Reglur > Keppnisgreinarreglur fyrir drift 2025

Útgáfudagur 20.1.2025
Bera saman við aðra útgáfu
GREIN 1 ALMENNT
GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1

Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í drifti.

1.1.1.a

Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.

1.1.2

Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), keppnisgreinareglum FIA, þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3

Gæti misræmis á þessum keppnisgreinareglum og keppnisreglum- eða Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.

GREIN 2 SKRÁNING
GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN
2.1.1

Keppanda er heimilt að skrá sig mörgum sinnum í hvern flokk í hverri keppni.

2.1.2

Hvert ökutæki mega að hámarki tveir ökumenn keyra í sömu keppni.

2.1.2.a

Hvert ökutæki má einungis skrá í einn flokk í hverri keppni.

2.1.2.b

Í opnum flokki má aðeins einn ökumaður aka hverju ökutæki í hverri keppni.

2.1.2.c

Hver ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í hverjum flokki.

2.1.3

Ökumaður skal hafa mætt á að lágmarki eina æfingu á þeirri braut sem keppnin fer fram á. Keppnisstjóra er heimilt að falla frá þessari reglu telji hann ökumann hafa reynslu sem gefur tilefni til þess.

GREIN 2.2 ÖKUTÆKI
2.2.1

Ekki er heimilt að skipta út ökutæki í keppni eftir að skoðun lýkur.

2.2.1.a

Dómnefnd er heimilt að falla frá þessari reglu, að því gefnu að allir keppendur í viðkomandi flokki samþykki breytinguna.

GREIN 3 KEPPNI
GREIN 3.1 ALMENNT
3.1.1

Keppni samanstendur af æfingu, forkeppni og útsláttarkeppni.

3.1.2

Keppandi, ökumaður eða liðstjóri skal alltaf vera við ökutæki meðan keppni fer fram.

3.1.3

Ökumaður má hafa tvo aðstoðarmenn inni á pittsvæði og ber á þeim fulla ábyrgð.

3.1.3.a

Ökumanni í opnum flokki er heimilt að hafa með sér einn leiðbeinanda (e. spotter).

3.1.3.b

Keppnishaldara er heimilt að leyfa fleiri aðstoðarmenn á þeim forsendum sem hann ákveður.

3.1.4

Á meðan á keppni stendur má einungis ökumaður vera í ökutæki með þeirri undantekningu þó að:

3.1.4.a

aðstoðarmaður hans má færa ökutæki á fráteknum svæðum öðrum en keppnisbraut og upphitunarsvæði.

3.1.5

Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA (Appendix L CHAPTER IV - CODE OF DRIVING CONDUCT ON CIRCUITS).

3.1.5.a

Ekki má aka á annað ökutæki.

3.1.5.b

Aki ökutæki á annað ökutæki af ásettu ráði hefur dómnefnd heimild til að vísa því úr keppni.

3.1.6

Þegar ökumaður kemur að rásmarki skal hann vera með spenntan hjálm á höfði, allar rúður lokaðar (nema glugganet sé til staðar), topplúgu lokaða (nema glugganet sé til staðar), öryggisbelti spennt og tilbúinn til aksturs.

3.1.7

Allir ökumenn skulu taka þátt í æfingu en keppnisstjóri getur veitt undanþágu frá æfingum eftir atvikum.

3.1.7.a

Ökumaður í opnum flokki skal að lágmarki hafa tekið þátt í einni æfingu þar sem keyrður var samhliða (e. tandem) akstur.

3.1.7.b

Keppnisstjóra er heimilt að falla frá þessari reglu telji hann ökumann hafa reynslu sem gefur tilefni til þess.

3.1.8

Ökumaður má aldrei aka af stað án leyfis frá ræsi.

3.1.9

Ef ökutæki bilar, skal ökumaður koma því úr aksturslínu sem fyrst, til að forðast leka á vökvum á leið sem gætu valdið hættu.

3.1.10

Á milli pittsvæðis og rásmarks er hámarkshraði 50 km/klst..

3.1.10.a

Keppnisstjóra er heimilt að breyta hámarkshraða á afmörkuðum svæðum krefjist leiðin þess og skal það koma fram á keppendafundi.

3.1.11

Keppendur geta tekið 10 mínútna viðgerðarhlé, einu sinni í hverri keppni.

3.1.11.a

Þetta hlé má eingöngu taka í útsláttarkeppni, ekki í forkeppni.

3.1.11.b

Eingöngu keppnisstjóri getur leyft viðgerðarhlé og metur hann það í hvert skipti hvort það sé nauðsyn.

3.1.11.c

Í viðgerðarhléi sem keppnisstjóri heimilar á milli ferða í einvígi í útsláttarkeppni er óheimilt að skipta um hjólbarða eða eiga við uppsetningu ökutækis.

3.1.11.c.i

Hafi ökutæki lent í árekstri er þó heimilt að skipta um ónýta hjólbarða, hjóla- og fjöðrunarbúnað.

GREIN 3.2 LEIÐIN
3.2.1

Keppnisstjóri skipuleggur leiðina fyrir hverja keppni og skal öryggisfulltrúi samþykkja hana

3.2.2

Leiðin skal innihalda að lágmarki 3 beygjur.

3.2.3

Fyrir akstur í opnum flokki skal setja upp hindrun fyrir leiðandi ökutæki til að hægja á því fyrir upphaf leiðar.

GREIN 3.3 PITTURINN
3.3.1

Afmarka skal svæði fyrir pitt þar sem ökutæki skulu vera á milli þess sem þau keppa.

3.3.2

Pittsvæðið skal vera vel merkt og staðsett þannig að frá því sé auðvelt að komast á og af brautinni.

3.3.3

Inn- og útkeyrsla af pittsvæði skal merkt með skýrum hætti.

3.3.4

Pittur skal vera það stór að þar sé pláss fyrir öll ökutæki, alla keppendur, ökumenn, þjónustuliða, brautarstarfsmenn, gesti o.s.frv.

3.3.5

Innan pittsins skal afmarka einn reit fyrir hvert ökutæki og þjónustulið þess sem það hefur til afnota.

3.3.5.a

Ökumaður skal aka beint í og úr sínu afmarkaða svæði í pittinum og forðast að koma í svæði annarra ökutækja en síns eigin.

3.3.6

Keppandi skal hafa dúk undir ökutæki þar sem það er staðsett í pitti.

3.3.7

Spól er stranglega bannað á pittsvæði.

3.3.8

Á pittsvæði er hámarkshaði 15 km/klst og skal aka þar með fyllstu gát.

GREIN 3.4 SKOÐUN
3.4.1

Ökumaður eða aðstoðarmaður skal vera við ökutæki sitt meðan skoðun fer fram.

3.4.1.a

Við skoðun skal keppnisgalli og allur persónulegur öryggisbúnaður vera til staðar.

3.4.2

Skoðunarmaður skal skoða ökutæki með hliðsjón af flokkaskráningu

3.4.2.a

Skoðunarmaður skal færa viðkomandi ökutæki um flokk eða visa frá keppni uppfylli ökutæki ekki flokkaog öryggisreglur.

3.4.3

Hávaði frá pústi ökutækis skal ekki vera hærri en 105 dB.

3.4.3.a

Hávaðamæling skal framkvæmd í eins meters fjarlægð í 45° horni frá enda pústs.

3.4.3.b

Mæling skal framkvæmd við 4000 sn/mín.

3.4.4

Óskráð ökutæki skal vera með vottorð frá skoðunarstöð um bremsur og stýrisgang.

GREIN 3.5 DÓMARAR
3.5.1

Fyrir keppni gefa keppnisstjóri og dómarar út aksturslínu og áhersluatriði leiðar sem ökumenn skulu fylgja.

3.5.2

Þrír staðreyndadómarar dæma akstur ökutækja, tveir línudómarar og einn dómari sem dæmir bæði gráðu og stíl.

3.5.2.a

Línudómarar gefa stig með tilliti til þess hversu vel ökumanni tekst að halda sig við útgefna aksturslínu.

3.5.2.b

Gráðudómari fylgist með ökutæki alla ferð þess eftir aksturslínunni og gefur stig með tilliti til hversu mikilli gráðu ökumanni tekst að halda ökutæki í miðað við aksturslínu.

3.5.2.c

Stíldómari gefur stig fyrir sérhverja umferð byggt á akstursstíl viðkomandi ökumanns með áherslu á:

3.5.2.c.i

Hvernig ökutæki byrjar skrið;

3.5.2.c.ii

nálægð ökutækis við keilur og/eða aðra hluta leiðar sem ætlast er til að ökutæki sé nálægt.

3.5.3

Að minnsta kosti einn staðreyndadómari skal hafa setið námskeið í dómgæslu á vegum keppnisráðs í drifti.

3.5.3.a

Leitast skal við að sem flestir staðreyndadómaranna hafi setið slíkt námskeið.

3.5.3.b

Staðreyndadómarar velja sér formann úr sínum hóp sem setið hefur námskeið samkvæmt ofansögðu. Hann er forsvarsmaður þeirra þegar þörf er á slíkum.

GREIN 3.6 STIGAGJÖF
3.6.1

Stig skal gefa í heilum tölum.

3.6.1.a

Línudómarar gefa samtals 60 stig fyrir fullkomna ferð.

3.6.1.a.i

Tveir línudómarar skipta akstursleiðinni á milli sín þannig að hvor dæmi sem næst helming hennar.

3.6.1.a.ii

Þó má taka tillit til aðstæðna og lengja hluta annars hvors þannig að sem best dómgæsla fáist.

3.6.1.a.iii

Stig hvors dómara eru í hlutfalli við lengd akstursleiðar sem hvor dæmir (námundað eins og hægt er).

3.6.1.b

Gráðu- og stíldómari gefur 40 stig fyrir fullkomna ferð.

3.6.1.b.i

Það er, allt að 15 stig fyrir jafna gráðu alla akstursleiðina og allt að 5 stig að auki fyrir sem mesta gráðu miðað við aksturslínu.

3.6.1.b.ii

Þá gefur hann allt að 15 stig fyrir flæði í gegnum akstursleiðina og allt að 5 stig að auki fyrir hámarks ákveðni við driftið.

3.6.2

Hver dómari fyrir sig ákveður hvernig hann metur aksturinn hverju sinni innan þess stigaramma sem honum er úthlutað.

3.6.3

Ökumaður getur því fengið allt að 100 stig í hverri ferð.

3.6.4

Ökumaður fær engin stig fyrir ferð ef:

3.6.4.a

Tveir eða fleiri hjólbarðar ökutækis fara út fyrir leið;

3.6.4.b

ökumaður missir skrið og/eða stoppar við akstur leiðar;

3.6.4.c

ökutæki snýst á meðan á akstri leiðar stendur;

3.6.4.d

húdd, skottlok og/eða hurð á ökutæki opnast á meðan á akstri leiðar stendur.

3.6.5

Stigagjöf í einvígi skal vera þannig að:

3.6.5.a

Leiðandi ökumaður skal aka, og vera dæmdur eins og gert er þegar ökutæki er ekið stöku en fær 60% af áunnum stigum fyrir leiðandi ferðina.

3.6.5.b

Eltandi ökutæki skal fylgja leiðandi ökutæki þannig að þau séu sem næst hvoru öðru og spegli hreyfingar hvors annars sem best.

3.6.5.b.i

Stig eru gefin saman af öllum þremur staðreyndadómurunum þannig að allt að 60 stig eru gefin fyrir nálægð við leiðandi ökutæki og allt að 40 stig eru gefin fyrir líkindi hreyfinga. Stigin skal leggja saman og verða þannig allt að 100 stig. Eltandi ökumaður fær 40% af áunnum stigum.

3.6.5.c

Fyrir eina leiðandi ferð og eina eltandi ferð fær ökumaður þannig allt að 100 stig fyrir einvígið.

3.6.5.d

Ökumaður fær engin stig fyrir ferð ef:

3.6.5.d.i

hann veldur árekstri sem hefði verið hægt að forðast, eða rekst á keppinaut sinn og veldur breytingu á skriði hans og/eða snýr honum;

3.6.5.d.ii

rekst á keppinaut sinn og veldur breytingu á skriði hans og/eða snýr honum;

3.6.5.d.iii

hann ekur eltandi ökutæki og tekur fram úr leiðandi ökutæki;

GREIN 3.7 LEIÐBEINANDI/SPOTTER
3.7.1

Leiðbeinandi hefur það hlutverk að leiðbeina ökumanni í gegnum leiðina.

3.7.2

Keppnisstjóri skal fara yfir með leiðbeinendum hvar þeim er heimilt að vera staðsettir á meðan keppni fer fram.

3.7.3

Ökumanni og leiðbeinanda er heimilt að hafa fjarskipti sín á milli.

GREIN 4 KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 4.1 ÆFING
4.1.1

Æfing skal fara fram áður en forkeppni hefst og er keppendum skylt að taka þátt í henni.

4.1.1.a

Keppnisstjóra er heimilt að falla frá þessari reglu telji hann ökumann hafa reynslu sem gefur tilefni til þess.

4.1.2

Keyra skal leiðina sem notuð verður í keppninni og skal ökumaður keyra að lágmarki eina ferð.

GREIN 4.2 FORKEPPNI
4.2.1

Tvær umferðir eru keyrðar í forkeppni en ökumaður þarf ekki að nýta báðar, betri ferðin gildir.

4.2.2

Ef tveir ökumenn eru með jafnmörg stig eftir forkeppni, raðast sá fyrir ofan sem var með fleiri stig í fyrri umferð forkeppninnar.

4.2.3

Ef ökumaður fer ekki ferð í forkeppni, fellur hann úr keppni og er ekki talinn með í bráðabirgða- og lokaúrslitum.

GREIN 4.3 UPPRÖÐUN
4.3.1

Ökumönnum er raðað upp eftir stigafjölda úr forkeppni.

4.3.2

Efstu 8 ökumenn úr forkeppninni raðast upp í útsláttarkeppni.

4.3.2.a

Ökumenn sem ekki ná einu af 8 efstu sætum í forkeppni falla úr keppni.

4.3.3

Ökumönnum skal raða upp í tré eftir sæti í forkeppnni

4.3.3.a

Fyrsta umferð: 1. sæti á móti 8. sæti, 3 sæti á móti 6. sæti, 2. sæti á móti 7. sæti og 4. sæti á móti 5. sæti.

4.3.3.a.i

Í annarri umferð keppa sigurvegarar úr fyrstu umferð: 1/8 á móti 3/6, 2/7 á móti 4/5.

4.3.3.a.ii

Til úrslita keppa sigurvegarar úr annarri umferð og þeir sem tapa keppa um 3. til 4. sæti.

4.3.3.b

Séu færri en 8 ökumenn skal halda sömu uppröðun en sleppa að raða inn þeim sætum sem eru ekki til staðar.

4.3.3.c

Stakir ökumenn þurfa aðeins að aka yfir ráslínu.

GREIN 4.4 ÚTSLÁTTARKEPPNI GÖTUBÍLA- OG MINNI GÖTUBÍLAFLOKKS
4.4.1

Ökumenn hafa 60 sekúndur til að koma sér að rásmarki eftir að þeir eru kallaðir upp.

4.4.2

Ökumenn stilla sér upp á tilgreindum stað fyrir hverja viðureign áður en ræst er.

4.4.3

Í viðureign keyra ökumenn leiðina til skiptis að lágmarki tvær ferðir hvor, í röðinni AB-AB, og byrjar sá sem fékk fleiri stig í forkeppni.

4.4.4

Gefin eru stig samkvæmt grein 3.6.

4.4.5

ökumaður sem fær fleiri stig í ferð sigrar hana.

4.4.5.a

ökumaður sigrar viðureign sem sigrar fleiri ferðir.

4.4.6

Ef um jafntefli er að ræða skal aka aðra ferð.

4.4.6.a

Hafa ökumenn þá rétt á því að fara á viðgerðarsvæði í stutt hlé fyrir hjólbarðaskipti o.þ.h.

GREIN 4.5 ÚTSLÁTTARKEPPNI OPINS FLOKKS
4.5.1

Ökumenn hafa 60 sekúndur til að koma sér að rásmarki eftir að þeir eru kallaðir upp.

4.5.2

Ökumenn stilla sér upp á tilgreindum stað fyrir hverja viðureign áður en ræst er.

4.5.3

Ökumenn keyra leiðina saman, sá sem er stigahærri úr forkeppni byrjar á að leiða og sá sem var lægri í forkeppni eltir, svo skipta þeir í hverri ferð þaðan í frá.

4.5.4

Missi leiðandi ökumaður skrið eða fer út af leið er fylgjandi ökumanni ekki skylt að klára leiðina.

4.5.5

Gefin eru stig samkvæmt grein 3.6.

4.5.6

ökumaður sem fær fleiri stig í einvígi sigrar það.

4.5.6.a

Ef um jafntefli er að ræða skal aka aðra ferð.

4.5.6.a.i

Hafa keppendur þá rétt á því að fara á viðgerðarsvæði í stutt hlé fyrir hjólbarðaskipti o.þ.h.

GREIN 4.6 ÁREKSTUR Í OPNUM FLOKKI
4.6.1

Verði árekstur úrskurða dómarar hvort annar hvor ökumaður beri einn ábyrgð á árekstrinum og hvort ökutæki hafi orðið fyrir skemmdum.

4.6.2

Hafi ökutæki orðið fyrir skemmdum í árekstri fær sá ökumaður sem ekki var ábyrgur fyrir árekstrinum 10 mínútna auka viðgerðarhlé sem nýta skal strax.

4.6.2.a

Dugi 10 mínútur ekki til er keppnisstjóra heimilt að lengja viðgerðarhléið allt fram að næstu umferð.

4.6.2.b

Takist ekki að gera ökutæki ökuhæft í viðgerðarhléinu er ökumanni þess dæmdur sigur í því einvígi.

4.6.2.b.i

Ekki er heimilt að aka ökutækinu frekar í keppninni.

4.6.3

Verði árekstur sem hvorugur ökumaður ber einn ábyrgð á, halda ökumenn áunnum stigum sínum fyrir ferðina.

GREIN 4.7 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA
4.7.1

ökumaður sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.

4.7.1.a

Séu fimm keppnir eða fleiri telja allar keppnir til stiga nema ein.

4.7.2

Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflum.

4.7.2.a

Fyrir úrslit í forkeppni eru gefin:

    1. sæti: 15 stig
    1. sæti: 12 stig
    1. sæti: 10 stig
    1. sæti: 8 stig
    1. til 6. sæti: 6 stig
    1. til 8. sæti: 5 stig
    1. til 12. sæti: 4 stig
    1. til 16. sæti: 3 stig
    1. til 24. sæti: 2 stig
    1. til 32. sæti: 1 stig
4.7.2.b

Fyrir lokaúrslit í úrslitakeppni eru gefin:

    1. sæti: 100 stig
    1. sæti: 88 stig
    1. sæti: 78 stig
    1. sæti: 69 stig
    1. til 8. sæti: 61 stig
4.7.3

Séu tveir eða fleiri keppendur með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabils skal sá teljast Íslandsmeistari sem var ofar í þeirra síðustu innbyrðis keppni.

GREIN 5 ÖRYGGISMÁL
GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNA
5.1.1

Í öllum flokkum

5.1.1.a

Hjálmar skulu uppfylla staðla samkvæmt reglum AKÍS/FIA.

5.1.1.b

Myndavélar eða annar aukabúnaður festur á hjálm eða ökumann á annan hátt er bannaður.

5.1.1.c

Ef keppnistóll er settur í ökutækið er skylda að hafa að lágmarki 5 púnkta öryggisbelti.

5.1.1.c

Skylda er að vera með lambhúshettu úr eldheldu efni sem ber viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).

5.1.1.d

HANS búnaður er skylda í ökutækjum sem búin eru fimm eða sex punkta öryggisbeltum og skal hann vera með viðurkenningu frá FIA (FIA 8858) eða SFI (SFI 3.3).

5.1.1.e

Ef ekki eru hliðarrúður í ökutækinu eða ökumaður hyggst hafa þær opnar, skal hann hafa lokaðan hjálm og armólar eða glugganet.

5.1.2

Í opnum flokki

5.1.2.a

Ökumenn skulu vera í að lágmarki tveggja laga eldheldum heilgalla með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000), SFI (SFI 3.2A/5 eða hærra).

5.1.2.a.i

Ekki má prenta auglýsingar beint á heilgallann eða sauma í hann nema af framleiðanda hans.

5.1.2.b

Fyrir öll hlífðarföt gildir að þau skulu formuð og sniðin þannig að þau skýli vel öllum líkamanum þar á meðal hnakka, ristum og úlnliðum.

5.1.2.d

Undirföt skulu vera úr bómull eða ull.

5.1.2.e

Skylda er að vera í skóm og hönskum úr eldheldu efni sem bera viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).

5.1.2.f

HANS búnaður er skylda og skal hann vera með viðurkenningu frá FIA (FIA 8858) eða SFI (SFI 3.3).

GREIN 5.2 ÖRYGGISBÚNAÐUR VIÐ BRAUTINA
5.2.1

Slökkvitæki skulu staðsett á skilgreindum svæðum við leiðina eða í öryggisbifreið(um) við leiðina þannig að tryggt sé að viðbragð við eldi sé skjótt.

5.2.1.a

Keppnisstjóri skal kynna á keppendafundi hvar slökkvitæki verða staðsett við leiðina.

GREIN 5.3 ÖRYGGISBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.3.1

Ökutæki sem keppa í opnum flokki skulu uppfylla eftirfarandi atriði:

5.3.1.a

Ökutæki skal standast NEZ technical regulation 2020.

GREIN 5.4 FLÖGG OG MERKJAGJÖF
5.4.1

Brautarverðir gefa ökumönnum merki með eftirfarandi flöggum:

5.4.1.a

Grænt flagg: Leiðin er auð og tilbúin fyrir akstur.

5.4.1.b

Gult Flagg: Hætta á leið, keyra skal rólega til baka í pitt.

5.4.1.c

Rautt flagg: Keppni stöðvuð, ökumaður skal stöðva ökutæki undir eins og bíða frekari fyrirmæla.

GREIN 5.5 ÖRYGGISFULLTRÚI
5.5.1

Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

5.5.2

Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

5.5.3

Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu til AKÍS um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

5.5.4

Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild á að óhappi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.

5.5.4.a

Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 6 KEPPNISFLOKKAR
GREIN 6.1 REGLUR SEM GILDA FYRIR ALLA FLOKKA
6.1.1

Dómnefnd er heimilt, að tillögu skoðunarmanns, að færa ökumenn um flokk fram að ræsingu fyrstu ferðar í forkeppni.

6.1.2

Að lágmarki skal vera ein dráttarlykkja til staðar á ökutæki.

6.1.3

Einungis ökutæki með drif á aftari öxli eru leyfileg.

6.1.4

Pallbílar og aðrir jeppar yfir 2000 kg að eiginþyngd eru bannaðir.

6.1.5

Óheimilt er að nota rafmagn sem orkugjafa ökutækis.

6.1.5.a

Hybrid ökutæki eru óheimil.

GREIN 6.2 MINNI GÖTUBÍLAFLOKKUR
6.2.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.2.2

Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð.

6.2.2.a

Keppnisstjori getur þó gefið undanþágu frá þessum reglum vegna tjóns sem hefur orðið í keppninni.

6.2.3

Útfærsla á vél- og drifbúnaði er frjáls.

6.2.3.a

Hámarks afl er 300 hestöfl við hjól samkvæmt aflmælingu viðurkenndri af AKÍS.

6.2.3.b

Dómnefnd er heimilt að láta framkvæma aflmælingu til staðfestingar á hámarks afli telji hún ástæðu til þess.

6.2.3.b.i

Keppandi greiðir fyrir mælinguna reynist afl ökutækisins yfir settu hámarki.

6.2.3.b.ii

Keppnishaldari greiðir fyrir mælinguna reynist afl ökutækisins innan settra marka.

6.2.4

Allar breytingar á stýrisbúnaði eru leyfðar.

6.2.5

Ökumenn mega ekki keyra fleiri en átta keppnir í flokknum.

6.2.5.a

Lendi ökumaður í þremur efstu stigasætum íslandsmótsins í drifti er honum óheimilt að taka þátt í flokknum framar.

6.2.5.a.i

Regla 6.2.5.a. á ekki við ef ökumaður er yngri en 17 ára.

6.2.5.b

Hafi ökumaður keppt í Götubíla- eða Opnum flokki er honum óheimilt að keyra í flokknum.

6.2.6

Hjólbarðar skulu ekki vera breiðari en 225mm.

GREIN 6.3 GÖTUBÍLAFLOKKUR
6.3.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.3.2

Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð.

6.3.2.a

Sé ökutæki ekki á númerum skal keppandi framvísa vottorði fyrir bremsum og stýrisgangi frá viðurkenndri skoðunarstöð.

6.3.3

Hjólbarðar skulu ekki vera breiðari en 245mm.

6.3.4

Séu gerðar breytingar á staðsetningu upprunalegs búnaðar (t.d rafgeymi, bensínkerfi og bensíntanki) í ökutækinu skal fara eftir reglum sem gilda í opnum flokki.

GREIN 6.4 OPINN FLOKKUR
6.4.1

Allar reglur í grein 6.1 gilda um þennan flokk.

6.4.2

Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð.

6.4.2.a

Sé ökutæki ekki á númerum skal keppandi framvísa vottorði fyrir bremsum og stýrisgangi frá viðurkenndri skoðunarstöð.

6.4.3

Hjólbarðar skulu ekki vera breiðari en 285mm.

6.4.4

20-40% af úthlið hverrar felgu skal bera lit sem er skýr andstæða megin litar úthliðarinnar.

6.4.5

Vel sýnileg bremsuljós skulu vera efst í fram- og afturrúðu.