Reglur > Samanburður
Samanburður á
Rally flokkur TO (jeppaflokkur) 2023
(útgáfudagur 30.12.2022)
og
Rally flokkur Proto 2024
(útgáfudagur 10.11.2023)
| GREIN 1 SKILGREININGAR | GREIN 1 REGLUR FYRIR RALLY FLOKK TO (jeppaflokk) | ||
| Taka gildi 1.1.2023. | |||
| Gilda a.m.k. til 31.12.2025. | |||
| GREIN 2 OPINN FLOKKUR - TO | |||
| 2.1 | |||
| SKILGREININGAR | |||
| 2.1.1 | |||
| Ökutæki þarf ekki að halda upprunalegu útliti í hvívetna, en þarf að standast almenna bifreiðaskoðun. | |||
| 2.1.1.a | |||
| Breytingaskoðun er einnig leyfileg. | |||
| 2.1.2 | |||
| Upphafleg grind eða styrktarvirki ökutækis skal notað. | |||
| 2.1.2.a | |||
| „Space frame" burðarvirki er ekki leyft. (Ekki telst vera space frame þegar veltibúr er soðið á verksmiðjuframleidda grind). | |||
| 2.1.3 | |||
| Heimilt er að færa og breyta hvalbak. | |||
| 2.1.4 | |||
| Staðsetning vélar verður að vera þar sem hún er samkvæmt skráningu bifreiðar, það er að segja fram í eða aftur í. | |||
| 2.1.5 | |||
| Hámarks slagrými vélar er 6.000 sm3. | |||
| 2.1.6 | |||
| Hámarks afl vélar er 300 hestöfl. | |||
| 2.1.7 | |||
| Ef vél ökutækis er með forþjöppu skal nota þrengingar samkvæmt reglum FIA. | |||
| 2.1.8 | |||
| Ökutæki skal ekki vera þyngra en 3.000 kg. á ráslínu. | |||
| 2.1.9 | |||
| Lágmarksþyngd ökutækis skal vera 1.500 kg án áhafnar. | |||
| 2.1.10 | |||
| Ökutæki skal vera fjórhjóladrifið | |||
| 2.1.10.a | |||
| Drifbúnaðurinn þarf að samanstanda af gírkassa/sjálfskiptingu, millikassa og drifsköftum tengdum millikassa og ganga fram og aftur úr millikassanum og tengjast þar með drifásum bifreiðarinnar. | |||
| 2.1.11 | |||
| Hæð hjólbarða skal að hámarki vera 33", eða 10% meira en þvermál dekkja er bifreiðin kemur á. | |||
| 1.1 | 2.1.12 | ||
| Reglur Motorsport Ireland (Proto Car Technical Requirements 2021.pdf) gilda að svo miklu leyti sem við á. | Ökutækis skal uppfylla öryggiskröfur FIA til ökutækja í rally samkvæmt Reglubókinni, viðauka J grein 283, sem og aðrar viðeigandi greinar. | ||
| 1.1.a | 2.2 | ||
| Þær er að finna [hér](https://motorsportireland.com/common/Uploaded%20files/Mi/Technical_Regulations/Proto%20Car%20Technical%20Requirements%202021.pdf). | TAKMARKANIR | ||
| 1.2 | 2.2.1 | ||
| Þessar reglur gilda til 1. janúar 2025. | Allar breytingar á ökutækjum sem ekki eru leyfðar samkvæmt þessum reglum eru bannaðar. | ||
| 2.2.1.a | |||
| Breytingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla öryggiskröfur FIA og kafla 5.2 í Keppnisgreinareglum fyrir rally eru leyfðar. | |||
| 2.2.1.b | |||
| Koma má fyrir viðbótar mælum til að fylgjast með vél og drifrás. | |||
| 2.2.1.c | |||
| Aftursæti má fjarlægja, svo og innréttingu. | |||
| 2.2.1.d | |||
| Leyfilegt er að smíða innréttingu en hún skal vera án skarpra brúna og kanta. | |||
| 2.2.1.e | |||
| Í framhurðum skulu vera hurðarspjöld. | |||
| 2.2.1.f | |||
| Eldveggur verður að vera milli vélar og ökumanna. | |||
| 2.2.1.g | |||
| Fjöðrun er frjáls, þar með talið afstaða, fjöldi og lengd stífa. | |||
| 2.2.1.h | |||
| Demparar eru frjálsir. | |||
| 2.2.1.h.i | |||
| Breytingar á fjöðrun, dempurum, bremsum og stýrisgangi skal standast sérskoðun fyrir breyttar bifreiðar. | |||
| 2.2.1.i | |||
| Bremsur og bremsu efni er frjálst. | |||
| 2.2.1.j | |||
| Stýrisgangur er frjáls, en tjakkstýri bannað. | |||
| 2.2.1.k | |||
| Lofthreinsarar eru frjálsir og má vera án þeirra. Loftrás má aldrei draga loft innan úr ökumannsrými. | |||
| 2.2.1.l | |||
| Hásingar eru frjálsar. | |||
| 2.2.1.l.i | |||
| Drifhlutföll og driflæsingar eru frjálsar. | |||
| 2.2.1.m | |||
| Gírkassi frjáls. | |||
| 2.2.1.n | |||
| Millikassi frjáls. | |||
| 2.2.1.o | |||
| Tryggilega festan auka varahjólbarða má vera með inni í eða utaná bifreiðinni. | |||
| 2.2.1.p | |||
| Auka ljósbúnaði má koma fyrir í pörum. | |||
| 2.2.1.q | |||
| Bæta má við undirvagnsvörn. | |||
| 2.2.1.r | |||
| Heimilt er að setja tank inn í bílinn en þá skal hann vera í aðskildu rými frá ökumönnum. | |||
| 2.2.1.r.i | |||
| Ef FIA viðurkennd bensínsella (e. fuel cell) er notuð þarf ekki aðskilið rými. | |||