Reglur > Samanburður
Samanburður á
Rally flokkur C (óbreyttir bílar án túrbínu) 2023
(útgáfudagur 1.2.2023)
og
Rally flokkur C (óbreyttir bílar án túrbínu) 2026
(útgáfudagur 20.10.2025)
| GREIN 1 SKILGREININGAR | GREIN 1 SKILGREININGAR | ||
| 1.1 | 1.1 | ||
| Reglur þessar gilda fyrir óbreytt ökutæki án forþjöppu. | Reglur þessar gilda fyrir óbreytt ökutæki án forþjöppu. | ||
| 1.2 | 1.2 | ||
| Hæf ökutæki teljast þau sem skráð hafa verið sem venjulegar fólksbifreiðar hjá Samgöngustofu. | Hæf ökutæki teljast þau sem skráð hafa verið sem venjulegar fólksbifreiðar hjá Samgöngustofu. | ||
| 1.3 | 1.3 | ||
| Allar breytingar á ökutækjum sem ekki eru leyfðar samkvæmt reglum þessum eru bannaðar. | Allar breytingar á ökutækjum sem ekki eru leyfðar samkvæmt reglum þessum eru bannaðar. | ||
| 1.4 | 1.4 | ||
| Kvaðir á keppendur vegna auglýsingasamnings | Kvaðir á keppendur vegna auglýsingasamnings | ||
| 1.4.1 | 1.4.1 | ||
| Keppnishöldurum er heimilt að semja um kostun á nafni á mótaröðinni í flokknum gegn auglýsingum á ökutækjum. Skal upplýst um slíka kostun á heimasíðunni akis.is í síðasta lagi 15. mars ár hvert. | Keppnishöldurum er heimilt að semja um kostun á nafni á mótaröðinni í flokknum gegn auglýsingum á ökutækjum. Skal upplýst um slíka kostun á heimasíðunni akis.is í síðasta lagi 15. mars ár hvert. | ||
| 1.4.2 | 1.4.2 | ||
| Keppendum er heimilt, gegn gjaldi, að hafna hugsanlegum kvöðum sem slík sala kann að fela í sér. Gjaldið skal reiknast sem tvöföld keppnisgjöld hverrar keppni. | Keppendum er heimilt, gegn gjaldi, að hafna hugsanlegum kvöðum sem slík sala kann að fela í sér. Gjaldið skal reiknast sem tvöföld keppnisgjöld hverrar keppni. | ||
| 1.4.3 | 1.4.3 | ||
| Kaupi keppandi sig frá þessum kvöðum hafnar hann jafnframt þeim verðlaunum sem samningurinn kann að kveða á um. Þó verða stig til Íslandsmeistara reiknuð óháð þessu, sem og verðlaun sem keppnishaldari veitir, t.d. bikar. | Kaupi keppandi sig frá þessum kvöðum hafnar hann jafnframt þeim verðlaunum sem samningurinn kann að kveða á um. Þó verða stig til Íslandsmeistara reiknuð óháð þessu, sem og verðlaun sem keppnishaldari veitir, t.d. bikar. | ||
| 1.4.4 | 1.4.4 | ||
| Keppandi getur orðið Íslandsmeistari í flokknum þó hann kaupi sig frá þessum kvöðum. | Keppandi getur orðið Íslandsmeistari í flokknum þó hann kaupi sig frá þessum kvöðum. | ||
| GREIN 2 VÉL | GREIN 2 VÉL | ||
| 2.1 | 2.1 | ||
| Hámarks slagrými vélar ökutækis er 2.000 sm3 fyrir ökutæki með drifi á báðum öxlum, en 2.400 sm3 fyrir ökutæki með drifi á einum öxli. | Hámarks slagrými vélar ökutækis er 2.000 sm3 fyrir ökutæki með drifi á báðum öxlum, en 2.400 sm3 fyrir ökutæki með drifi á einum öxli. | ||
| 2.2 | 2.2 | ||
| Hámarks afl vélar er 160 hestöfl samkvæmt framleiðanda eða viðurkenndri aflmælingu AKÍS. | Hámarks afl vélar er 160 hestöfl samkvæmt framleiðanda eða viðurkenndri aflmælingu AKÍS. | ||
| 2.3 | 2.3 | ||
| Eftirtalið er frjálst: | Eftirtalið er frjálst: | ||
| 2.3.1 | 2.3.1 | ||
| Inngjafarbarkar, | Inngjafarbarkar, | ||
| 2.3.2 | 2.3.2 | ||
| vatnslás, | vatnslás, | ||
| 2.3.3 | 2.3.3 | ||
| kerti, | kerti, | ||
| 2.3.4 | 2.3.4 | ||
| kertaþræðir, | kertaþræðir, | ||
| 2.3.5 | 2.3.5 | ||
| snúningstakmarkarar, | snúningstakmarkarar, | ||
| 2.3.6 | 2.3.6 | ||
| loftsíur, eldsneytissíur, | loftsíur, eldsneytissíur, | ||
| 2.3.7 | 2.3.7 | ||
| skvettibúnaður í olíupönnu | skvettibúnaður í olíupönnu | ||
| 2.3.8 | 2.3.8 | ||
| rafstýribúnaður og | rafstýribúnaður og | ||
| 2.3.9 | 2.3.9 | ||
| útblásturskerfi, annað en pústgrein. | útblásturskerfi, annað en pústgrein. | ||
| 2.4 | 2.4 | ||
| Heimilt er að skipta um vél og viðeigandi rafkerfi, en vélin verður að hafa verið til í samskonar módeli/boddýi ökutækis, og hafi þannig vél fengist í ökutæki innfluttu af umboði viðkomandi framleiðanda á Íslandi. | Heimilt er að skipta um vél og viðeigandi rafkerfi, en vélin verður að hafa verið til í samskonar módeli/boddýi ökutækis, og hafi þannig vél fengist í ökutæki innfluttu af umboði viðkomandi framleiðanda á Íslandi. | ||
| 2.5 | 2.5 | ||
| Vél skal ekki vera úr nýrra módeli ökutækis nema leyft er að uppfæra vélar upp að 2.000 sm3 slagrými og 130 hö ef ökutæki eru þyngri en 1.300 kg. | Vél skal ekki vera úr nýrra módeli ökutækis nema leyft er að uppfæra vélar upp að 2.000 sm3 slagrými og 130 hö ef ökutæki eru þyngri en 1.300 kg. | ||
| 2.5.1 | 2.5.1 | ||
| Vél verður að koma frá sama framleiðanda og ökutækið. | Vél verður að koma frá sama framleiðanda og ökutækið. | ||
| 2.5.2 | 2.5.2 | ||
| Dæmi 1: Heimilt er að taka 115 ha. vél úr Subaru Impreza árgerð 1997 og setja í staðinn 125 ha. vél úr 1999 árgerð Subaru Impreza. | Dæmi 1: Heimilt er að taka 115 ha. vél úr Subaru Impreza árgerð 1997 og setja í staðinn 125 ha. vél úr 1999 árgerð Subaru Impreza. | ||
| 2.5.3 | 2.5.3 | ||
| Dæmi 2: Leyft er að setja 125 ha mótor í Subaru Legacy að því gefnu að hann sé a.m.k. 1.300 kg samkvæmt skráningarskírteini. | Dæmi 2: Leyft er að setja 125 ha mótor í Subaru Legacy að því gefnu að hann sé a.m.k. 1.300 kg samkvæmt skráningarskírteini. | ||
| 2.6 | 2.6 | ||
| Heimilt er að skipta um mótorpúða en staðsetning og fjöldi skal vera óbreyttur. | Heimilt er að skipta um mótorpúða en staðsetning og fjöldi skal vera óbreyttur. | ||
| 2.7 | 2.7 | ||
| Óheimilt er að bora út vél meira en 0,5 mm. | Óheimilt er að bora út vél meira en 0,5 mm. | ||
| GREIN 3 STÝRISBÚNAÐUR | GREIN 3 STÝRISBÚNAÐUR | ||
| 3.1 | 3.1 | ||
| Fjarlægja skal stýrislás. | Fjarlægja skal stýrislás. | ||
| 3.2 | 3.2 | ||
| Heimilt er að skipta um stýrishjól. | Heimilt er að skipta um stýrishjól. | ||
| GREIN 4 DRIFRÁS | GREIN 4 DRIFRÁS | ||
| 4.1 | 4.1 | ||
| Gírkassi / sjálfskipting skal vera óbreytt. | Gírkassi / sjálfskipting skal vera óbreytt. | ||
| 4.2 | 4.2 | ||
| Heimilt er að skipta um gírkassa / sjálfskiptingu. | Heimilt er að skipta um gírkassa / sjálfskiptingu. | ||
| 4.2.1 | 4.2.1 | ||
| Gírkassi / sjálfskipting skal vera úr fjöldaframleiddu ökutæki sömu tegundar sem flutt hefur verið inn af umboði viðkomandi framleiðanda hérlendis. | Gírkassi / sjálfskipting skal vera úr fjöldaframleiddu ökutæki sömu tegundar sem flutt hefur verið inn af umboði viðkomandi framleiðanda hérlendis. | ||
| 4.3 | 4.3 | ||
| Raðskiptibúnaður (sequential) er bannaður. | Raðskiptibúnaður (sequential) er bannaður. | ||
| 4.4 | 4.4 | ||
| Gírkassar með beinskornum tannhjólum (dog-box) og/eða þétthlutfalla (close-ratio) gírsett eða gírkassar eru bönnuð. | Gírkassar með beinskornum tannhjólum (dog-box) og/eða þétthlutfalla (close-ratio) gírsett eða gírkassar eru bönnuð. | ||
| 4.5 | 4.5 | ||
| Tengslisdiskar eru frjálsir. | Tengslisdiskar eru frjálsir. | ||
| 4.6 | 4.6 | ||
| Drifhlutföll eru frjáls. | Drifhlutföll eru frjáls. | ||
| 4.7 | 4.7 | ||
| Driflæsing er leyfð á einum öxli. | Driflæsing er leyfð á einum öxli. | ||
| 4.8 | 4.8 | ||
| Heimilt er að styrkja bita og aðrar festingar drifbúnaðar. | Heimilt er að styrkja bita og aðrar festingar drifbúnaðar. | ||
| GREIN 5 YFIRBYGGING | GREIN 5 YFIRBYGGING | ||
| 5.1 | 5.1 | ||
| Útlit og lögun skal vera óbreytt miðað við upphaflegt útlit ökutækis. | Útlit og lögun skal vera óbreytt miðað við upphaflegt útlit ökutækis. | ||
| 5.2 | 5.2 | ||
| Styrking yfirbyggingar er frjáls. | Styrking yfirbyggingar er frjáls. | ||
| 5.3 | 5.3 | ||
| Óheimilt er að fjarlægja efni úr yfirbyggingu, né setja annað í staðinn, nema um jafnþungt efni sé að ræða. | Óheimilt er að fjarlægja efni úr yfirbyggingu, né setja annað í staðinn, nema um jafnþungt efni sé að ræða. | ||
| 5.4 | 5.4 | ||
| Sílsalistar og vindskeiðar eru frjálsar. | Sílsalistar, vindskeiðar og aurhlífar eru frjálsar. | ||
| 5.5 | 5.5 | ||
| Rúður skulu vera upprunalegar. | Rúður skulu vera upprunalegar. | ||
| 5.6 | 5.6 | ||
| Sé notuð yfirbygging (skel) ökutækis sem framleitt var með öflugri vél en leyfileg er samkvæmt reglum þessum, má skelin ekki vera léttari en framleiðsluþyngd. | Sé notuð yfirbygging (skel) ökutækis sem framleitt var með öflugri vél en leyfileg er samkvæmt reglum þessum, má skelin ekki vera léttari en framleiðsluþyngd. | ||
| 5.6.1 | 5.6.1 | ||
| Aðeins má nota yfirbygginguna (skelina) en ekki aðra hluti. | Aðeins má nota yfirbygginguna (skelina) en ekki aðra hluti. | ||
| 5.6.2 | 5.6.2 | ||
| Dæmi: Subaru Impreza GT skel má ekki vera léttari en GL skel. | Dæmi: Subaru Impreza GT skel má ekki vera léttari en GL skel. | ||
| 5.7 | |||
| Aurhlífar skulu vera við öll hjól. | |||
| GREIN 6 UNDIRVAGN OG HJÓLABÚNAÐUR | GREIN 6 UNDIRVAGN OG HJÓLABÚNAÐUR | ||
| 6.1 | 6.1 | ||
| Sporvídd og hjólhaf skal vera óbreytt. | Sporvídd og hjólhaf skal vera óbreytt. | ||
| 6.1.1 | 6.1.1 | ||
| Skekkjumörk eru 40mm. | Skekkjumörk eru 40mm. | ||
| 6.2 | 6.2 | ||
| Festingar hjólabúnaðar skulu vera upprunalegar. | Spyrnur, stífur og aðrar festingar hjólabúnaðar skulu vera upprunalegar. | ||
| 6.2.1 | 6.2.1 | ||
| Spyrnur og stífur eru frjálsar. | Heimilt er að styrkja spyrnur, stífur og festingar hjólabúnaðar. | ||
| 6.2.2 | 6.2.2 | ||
| Fóðringar í spyrnum og stífum eru frjálsar. | Fóðringar í spyrnum og stífum eru frjálsar. | ||
| 6.3 | 6.3 | ||
| Fjöðrun er frjáls en notast skal við upphaflega festipunkta hennar. | Fjöðrun er frjáls en notast skal við upphaflega festipunkta hennar. | ||
| 6.3.1 | 6.3.1 | ||
| Skekkjumörk eru 25 mm. | Skekkjumörk eru 25 mm. | ||
| 6.4 | 6.4 | ||
| Hemlar skulu vera af sömu stærð og gerð og upprunalega. | Hemlar skulu vera af sömu stærð og gerð og upprunalega. | ||
| 6.4.1 | 6.4.1 | ||
| Heimilt er að setja diska og annan viðeigandi búnað að aftan í stað skála. | Heimilt er að setja diska og annan viðeigandi búnað að aftan í stað skála. | ||
| 6.4.2 | 6.4.2 | ||
| Hemlavökvi er frjáls | Hemlavökvi er frjáls | ||
| 6.4.3 | 6.4.3 | ||
| Efni í klossum og skóm er frjálst. | Efni í klossum og skóm er frjálst. | ||
| 6.5 | 6.5 | ||
| Stærð og gerð felga er frjáls. | Stærð og gerð felga er frjáls. | ||
| 6.6 | 6.6 | ||
| Stærð og gerð hjólbarða er frjáls. | Stærð og gerð hjólbarða er frjáls. | ||
| GREIN 7 ELDSNEYTISKERFI | GREIN 7 ELDSNEYTISKERFI | ||
| 7.1 | 7.1 | ||
| Eldsneytistank er heimilt að staðsetja að vild utan ökumannsrýmis. | Eldsneytistank er heimilt að staðsetja að vild utan ökumannsrýmis. | ||
| 7.1.1 | 7.1.1 | ||
| Stærð, tegund og gerð eldsneytistanks er frjáls. | Stærð, tegund og gerð eldsneytistanks er frjáls. | ||
| 7.1.2 | 7.1.2 | ||
| Sé eldsneytistankur í farangursrými ökutækis skal vera fullnægjandi eldveggur milli þess og ökumannsrýmis. | Sé eldsneytistankur í farangursrými ökutækis skal vera fullnægjandi eldveggur milli þess og ökumannsrýmis. | ||
| 7.2 | 7.2 | ||
| Tegund, gerð og staðsetning eldsneytisdælu er frjáls. | Tegund, gerð og staðsetning eldsneytisdælu er frjáls. | ||
| GREIN 8 ANNAÐ | GREIN 8 ANNAÐ | ||
| 8.1 | 8.1 | ||
| Rafkerfi er frjálst. | Rafkerfi er frjálst. | ||
| 8.2 | 8.2 | ||
| Innréttingu má fjarlægja að undanskildu mælaborði. | Innréttingu má fjarlægja að undanskildu mælaborði. | ||
| 8.3 | 8.3 | ||
| Rúðuupphalarar í framhurðum skulu vera til staðar og virka. | Rúðuupphalarar í framhurðum skulu vera til staðar og virka. | ||
| 8.4 | 8.4 | ||
| Fjarlægja skal alla loftpúða úr ökumannsrými. | Fjarlægja skal alla loftpúða úr ökumannsrými. | ||