Reglur > Torfærureglur - Götubílar - Tæknilegar reglur 2024

Útgáfudagur 23.1.2024
Bera saman við aðra útgáfu
1

ÖRYGGISBÚNAÐUR ÖKUMANNA

1.1

Keppnisgalli samþykktur af:

  • FIA 8856-2000
  • SFI 3-2A/5
1.1.1

Séu aðrir samþykktir FIA eða SFI gallar notaðir skal keppandi vera í eldvörðum fatnaði undir:

  • Eldvarnarhetta
  • Eldvarnarhanskar
  • Eldvarnarskór
  • Eldvarnarsokkar
1.2

Lokaður keppnishjálmur samkvæmt eftirfarandi:

  • FIA 8858-2010
  • FIA 8860-2010
  • FIA 8859-2015
  • SNELL SA & SAH 2010
  • SNELL SA 2015
1.2.1

Smellulásar eru leyfðir en mælt er með þræddri ól.

1.3

Hlífðargler í hjálmi eða hlífðargleraugu. Mótorkross hjálmar eru bannaðir.

1.4

Hálsbúnaður sem uppfyllir SFI 38.1 eða FIA 8858-2010 er skylda (HANS Head and Neck Restraint Systems eða FHR Frontal Head Restraint).

1.5

Eingöngu 3” breið FIA/SFI samþykkt belti með króklás (ekki stjörnulás) eru leyfileg.

1.5.1

Heimilt að nota 3" breið belti sem sniðin eru fyrir HANS.

1.5.2

Beltin skulu vera óskemmd og hafa gilda dagsetningu frá framleiðanda. Heimilt er að nota belti sem falla út á árinu út keppnisárið.

1.5.3

Axlabelti skal festa í láréttri línu frá öxlum eða niður allt að 45 gráður.

1.5.4

Ef belti er fest með boltum skal að lágmarki nota 7/16 UNF (11mm) bolta.

1.5.5

Belti skulu ávallt vera tryggilega fest við veltibúr eða grind bílsins.

1.5.6

Bannað er að bora í veltibúr fyrir beltafestingum.

1.5.7

Belti skulu hvergi liggja utan í einhverju sem getur valdið skemmdum á þeim.

1.6

Skylt er að nota armólar eða glugganet.

1.6.1

Glugganet skulu vera FIA viðurkennd til akstursíþrótta.

1.6.2

Armólar skulu festar neðan við olnboga og vera losanlegar með öryggisbelti.

2

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR

2.1

Ökutæki skal skráð hjá Samgöngustofu.

2.1.1

Heimilt er að ökutæki sé tímabundið skráð úr umferð hjá Samgöngustofu.

2.2

Þegar ökutæki er skráð í umferð hjá Samgöngustofu skal það hafa gilda skoðun og vátryggingu.

2.3

Þegar ökutæki er skráð í umferð hjá Samgöngustofu skal það hafa tryggingarviðauka til keppna og æfinga.

2.4

Ökutæki sem tímabundið er skráð úr umferð hjá Samgöngustofu skal hafa gildan tryggingarviðauka eða ígildi hans

2.5

Prófílgrind skal vera í öllum tækjum að lágmarki tveir þriðju af hjólhafi bíls (lengd milli hjóla), eða úr fjöldaframleiddum bíl.

2.5.1

Prófílgrindin skal vera að lágmarki 40x80mm prófíll með 3mm veggþykkt

2.6

Stýrisgangur skal vera beintengdur með stýrismaskínu.

2.7

Æskilegt er að fjarlægja rúður og ljós úr tækjum á meðan keppni stendur.

3

DEKK

3.1

Bannað er að skera heila kubba úr dekkjum.

3.2

Hjólbarðar skulu vera löglegir og D.O.T merktir.

3.3

Leyfilegt er að skera í dekk en ekki breiðari skurði en 10mm og skal þá brún yfir næsta skurð vera 10mm eða meira.

3.4

Keðjur, álspyrnur eða hver sá aukahlutur á dekk til að auka grip er ekki leyfður.

4

ORKUGJAFI

4.1

Eldsneyti skal vera bensín, diesel eða annar orkugjafi samþykktur í almennri umferð.

5

NITROUS OXIDE - NÍTRÓ Noktun nítrókerfa er heimil ef farið er eftir þessum reglum:

5.1

Einungis fjöldaframleidd kerfi sem sett eru upp samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda eru lögleg.

5.2

Nítró flaska skal tryggilega fest með tveimur stálfestingum að lágmarki 2,5x25mm og skulu ná utanum alla flöskuna.

5.3

Óheimilt er að staðsetja nítróflösku í vélarrúmi.

5.4

Stútur flöskunnar skal vísa frá ökumanni eða hafa hlíf frá tengingum hennar sem skulu að lágmarki vera úr 2mm stáli eða 4mm áli.

5.5

Nítró flaskan skal staðsett með þeim hætti að hún verði ekki fyrir skemmdum eða höggi við veltu.

5.6

Allar nítróslöngur skulu vera hannaðar til að þola að lágmarki 3000psi.

5.7

Allar nítróslöngur skulu vera tryggilega festar.

5.8

Kerfið má ekki ræsa í gegnum negatíva rafmagnstengingu.

5.9

Kerfið má ekki vera virkt nema straumur sé á kveikjukerfi.

5.10

Kerfið verður að hafa sér rofa fyrir ökumann þar sem kyrfilega er merkt að kveikt sé á því NOS On/Off.

5.11

Kerfið má einungis vera virkt við botngjöf.

5.12

Kerfið má einungis vera virkt yfir 2000 snúningum á motor (2000 rpm).

5.13

Lokuð ökutæki verða að hafa FIA/SFI samþykkt slökkvikerfi með minnst einum stút sem vísar að ökumanni og einum sem vísar að mótor.

5.14

FIA/SFI viðvörun merkt NOS, græn með hvítum stöfum, skal vera staðsett aftan á ökutæki með nítrókerfi.

5.15

Flöskuhitari skal framleiddur af viðurkenndum aðila og frá honum gengið samkvæmt leiðbeiningum.
Allur opinn eldur er bannaður!

5.16.

Þrýstimælir fyrir nítró er skylda í bifreiðum með flöskuhitara.

6

RAFKERFI

6.1

Rafgeymir skal vera þurrgeymir og tryggilega festur að ofan og neðan.

6.2

Plús á geymir skal vera með plasti eða öðrum efnum sem leiða ekki.

6.3

Allir kaplar skulu tryggilega festir.

6.4

Höfuðrofi skal vera staðsettur þannig að ökumaður nái örugglega til hans þegar hann er spenntur í belti.

6.5

Annar höfuðrofi eða vírtengdur ádrepari skal staðsettur aftan á ökutæki.

6.6

Ádrepari skal vera skilmerkilega merktur með bláum þríhyrningi með rauðri eldingu inn í honum.

6.7

Ekki skal vera hægt að ræsa sjálfskiptu tæki nema í P og N.

6.8

Beinskipt ökutæki skulu hafa startrofa tengdan við kúplingsfetil svo ekki sé hægt að starta nema stíga að fullu á fetilinn.

7

ÖKUMANNSRÝMI

7.1

Hvalbakur eða sambærileg hlið sem skilur ökumann frá mótor, olíu og vatnskælum er skylda til að varna því að óæskilegir vökvar fari i ökumannsrými.

7.2

Ef loftinntak er í ökumannsrými skal það snúa frá ökumanni.

7.3

Í götubílum skal farþegasæti vera við hlið ökumannssætis. Gerð farþegasætis er frjáls en skal vera í venjulegri stærð.

7.4

Baksýnisspegill er skylda.

8

ÖKUMANNSSÆTI

8.1

Sæti skal vera keppnisstóll og vera með götum fyrir 5 punkta belti.

8.2

Sæti skal tryggilega fest og bak sætis verður að hvíla á þverstífu veltibúrs eða fest á sambærilegan hátt.

8.3

Sæti á sleða er ekki leyfileg.

8.4

Sætisbak skal vera nægilega hátt til þess að hylja 2/3 af hjálmi ökumanns.

8.5

Hliðarstuðningur fyrir hjálm skal festur á sæti eða á festingar aftan við sæti. Lágmarks þykkt skal vera 3mm álplata eða 3mm stálplata.

8.6

Hliðarstuðningur skal vísa fram um minnst 20cm frá sætisbaki og skal vísa ekki minna en 75° og þannig að ekki sé hætta á að hlífin skemmi hjálm við venjulega noktun.

8.7

Fjarlægð frá hjálmi að hlíf má ekki vera meiri en 10 cm.

8.8

Hlífin verður að vera soðin föst eða boltuð með minnst 2x M8 boltum á hvorri hlið.

8.9

Notast má við samþykkt FIA/SFI sæti með stuðningi fyrir hjálm i stað hliðarhlífar.

8.10

Fjarlægð frá efsta punkti hjálms og upp í veltibúr skal að lágmarki vera 10 cm.

9

VELTIBÚR

9.1

Öll keppnistæki skulu hafa að lágmarki sex punkta veltibúr og grindar eða burðarvirkistengt.

9.2

Veltibúr skal hannað þannig að það verji ökumann úr öllum áttum.

9.3

Heil og óskemmd heildregin stálrör með að lágmarki 350 N/mm2 eru skylda. Einnig má nota Docol R8 (eða sambærileg) rör með saum.

9.4

Ál, ryðfrítt stál eða Chromemoly stál er ekki leyft.

9.5

Lágmarks stærð röra skal vera 2,5x45mm eða 2x50mm.

9.6

Engin beygja á röri í búrinu má vera minna en 3x sverleiki.

9.7

Allar suður skulu vera hágæða suður og ekki má slípa yfirborð þeirra.

9.8

Lágmarkskröfur í hönnun veltibúrs (sjá nánar á “demo“ teikningu).

9.8.1

Heill aðalbogi frá annari hlið ökutækis að hinni hlið þess.

9.8.2

Aðalbogi skal vera staðsettur innan 75 – 105 gráður(+/- 15 gráður lóðrétt).

9.8.3

Heill frambogi frá annari hlið ökutækis að hinni hlið eða heilir hliðarborgar sem tengja aðalboga og framboga saman.

9.8.4

Stífur frá aðalboga að ofan og í afturhorn bifreiðar með að lágmarki 40-80 gráðu horni.

9.8.5

Kross í aðalboga eða í afturstífum. (Ökutæki smíðuð eftir 01.01.2006 skulu hafa þennan kross í aðalboga).

9.8.6

Ef veltibúr er breiðara en 100 cm, skal staðsetja lóðrétt rör frá miðju aðalboga og niður í kross í aðalboga.

9.8.7

“V“ eða “X“ rör í top veltibúrs.

9.8.8

Rör sem tengir hægri og vinstri hlið aðalboga saman, staðsett eins neðarlega og kostur er á í grind eða burðavirki.

9.8.9

Rör sem tengir saman framaðalboga, eins neðarlega og kostur er að framan og við miðju í aðalboga.

9.8.10

Lágmarksbreidd veltibúrs er 100cm.

9.8.11

Lágmarksfjarlægð frá miðju bílstjórasæti og að ytri brún veltibúrs er 40cm (mælt í axlarhæð).

10

ÞAKPLATA

10.1

Öll keppnistæki skulu hafa plötu festa yfir topp veltibúrs.

10.2

1mm stálplata soðin á búrið, 2mm stálplata boltuð með M8 boltum með ekki meira en 50cm bili eða 3mm ál plötu boltaða með M8 boltum með ekki meira en 50cm bili.

10.3

Ef platan er boltuð þá skulu festingar soðnar í búrið.

10.4

Ekki má bora í veltibúr.

10.5

Lágmarksstærð þakplötu er 0,75m2.

11

DRÁTTARAUGU

11.1

Dráttaraugu skulu vera að framan og aftan og með minnst 35mm gati.

11.2

Einnig skal vera gert ráð fyrir að hægt sé að hífa ökutæki að ofan og má það vera í gegnum veltibúr.

11.3

Dráttaraugu skulu vera auðkennd með skærum lit.

12

AUKAHLUTIR

12.1

Allir aukahlutir (slökkvitæki, fánar, vindskeiðar og þess háttar) skulu tryggilega festir og þannig frá þeim gengið að þeir geti ekki valdið ökumanni, starfsmönnum eða áhorfendum hættu.