Reglur > Samanburður
Samanburður á
Reglur fyrir fjölmiðlafólk í aksturskeppnum
(útgáfudagur 1.1.2017)
og
Rally flokkur Proto 2025
(útgáfudagur 12.11.2024)
| 1 | GREIN 1 SKILGREININGAR | ||
| Almennt | |||
| 1.1 | 1.1 | ||
| Keppnishaldari ákveður hverjir það eru sem fá aðgang að keppni sem myndatöku- og fjölmiðlafólk. Skrá skal viðkomandi sérstaklega inn í gögn keppninnar. | Reglur Motorsport Ireland (Proto Car Technical Requirements 2021.pdf) gilda að svo miklu leyti sem við á. | ||
| 1.2 | |||
| Gengið skal úr skugga um að þeir sem eru við myndatöku, eða er leyft að fara um lokuð keppnissvæði, séu klæddir í áberandi öryggisvesti. | |||
| 1.3 | |||
| Fari myndatöku- og fjölmiðlafólk ekki eftir leiðbeiningum starfsfólks getur það átt von á því að verða vísað burt af keppnissvæðinu. | |||
| 2 | |||
| Leyfi til myndbirtingar | |||
| 2.1 | |||
| Umsóknarferli | |||
| 2.1.1 | |||
| Aðilar geta sótt um að fá leyfi til myndbirtingar fyrir ákveðið keppnistímabil. Umsóknir eiga að vera sendar til stjórnar AKÍS. | |||
| 2.1.2 | |||
| Umsókn skal gerð á umsóknareyðublaði á vef AKÍS og verður að uppfylla kröfur sem fram koma á því eyðublaði. Þar er tekið fram hvort um er að ræða ljósmyndir eða myndbönd ásamt því hvar efnið er birt. | |||
| 2.1.3 | |||
| AKÍS getur beðið umsækjendur að leggja fram frekari upplýsingar en þær sem eru í umsókn. | |||
| 2.1.4 | |||
| AKÍS er heimilt að ákveða gjald fyrir útgáfu leyfa til myndbirtingar og verða umsóknir um leyfi til myndbirtingar ekki veittar fyrr en gjaldið er að fullu greitt. | |||
| 2.1.5 | |||
| AKÍS hefur einhliða rétt til að samþykkja, hafna, afturkalla eða breyta leyfi til myndbirtingar að hluta eða öllu leyti. | |||
| 2.1.6 | |||
| Aðilar fá sérstakt skírteini til að bera á viðburðum ásamt sérmerktu vesti. Tryggingargjald greiðist fyrir vestið og ber að skila vestinu í lok keppnistímabils gegn endurgreiðslu tryggingargjalds. | |||
| 2.2 | |||
| Gildistími og framsal | |||
| 2.2.1 | |||
| Samþykkt umsókn gildir út það keppnistímabilið er hún var samþykkt á. | |||
| 2.2.2 | |||
| Samþykkt umsókn er ekki framseljanleg til þriðja aðila og verða handhafar leyfis til myndbirtingar að tryggja að leyfi þeirra sé ekki notað af öðrum aðilum. | |||
| 2.3 | |||
| Stig leyfa til myndbirtingar | |||
| 2.3.1 | |||
| AKÍS gefur út leyfi til myndbirtingar í tveimur mismunandi stigum. | |||
| 2.3.1.a | |||
| Leyfið er ætlað aðilum með reynslu og að verk þeirra hafi verið birt. Einnig er þetta ætlað atvinnumönnum sem birta efni reglulega í fjölmiðlum sem fjalla um akstur og | |||
| akstursíþróttir. | |||
| 2.3.1.b | |||
| Leyfið er ætlað byrjendum í myndatöku akstursíþrótta og er ólíklegt til að gefa aðgang að stærri viðburðum akstursíþrótta. Það er ætlað til notkunar hjá félögum og | |||
| er gott fyrsta skref til að öðlast reynslu í faginu. | |||
| 2.3.2 | |||
| Aðilar með leyfi til myndbirtingar fá ekki sjálfkrafa aðgang á viðburð. Aðgangur og leyfi til myndatöku er ávallt ákvörðun keppnisstjórnar. Hins vegar geta þeir sem hafa hærra stig viðurkenningar almennt búist við að vera heimill aðgangur að fleiri viðburðum. | |||
| 2.4 | |||
| Afturköllun leyfis | |||
| 2.4.1 | |||
| AKÍS getur afturkallað eða breytt leyfi til myndbirtingar hvenær sem er vegna brota á ákvæðum þessara reglna eða annarra gefnum út af AKÍS. | |||
| 2.5 | |||
| Sýning leyfis | |||
| 2.5.1 | |||
| Þegar aðilar með leyfi til myndbirtingar eru að taka upp skulu þeir bera gilt skírteini með sýnilegum hætti og vera í vestinu sem AKÍS úthlutaði. | |||
| 2.6 | |||
| Hættur og bótaréttur | |||
| 2.6.1 | |||
| Hvort sem aðili er með leyfi AKÍS til myndbirtingar eða fær leyfi keppnishaldara til myndatöku skal hann ætíð: | |||
| 2.6.1.a | |||
| hafa kynnt sér lög og reglur AKÍS er varðar keppnishald og samþykkir að fara eftir þeim | |||
| 2.6.1.b | |||
| muna að hann er á eigin ábyrgð | |||
| 2.6.1.c | |||
| gera sér grein fyrir að akstursíþróttir eru hættulegar | |||
| 2.6.1.d | |||
| fara eftir öllum tilmælum frá starfsfólki keppninnar að viðlagðri fyrirvaralausri brottvísun af keppnissvæðinu | |||
| 2.6.1.e | |||
| halda AKÍS, keppnishaldara, keppnisstjóra, landeiganda eða starfsmönnum keppninnar skaðlausum vegna hugsanlegs tjóns sem hann kann að verða fyrir | |||
| 2.6.1.f | |||
| afsala sér öllum hugsanlegum bóta- og/eða kröfurétti á hendur AKÍS, keppnishaldara, starfsmönnum keppninnar, keppendum eða landeiganda vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni hvort heldur sem um er að ræða eigna- eða líkamstjón og hvernig sem því er valdið | |||
| 2.6.1.g | |||
| virða friðhelgi einstaklinga sem lenda í slysum eða öðrum atvikum, hvort heldur er í eða utan keppni. Forðist að birta myndir af slysum eða öðrum viðkvæmum atvikum. | |||
| 2.7 | |||
| Hættusvæði | |||
| 2.7.1 | |||
| Hvort sem aðili er með leyfi AKÍS til myndbirtingar eða fær leyfi keppnishaldara til myndatöku skal hann ætíð: | |||
| 2.7.1.a | |||
| fylgja reglum og reglugerðum í tengslum við viðburð og: | |||
| 2.7.1.a.i | |||
| semja við keppnishaldara tímanlega til að ræða aðgengi ásamt því að mæta á kynningarfundi viðburðar | |||
| 2.7.1.a.ii | |||
| einungis vera þar sem heimilt er og ekki á bannsvæði | |||
| 2.7.1.a.iii | |||
| uppfylla allar reglur og reglugerðir AKÍS og keppnisstjórnar ásamt leiðbeiningum gefnum af starfsmönnum keppninnar | |||
| 2.7.1.a.iv | |||
| haga sér í samræmi við öll skilti, hindranir og önnur leiðarmerki sem sýna hvar á og á ekki að vera | |||
| 2.7.1.b | |||
| vera ljóst að keppnistæki í keppni getur: | |||
| 2.7.1.b.i | |||
| skotið frá sér grjóti eða rusli | |||
| 2.7.1.b.ii | |||
| tekið óvænta stefnu og ekki fylgt nákvæmlega merktri eða ætlaðri leið | |||
| 2.7.1.b.iii | |||
| rekist á og losað hindranir eða aðra hluti í kringum það | |||
| 2.7.1.c | |||
| vera meðvitaðir um eigið öryggi og: | |||
| 2.7.1.c.i | |||
| standa frekar en að leggjast eða setjast niður | |||
| 2.7.1.c.ii | |||
| standa þar sem auðvelt er að færa sig ef óhapp verður og forðast að standa framan varnargarða, ræsi, veggi og þess háttar | |||
| 2.7.1.c.iii | |||
| vera í öryggisvesti því sem AKÍS úthlutaði | |||
| 2.7.1.c.iv | |||
| að vera utan öryggissvæðis keppnisbrauta (enska: run-off area, safety zone). Ef það er ekki hægt, að vera á bakvið hlut sem er líklegur til að stöðva keppnistækið | |||
| 2.7.1.c.v | |||
| aldrei stíga inn á brautina eða annars staðar þar sem keppnistæki er á ferðinni | |||
| 2.7.1.c.vi | |||
| ekki standa á svæðum þar sem keppnistæki getur eða eru líkleg til að geta farið út úr braut, það er hemlunarsvæði, utanverðar beygjur og þess háttar | |||
| 2.7.1.c.vii | |||
| ekki valda öðrum hættu | |||
| 2.7.1.c.viii | |||
| að hindra ekki sýn á merki og önnur atriði sem hafa verið sett til að tryggja öryggi viðburðarins | |||
| 2.7.1.d | |||
| gera sér grein fyrir því að sjónsviðið er takmarkað þegar myndavél eða önnur tæki eru notuð og tryggja að: | |||
| 2.7.1.d.i | |||
| vera vakandi | |||
| 2.7.1.d.ii | |||
| vera meðvitaður um umhverfi sitt og takmörkunum á sjónsviði og heyrn | |||
| 2.7.1.d.iii | |||
| þeir hafa skýra sjónlínu til keppnistækja og þeirrar hættu sem skapast getur | |||
| 2.7.1.e | |||
| vera kurteis og sýna nærstöddum tillitssemi og virðingu | |||
| 2.8 | |||
| Leyfi til myndbirtingar | |||
| 2.8.1 | |||
| Aðilar með leyfi til myndbirtingar geta fengið aðgang að svæðum sem yfirleitt eru ekki í boði fyrir almenning. Eins og áður hefur komið fram tryggir leyfi til myndbirtingar þó ekki aðgang að viðburði þar sem keppnisstjórn hefur heimild til að ákvarða aðgengi. | |||
| 2.9 | |||
| Samþykki | |||
| 2.9.1 | |||
| Aðilar með leyfi til myndbirtingar gera sér grein fyrir því að ávallt er krafist upplýsts samþykkis. Það er því á ábyrgð þessara aðila að tryggja fullt samþykki frá öllum aðilum (og hugsanlega forráðamanni ef einstaklingur er undir 18 ára aldri) áður en efnið er birt opinberlega. | |||
| 2.9.2 | |||
| Aðilar með leyfi til myndbirtingar ættu að huga vandlega að efni sem dreifa á í atvinnuskyni svo það sé ekki: | |||
| 2.9.2.a | |||
| óeðlilegt eða uppáþrengjandi | |||
| 2.9.2.b | |||
| ósæmilegt | |||
| 2.9.2.c | 1.1.a | ||
| ærumeiðandi | Þær er að finna [hér](https://www.motorsportireland.com/s/Proto-Car-Technical-Requirements-2021.pdf) | ||