á að vera rétt útbúinn skv. reglum, jafnframt eru þeir á eigin ábyrgð í keppni og á keppnissvæði keppnishaldara.

5.1.2

Allir ökumenn skulu hafa keppnishjálma þegar þeir keyra í braut

5.1.3

Keppnistækjum og ökumönnum er skylt að uppfylla öll öryggisatriði sem koma fram í nýjustu útgáfu FIA drag racing technical regulations and race procedures kafla 8 (GENERAL REGULATIONS þær byrja á blaðsíðu 100 í reglunum) sem má finna á heimasíða AKÍS og FIA

5.1.4

Reglur um öryggisatriði ná til kvartmílu, áttungsmílu, götuspyrnu og sandspyrnu.

5.1.4.a

Öryggiskröfur í sandspyrnu miðast út frá kvartmílutímum svohljóðandi: 6,49=13,49, 5,49=11,49 og 4,49=9,99 Ekki eru gerðar frekari öryggiskröfur í sandspyrnu en gerðar eru fyrir 8.50sek í kvartmílu.

5.1.4.b

Undanþágu frá reglum um veltiboga fá bílar sem eru árgerð 2008 og nýrri. Það er í samræmi við reglur sem gilda hjá NHRA IHRA og UK Dragracing. Þessir bílar eru taldir nægjanlega öruggir frá framleiðanda til að mega aka niður í 9.99 sek. Þetta á ekki við um bíla með blæju og T-top. Þessir bílar verða að vera á DOT dekkjum og allur upprunalegur öryggisbúnaður verður að vera til staðar og virkur t.a.m. ABS og allir loftpúðar.

5.1.5.

Bílar sem þurfa veltibúr samkvæmt spyrnureglum FIA skulu hafa gilda AKÍS vottun á veltibúrinu, AKÍS vottuð veltibúr annara keppnisgreina gilda einnig að 8,50 sek í kvartmílu.

5.1.5.a.

Bílar sem keyra hraðar en 8,50 sek kvartmílu (5,35 í 1/8) þurfa AKÍS vottun samkvæmt viðeigandi SFI staðli og þá skal heiti staðalsins og leyfileg tímamörk skráð í skoðunarvottorð búrsins og á límmiða á veltibúrinu.

5.1.5.b.

Aki keppandi hraðar en vottun veltibúrs/grindar segir til um ber keppnishaldara að tilkynna keppandanum um brotið og skrá athugasemd í skoðunarskýrslu bílsins. Keppandi skal þá gera úrbætur og fá hraðari vottun fyrir næstu keppni eða aka hægar.

5.1.5.c.

Aki keppandi meira en 0,200 sek hraðar en vottun leyfir varðar það brottvísun úr keppni.

GREIN 5.2 ÖRYGGISBÚNAÐUR VIÐ BRAUTINA
5.2.1

Slökkvitæki skulu staðsetti í rásmarki, pitti og við enda brautarinnar

5.2.2

Öryggisbíll með slökkvitækjum og fyrstu hjálpar búnaði skal staðsettur í rásmarki

GREIN 5.3 ÖRYGGISFULLTRÚI
5.5.1

Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

5.5.2

Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

5.5.3

Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu til AKÍS um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

5.5.4

Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild á að óhappi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.

5.5.4.a

Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 6 KEPPNISFLOKKAR
GREIN 6.1 Spyrna
6.1.1

DS flokkur (DS)

6.1.1.1

Vegalengd sem keyrð er áttungsmíla

6.1.1.2

Uppröðun skv. Progressive ladder fyrirkomulagi

6.1.1.3

Ræst er á jöfnu með Pro tree ljósum

6.1.1.4

Eingöngu fyrir hurðabíla (door slammer)

6.1.1.5

Allar tjúnningar og breytingar leyfðar.

6.1.2

OF flokkur (OF)

6.1.2.1

Vegalengd sem keyrð er áttungsmíla

6.1.2.2

Uppröðun skv. Progressive ladder fyrirkomulagi

6.1.2.3

Tímamark er reiknaður kennitími ökutækis.

6.1.2.4

Ræst með mismun á kennitíma með Full tree ljósum

6.1.2.5.a

Allar vélar og vélastillingar eru leyfilegar.

6.1.2.5.b

Allir gírkassar og skiptingar eru leyfilegar.

6.1.2.5.c

Allir aflaukar eru leyfilegir.

6.1.2.6.a

Allt bensín og alkóhól er leyfilegt.

6.1.2.6.b

Nitro er leyfilegt.

6.1.2.7

Allar breytingar leyfilegar.

6.1.2.8

Kennitími:

6.1.2.8.a

Keppnistæki fær kennitíma í fyrstu keppni sem tækið mætir í.

6.1.2.8.a.i

Eftir það heldur það sama kennitíma svo framarlega að ekki sé skipt um mótor og þyngd haldist innan skekkjumarka upp á +- 50lb

6.1.2.8.b

Ákvarðaður er kennitími fyrir hvert keppnistæki sem tekur mið af þyngd, slagrými og reiknuðum aflstuðli fyrir hverja kúbiktommu vélar. Aflstuðull er fundinn með eftirfarandi reikniformúlu: (2,5 – (slagrými / 1000)) Hestöfl eru fundin með eftirfarandi reikniformúlu: (aflstuðull * slagrými) = ((2,5 – (slagrými / 1000)) eða (NA er 2,3( slagrými /920) * slagrými) Kennitími eru fundinn með eftirfarandi reikniformúlu: (þyngd / hestöfl) ^ (1/3) * 3,67

6.1.2.8.c

Reiknivél fyrir index má finna hér: http://foo.is/calc/of-index-2018tillaga.html

6.1.2.8.d

Fari keppnistæki meira en 0,100 sek niður fyrir reiknaðan kennitíma í keppni þá lækkar kennitíminn í næstu ferð um þann tíma sem er umfram 0,100 sek. Kennitími lækkar varanlega í hvert sinn sem farið er undir 0,100 sek undir kennitíma:

6.1.3

J flokkur (JS JM JM/A) Junior Dragster flokkur

6.1.3.a

Sjá Specific Regulations for FIA Drag Racing - Section 1

6.1.3.1

Vegalengd sem keyrð er áttungsmíla

6.1.3.2

Uppröðun skv. second chance fyrirkomulagi

6.1.3.3

Aldursmark í flokknum er 12 ára á árinu til 18 ára á árinu.

6.1.3.4

Tímamark er valinn kennitími keppanda þó ekki undir sett lágmark m.v. aldur

6.1.3.5

Ef keyrt er undir kennitíma/tímamark tapast ferð

6.1.4

T flokkur

6.1.4.a

Keppnishaldari velur vegalengd sem keyrð er

6.1.4.b

Uppröðun skv. second chance fyrirkomulagi

6.1.4.1

T/G flokkur

6.1.4.1.a

Tímamark er í flokknum; kvartmíla: 13,90 sek.; áttungsmíla: 8,70 sek.

6.1.4.1.b

Ræst er á jöfnu með Full tree ljósum

6.1.4.1.c

Ef keyrt er undir tímamark tapast ferð

6.1.4.1.d

Hjálpartæki: Throttle stop og álíka búnaður er bannaður

6.1.4.2

T/F flokkur

6.1.4.2.a

Tímamark er í flokknum; kvartmíla: 12,90 sek.; áttungsmíla: 8,10 sek.

6.1.4.2.b

Ræst er á jöfnu með Full tree ljósum

6.1.4.2.c

Ef keyrt er undir tímamark tapast ferð

6.1.4.2.d

Hjálpartæki: Throttle stop og álíka búnaður er bannaður

6.1.4.3

T/E flokkur

6.1.4.3.a

Tímamark er í flokknum; kvartmíla: 11,90 sek.; áttungsmíla: 7,50 sek.

6.1.4.3.b

Ræst er á jöfnu með Full tree ljósum

6.1.4.3.c

Ef keyrt er undir tímamark tapast ferð.

6.1.4.3.d

Hjálpartæki: Throttle stop og álíka búnaður er bannaður

6.1.4.4

T/D flokkur

6.1.4.4.a

Tímamark er í flokknum; kvartmíla: 10,90 sek.; áttungsmíla: 6,90 sek.

6.1.4.4.b

Ræst er á jöfnu með Full/Pro tree ljósum

6.1.4.4.c

Ef keyrt er undir tímamark tapast ferð.

6.1.4.4.d

Hjálpartæki: Throttle stop og álíka búnaður er bannaður

6.1.4.5

T/C flokkur

6.1.4.5.a

Tímamark er í flokknum; kvartmíla: 9,90 sek.; áttungsmíla: 6,30 sek.

6.1.4.5.a

Ræst er á jöfnu með Full/Pro tree ljósum

6.1.4.5.a

Ef keyrt er undir tímamark tapast ferð.

6.1.4.5.a

Hjálpartæki: Throttle stop og álíka búnaður er bannaður

6.1.4.6

T/B flokkur

6.1.4.6.a

Tímamark er í flokknum; kvartmíla: 8,90 sek.; áttungsmíla: 5,70 sek.

6.1.4.6.b

Ræst er á jöfnu með Full/Pro tree ljósum

6.1.4.6.c

Ef keyrt er undir tímamark tapast ferð.

6.1.4.6.d

Hjálpartæki: Throttle stop og álíka búnaður er bannaður

6.1.4.7

T/A flokkur

6.1.4.7.a

Tímamark er valinn kennitími keppanda.

6.1.4.7.b

Ræst með mismun á kennitíma með Full tree ljósum

6.1.4.7.c

Ef keyrt er undir valinn kennitíma tapast ferð.

6.1.4.7.d

Allar breytingar leyfilegar.

GREIN 6.2 Götuspyrna
6.2.a

Vegalengd sem keyrð er áttungsmíla

6.2.b

Uppröðun skv. Second chance fyrirkomulagi

6.2.c

Ræst er á jöfnu með Pro tree ljósum

6.2.1

Bílar 4cyl (4)

6.2.1.1

Bílar með hámark 4 stokka vél eða Wänkel vél og drif á einum ás.

6.2.1.2

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.

6.2.1.3

Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.

6.2.1.4

Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

6.2.2

Bílar 6cyl (6)

6.2.2.1

Bílar með hámark 6 stokka vél og drif á einum ás.

6.2.2.2

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.

6.2.2.3

Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.

6.2.2.4

Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

6.2.3

Bílar 8cyl+ (8+)

6.2.3.1

Bílar með 8 til 12 strokka vél og drif á einum ás.

6.2.3.2

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað, að dekkjum undanskildum.

6.2.3.3

Allir hjólbarðar leyfðir.

6.2.3.4

Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

6.2.4

Bílar 8cyl (8)

6.2.4.1

Bílar með hámark 8 strokka vél og drif á einum ás.

6.2.4.2

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.

6.2.4.3

Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.

6.2.4.4

Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

6.2.4.5

Allir aflaukar (poweradder) bannaðir. Þ.e. blásarar, túrbínur, nítró o.þ.h.

6.2.4.6

Eingöngu eru leyfð dekk sem ætluð eru fyrir götunotkun.

6.2.4.6.a

Slikkar bannaðir, bæði diagonal og radial.

6.2.4.6.b

Dæmi um dekk sem eru bönnuð:

6.2.4.6.b.i

Mickey Thompson ET Street SS

6.2.4.6.b.ii

Toyo R888

6.2.4.6.b.iii

Önnur sambærileg dekk.

6.2.5

Bílar 4x4 (X)

6.2.5.1

Bílar með drif á tveimur ásum.

6.2.5.2

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.

6.2.5.3

Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.

6.2.5.4

Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

6.2.6

Jeppaflokkur (J)

6.2.6.1

Jeppar og pallbílar.

6.2.6.2

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð.

6.2.6.2.a

Ökutæki skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.

6.2.6.3

Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.

6.2.6.4

Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

6.2.6.5

Virkt fjórhjóladrif skal vera til staðar í bílum skráðum undir 2000 kg.

6.2.7

Rafmagnsbílar (EV)

6.2.7.1

Bæði fyrir EV og Hybrid bíla.

6.2.7.2

Drifrásir leyfðar á einum eða tveimur ásum

6.2.7.3

Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.

6.2.7.4

Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.

6.2.7.4.a

Hjólbarðar að framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal.

6.2.8

HB flokkur (HB)

6.2.8.1

Eingöngu fyrir hurðabíla (Door Slammer)

6.2.8.2

Allar tjúnningar og breytingar leyfðar.

6.2.9

Opinn flokkur (OF)

6.2.9.1.a

Allar vélar og vélastillingar eru leyfilegar.

6.2.9.1.b

Allir gírkassar og skiptingar eru leyfilegar.

6.2.9.1.c

Allir aflaukar eru leyfilegir.

6.2.9.2.a

Allt bensín og alkóhól er leyfilegt.

6.2.9.2.b

Nitro er leyfilegt.

6.2.9.3

Allar breytingar leyfilegar.

GREIN 6.3 Sandspyrna
6.3.1

Fólksbílar. (F)

6.3.1.1

Fjöldaframleidd fólksbifreið með drif á einum ás.

6.3.1.2

Ótakmarkaðar breytingar á vél

6.3.1.3

Allir boddýhlutir skulu vera á ökutæki, upprunalegur eldveggur á upprunalegum stað.

6.3.1.4

Innrétting skal vera til staðar nema í bílum með veltibúr eða boga.

6.3.1.5

Óheimilt er að breyta hjólskálum. (többa)

6.3.1.6

Hæðarmunur fremst og aftast á sílsa má ekki vera meiri en 10cm.

6.3.1.7

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir óbreytta brettabrún.

6.3.1.8

Hámarks dekkjastærð 33". Skófludekk bönnuð.

6.3.2

Útbúnir Fólksbílar. (ÚF)

6.3.2.1

Fjöldaframleidd fólksbifreið með drif á einum ás.

6.3.2.2

Ótakmarkaðar breytingar á vél.

6.3.2.3

Allir boddýhlutir skulu vera á ökutæki, upprunalegur eldveggur á upprunalegum stað.

6.3.2.4

Innrétting skal vera til staðar nema í bílum með veltibúr eða boga.

6.3.2.5

Skófludekk (eða ausudekk) skylda.

6.3.3

Buggybílar. (B)

6.3.3.1

Buggybílar með fjöðrun á öllum hjólum.

6.3.3.2

Hámarks vélarstærð 3000cc.

6.3.3.3

Hámarksþyngd 850kg

6.3.4

Jeppar. (J)

6.3.4.1

Fjöldaframleidd bifreið með drif á tveim ásum öxultengt við vél.

6.3.4.2

Ótakmarkaðar breytingar á vél .

6.3.4.3

Óheimilt er að fjarlægja bretti, vélarhlíf, stuðara, framstykki og ljós

6.3.4.4

Stýri skalvera tengt með vélrænum hætti, tjakkstýrir með vökvarótor bannað, hjálpartjakkar leyfðir.

6.3.4.5

Hjólbarðar skulu ekki standa út fyrir brettakanta.

6.3.4.6

Hjólbarðar skulu vera viðurkenndir og DOT merktir, auka má mynstur en ekki fjarlægja kubba.

6.3.5

Útbúnir jeppar. (ÚJ)

6.3.5.1

Ökutæki með drif á tveim ásum, öxultengt við vél.

6.3.5.2

Vél skal vera bílvél, ótakmarkaðar breytingar.

6.3.5.3

Óheimilt er að fjarlægja hluti af eða úr ökutækjum í keppni.

6.3.5.4

Skófludekk (eða ausudekk) skylda á a.m.k. einum ás.

6.3.6

Sérsmíðuð Ökutæki. (S)

6.3.6.1

Fjöldaframleidd ökutæki með drif á einum ás.

6.3.6.2

Vél skal vera bílvél, ótakmarkaðar breytingar.

6.3.6.3

Endursmíða má hluta ökutækis úr öðrum efnum en upprunalega.

6.3.6.4

Skylt er að hafa alla boddýhluti á ökutæki.

6.3.6.5

Skófludekk (eða ausudekk) skylda.

6.3.7

Opinn flokkur. (O)

6.3.7.1

Sérsmíðuð tæki sem ekki komast í aðra flokka.

6.3.7.2

Ótakmarkaðar breytingar leyfðar á vél.

6.3.7.3

Skófludekk (eða ausudekk) skylda.

GREIN 6.4 Allt flokkur
6.4

Allt flokkur

6.4.1

Skráning í allt flokk fer fram eftir að úrslit liggja fyrir í öllum öðrum flokkum

6.4.2

Raðað er upp í allt flokk eftir tímum út tímatöku

6.4.3

Úrslit ráðast í einni ferð

6.4.4

Sá sem hefur lægri brautartíma hefur brautarval

6.4.5

Aðeins er keppt til fyrstu verðlauna.

6.6

Ökutæki

6.6.1

Öll ökutæki sem skráð voru til keppni geta skráð sig í allt flokk

6.6.2

Allar breytingar eru leyfðar á ökutækjum.

Grein 7 refsingar
7.1

Fari hjól keppnistækis yfir mið/hliðarlínur spyrnubrautar varðar það brottvísun úr keppni, nema í upphitun.

7.2

Snerti hjól keppnistækis hliðarlínur sandspyrnubrautar fær hann aðvörun og tapar ferð. Fari hjól yfir eða snertir ítrekað hliðarlínur varðar það brottvísun úr keppni.

7.3

Þjófstarti ökumaður tapar hann ferðinni.

7.4

Bannað er að viðlagðri brottvísun að aka yfir ráslínu logi rauð ljós á ljósatrénu.

7.5

Heimilt er að útiloka báða keppendur í sömu ferð úr keppni skv. Eftirfarandi:

7.5.1

Þjófstarti ökumaður og mótherji fer yfir brautarmörk er það seinna brotið sem gildir sem útilokun, sá sem þjófstartaði heldur áfram.

7.5.2

Fari einhver hluti hjólbarða alveg yfir markalínu, þá hefur ökutæki farið út fyrir brautarmörk. Fari báðir ökumenn yfir brautarmörk skulu báðir dæmdir úr keppni. Þar sem margar línur ákveða brautarmörk skal sú lína gilda sem næst er braut viðkomandi ökutækis

7.5.3

Sé úrskurðað að ökumaður hafi hemlað ógætilega og misst stjórn á ökutækinu, farið út fyrir brautarmörk og snert vegrið skal hann dæmdur frá keppni. Sama gildir þó ökumaður sé komin yfir endalínu.

7.5.4

Fari ökumaður viljandi yfir brautarmörk til að yfirgefa braut, til að afstýra árekstri eða hann rekst á rusl á brautinni skoðast ekki ástæða til brottvísunar. Eftirfarandi getur varðað brottvísun, sektum og/eða banni:

7.5.5

Árekstur við vegrið eða einhvern annan útbúnað á braut (gúmmíkeilur eru brautarmerkingar og teljast ekki útbúnaður á braut).

7.6

ökumaður dæmdur úr keppni fyrir eitthvað af framantöldu áður en útsláttur hefst er ekki hægt að setja hann í keppni aftur.

7.7

Í flokkum með tímamörkum gilda eftirfarandi reglur.

7.7.1

Sé farið undir uppgefnum kennitíma í útslætti tapar keppandi þeirri ferð, þó eru eftirtaldar undantekningar:

7.7.1.a

Þjófstarti andstæðingur eða fer yfir brautarmörk.

7.7.1.b

Þegar um eitt ökutæki er að ræða.

7.7.1.c

Fari báðir keppendur undir kennitíma, þá vinnur sá er minna fer undir.

7.7.1.d

Fari báðir keppendur jafnmikið undir kennitíma. uppá 1/1000 úr sek. er sá sigurvegari sem hefur betri viðbragðstíma.

Grein 8 Annað
8.1

Einungis keppanda er heimilt að aka keppnistæki. Við gangsetningu ökutækis skal keppandi eða aðstoðarmaður staðsettur í ökumannssæti. Sé verið að ýta eða draga skal haga sér eins og um akstur væri að ræða.

8.2

Hver keppandi má hafa tvo aðstoðarmenn við brautina, en fleiri í pitt.

8.3

Nota má ýtuslá staðsetta þannig að ekki sé mögulegt að aka uppá afturhjól.

8.4

Notkun á talstöðvum milli ökumanns og aðstoðarliðs leyfð. Fjarskiptatæki má aldrei nota til upplýsingaöflunar eða stjórnunar á keppnisbúnaði.

8.5

Keppanda er skylt að vera til aðstoðar við skoðun ökutækis síns og vera tiltækur við keppnistæki sitt á meðan á keppni stendur.

8.6

Aðstoðarlið skal gæta fyllstu varúðar á keppnissvæði. Stuttbuxur og berir fætur bannaðir, skór eru skylda. Keppandi ber ábyrgð á aðstoðarliði sínu.