Reglur > Samanburður
Samanburður á
Keppnisgreinarreglur fyrir torfæru 2022
(útgáfudagur 20.11.2021)
og
Keppnisgreinarreglur fyrir torfæru 2024
(útgáfudagur 23.1.2024)
| GREIN 1 ALMENNT | GREIN 1 ALMENNT | ||
| Torfæra (Formula Offroad) er keppni fjórhjóladrifsbíla þar sem ökumenn reyna með sér í nákvæmnisakstri við krefjandi aðstæður, m.a. upp brattar brekkur, aka á vatni, í drullu og við aðrar óvenjulegar aðstæður. | Torfæra (Formula Offroad) er keppni fjórhjóladrifsbíla þar sem ökumenn reyna með sér í nákvæmnisakstri við krefjandi aðstæður, m.a. upp brattar brekkur, aka á vatni, í drullu og við aðrar óvenjulegar aðstæður. | ||
| GREIN 1.1 GILDISSVIÐ | GREIN 1.1 GILDISSVIÐ | ||
| 1.1.1 | 1.1.1 | ||
| Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í torfæru. | Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í torfæru. | ||
| 1.1.1.a | 1.1.1.a | ||
| Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og keppnisflokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum. | Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og keppnisflokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum. | ||
| 1.1.2 | 1.1.2 | ||
| Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinarreglum og sérreglum hverrar keppni. | Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinarreglum og sérreglum hverrar keppni. | ||
| 1.1.3 | 1.1.3 | ||
| Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA. | Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA. | ||
| GREIN 2 SKRÁNING | GREIN 2 SKRÁNING | ||
| GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN | GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN | ||
| 2.1.1 | 2.1.1 | ||
| Keppendum er heimilt að skrá sig mörgum sinnum í hvern flokk í hverri keppni. | Keppendum er heimilt að skrá sig mörgum sinnum í hvern flokk í hverri keppni. | ||
| 2.1.1.a | 2.1.1.a | ||
| Hver ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í hverjum flokki. | Hver ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í hverjum flokki. | ||
| 2.1.2 | 2.1.2 | ||
| Hverju ökutæki skal aðeins ekið af einum ökumanni í hverri keppni. | Hverju ökutæki skal aðeins ekið af einum ökumanni í hverri keppni. | ||
| 2.1.2.a | 2.1.2.a | ||
| Keppnishaldara er heimilt að leyfa tvo ökumenn á ökutæki og skal þá taka það fram í sérreglum. | Keppnishaldara er heimilt að leyfa tvo ökumenn á ökutæki og skal þá taka það fram í sérreglum. | ||
| GREIN 2.2 ÖKUTÆKI | GREIN 2.2 ÖKUTÆKI | ||
| 2.2.1 | 2.2.1 | ||
| Ekki er heimilt að skipta út ökutæki í keppni eftir að skoðun lýkur. | Ekki er heimilt að skipta út ökutæki í keppni eftir að skoðun lýkur. | ||
| GREIN 2.3 KEPPNISNÚMER | GREIN 2.3 KEPPNISNÚMER | ||
| 2.3.1 | 2.3.1 | ||
| Ökutæki skal merkt með keppnisnúmeri. | Ökutæki skal merkt með keppnisnúmeri. | ||
| 2.3.2 | 2.3.2 | ||
| Föst rásnúmer eru notuð eftir flokkum. Frátekin eru 1, 2, 3 í sérútbúnum flokki, 201, 202, 203 í sérútbúnum götubílaflokki og 401, 402 og 403 í götubílaflokki samkvæmt lokastöðu Íslandsmóts. | Föst rásnúmer eru notuð eftir flokkum. Frátekin eru 1, 2, 3 í sérútbúnum flokki, 201, 202, 203 í sérútbúnum götubílaflokki og 401, 402 og 403 í götubílaflokki samkvæmt lokastöðu Íslandsmóts. | ||
| 2.3.2.a.i | 2.3.2.a.i | ||
| Rétt til keppnisnúmers samkvæmt úrslitum Íslandsmóts næsta árs á undan öðlast 3 efstu ökumenn þess móts. Aðrir ökumenn fá úthlutað keppnisnúmerum frá 4 til og með 199 í sérútbúnum flokki, 204-399 í sérútbúnum götubílaflokki og 404-499 í götubílaflokki. | Rétt til keppnisnúmers samkvæmt úrslitum Íslandsmóts næsta árs á undan öðlast 3 efstu ökumenn þess móts. Aðrir ökumenn fá úthlutað keppnisnúmerum frá 4 til og með 199 í sérútbúnum flokki, 204-399 í sérútbúnum götubílaflokki og 404-499 í götubílaflokki. | ||
| 2.3.2.b | 2.3.2.b | ||
| Ökumanni er heimilt að sækja um sérvalið keppnisnúmer. | Ökumanni er heimilt að sækja um sérvalið keppnisnúmer. | ||
| 2.3.2.b.i | 2.3.2.b.i | ||
| Skal slík umsókn sendast til keppnisráðs í torfæru. | Skal slík umsókn sendast til keppnisráðs í torfæru. | ||
| 2.3.2.b.ii | 2.3.2.b.ii | ||
| Ökumaður skal hafa forgang á notkun úthlutaðs sérvalins keppnisnúmers í a.m.k. tvö keppnistímabil. | Ökumaður skal hafa forgang á notkun úthlutaðs sérvalins keppnisnúmers í a.m.k. tvö keppnistímabil. | ||
| 2.3.2.c | 2.3.2.c | ||
| Keppnisráð skal, í samvinnu við AKÍS, halda skrá um úthlutuð keppnisnúmer á hverju ári. | Keppnisráð skal, í samvinnu við AKÍS, halda skrá um úthlutuð keppnisnúmer á hverju ári. | ||
| GREIN 3 KEPPNI | GREIN 3 KEPPNI | ||
| GREIN 3.1 ALMENNT | GREIN 3.1 ALMENNT | ||
| 3.1.1 | 3.1.1 | ||
| Á meðan á keppni stendur má einungis ökumaður vera í ökutækinu með þeim undantekningum þó að: | Á meðan á keppni stendur má einungis ökumaður vera í ökutækinu með þeim undantekningum þó að: | ||
| 3.1.1.a | 3.1.1.a | ||
| liðsstjóra er heimilt að færa ökutækið úr stað og gera á því prófanir; | liðsstjóra er heimilt að færa ökutækið úr stað og gera á því prófanir; | ||
| 3.1.2 | 3.1.2 | ||
| Þegar ræst er á ferð er það framkvæmt án fylgdarbíls. | Þegar ræst er á ferð er það framkvæmt án fylgdarbíls. | ||
| 3.1.3 | 3.1.3 | ||
| Keppandi, ökumaður eða liðstjóri skal alltaf vera við ökutæki meðan keppni fer fram. | Keppandi, ökumaður eða liðstjóri skal alltaf vera við ökutæki meðan keppni fer fram. | ||
| 3.1.4 | 3.1.4 | ||
| Keppandi má hafa átta aðstoðarmenn inni á pittsvæði og ber á þeim fulla ábyrgð. | Keppandi má hafa átta aðstoðarmenn inni á pittsvæði og ber á þeim fulla ábyrgð. | ||
| 3.1.4.a | 3.1.4.a | ||
| Keppnishaldara er heimilt að leyfa fleiri aðstoðarmenn á þeim forsendum sem hann ákveður. | Keppnishaldara er heimilt að leyfa fleiri aðstoðarmenn á þeim forsendum sem hann ákveður. | ||
| 3.1.5 | 3.1.5 | ||
| Ökutæki skal aldrei ekið hraðar en á gönguhraða á fráteknum svæðum utan þrauta og reynsluaksturssvæðis. | Ökutæki skal aldrei ekið hraðar en á gönguhraða á fráteknum svæðum utan þrauta og reynsluaksturssvæðis. | ||
| 3.1.6 | 3.1.6 | ||
| Staðreyndadómarar skulu vera að lágmarki þrír og ekki allir frá sama félagi, þeir skulu hafa lokið námskeiði hjá Akstursíþróttasambandi Íslands (AKÍS). | Staðreyndadómarar skulu vera að lágmarki þrír og ekki allir frá sama félagi, þeir skulu hafa lokið námskeiði hjá Akstursíþróttasambandi Íslands (AKÍS). | ||
| GREIN 3.2 ÞRAUTIR | GREIN 3.2 ÞRAUTIR | ||
| 3.2.1 | 3.2.1 | ||
| Lágmarksfjöldi þrauta í keppni eru 6. | Lágmarksfjöldi þrauta í keppni eru 6. | ||
| 3.2.1.a | 3.2.1.a | ||
| Ein eða fleiri þrautir mega vera tímaþrautir. | Ein eða fleiri þrautir mega vera tímaþrautir. | ||
| 3.2.2 | 3.2.2 | ||
| Hver þraut skal vera 30 til 700 metra löng. | Hver þraut skal vera 30 til 700 metra löng. | ||
| 3.2.3 | 3.2.3 | ||
| Hver þraut skal hafa lágmark eitt aksturssvæði sem afmarkast af tveimur hliðum, ráslínu og marklínu. | Hver þraut skal hafa lágmark eitt aksturssvæði sem afmarkast af tveimur hliðum, ráslínu og marklínu. | ||
| 3.2.3.a | 3.2.3.a | ||
| Hlið afmarkar þrautina inn í aksturssvæði. | Hlið afmarkar þrautina inn í aksturssvæði. | ||
| 3.2.3.b | 3.2.3.b | ||
| Hliðin afmarka hvert aksturssvæði. | Hliðin afmarka hvert akstursvæði. | ||
| 3.2.3.c | 3.2.3.c | ||
| Lágmarksfjöldi hliða í þrauti eru 4. | Lágmarksfjöldi hliða í þrauti eru 4. | ||
| 3.2.4 | 3.2.4 | ||
| Öll hlið skulu vera að minnsta kosti 4 metra breið. | Öll hlið skulu vera að minnsta kosti 4 metra breið. | ||
| 3.2.5 | 3.2.5 | ||
| Það eru til tvær tegundir af hliðum: | Það eru til tvær tegundir af hliðum: | ||
| 3.2.5.a | 3.2.5.a | ||
| A hlið - sé framhjól við það að fara út úr þraut, en snertir samt hlið, skal ökumaður fá hámarksrefsingu; | A hlið - sé framhjól við það að fara út úr þraut, en snertir samt hlið, skal ökumaður fá hámarksrefsingu; | ||
| 3.2.5.b | 3.2.5.b | ||
| B hlið - skulu vera bæði framhjól inni í hliði, annað þarf að vera hreint og hitt má snerta hlið. | B hlið - skulu vera bæði framhjól inni í hliði, annað þarf að vera hreint og hitt má snerta hlið. | ||
| 3.2.6 | 3.2.6 | ||
| Þrautir skulu vera skýrt merktar með þrautarhliðum sem mega vera annað hvort: | Þrautir skulu vera skýrt merktar með þrautarhliðum sem mega vera annað hvort: | ||
| 3.2.6.a | 3.2.6.a | ||
| hvít eða gul stika vinstra megin; | hvít eða gul vinstra megin; | ||
| 3.2.6.b | 3.2.6.b | ||
| svört eða rauð stika hægra megin. | svört eða rauð hægra megin. | ||
| 3.2.7 | 3.2.7 | ||
| Ef allir flokkar keyra sömu þraut eða hluta af þraut skal nota annan hvorn litinn af hliðum. | Ef allir flokkar keyra sömu þraut eða hluta af þraut skal nota annan hvorn litinn af hliðum. | ||
| 3.2.8 | 3.2.8 | ||
| Stikur skulu vera að minnsta kosti 40 cm á hæð og 10 cm breiðar. | Stikur skulu vera að minnsta kosti 40 cm á hæð og 10 cm breiðar. | ||
| 3.2.9 | 3.2.9 | ||
| Stikum í þrautarhliðum skal vera þannig komið fyrir að þær geti ekki skapað hættu fyrir keppendur, starfsmenn eða áhorfendur. | Stikum í þrautarhliðum skal vera þannig komið fyrir að þær geti ekki skapað hættu fyrir keppendur, starfsmenn eða áhorfendur. | ||
| 3.2.9.a | 3.2.9.a | ||
| Liggi tvær eða fleiri þrautir nálægt hvor annarri skal sú þraut sem er í notkun vera merkt sérstaklega til að fyrirbyggja misskilning. | Liggi tvær eða fleiri þrautir nálægt hvor annarri skal sú þraut sem er í notkun vera merkt sérstaklega til að fyrirbyggja misskilning. | ||
| 3.2.10 | 3.2.10 | ||
| Keppnisstjórn skal afhenda ökumönnum mynd eða teikningu af þrautum á keppendafundi. | Keppnisstjórn skal afhenda ökumönnum mynd eða teikningu af þrautum á keppendafundi. | ||
| 3.2.10.a | 3.2.10.a | ||
| Hún skal sýna akstursstefnu þrauta og skulu hlið þeirra vera skilmerkilega merkt ásamt stigasvæðum. | Hún skal sýna akstursstefnu þrauta og skulu hlið þeirra vera skilmerkilega merkt ásamt stigasvæðum og 350 stiga viðmiðunarlínu. | ||
| 3.2.11 | 3.2.11 | ||
| Keppnishaldari getur notað borða eða stikur til að afmarka þrautir. Slík afmörkun þarf að koma fram á teikningu þrautarinnar og skal við það miðað að hún sé ekki nær hliði en 2 metra, talið þvert á akstursstefnu. | Keppnishaldari getur notað borða eða stikur til að afmarka þrautir. Slík afmörkun þarf að koma fram á teikningu þrautarinnar og skal við það miðað að hún sé ekki nær hliði en 2 metra, talið þvert á akstursstefnu. | ||
| GREIN 3.3 PITTURINN | GREIN 3.3 PITTURINN | ||
| 3.3.1 | 3.3.1 | ||
| Afmarka skal svæði fyrir pitt þar sem ökutæki skulu vera þegar unnið er við þau. | Afmarka skal svæði fyrir pitt þar sem ökutæki skulu vera þegar unnið er við þau. | ||
| 3.3.2 | 3.3.2 | ||
| Pittsvæðið skal vera vel merkt og staðsett þannig að frá því sé auðvelt að komast að og frá þrautum. | Pittsvæðið skal vera vel merkt og staðsett þannig að frá því sé auðvelt að komast að og frá þrautum. | ||
| 3.3.3 | 3.3.3 | ||
| Pittur skal vera það stór að þar sé pláss fyrir öll ökutæki, alla keppendur, ökumenn, þjónustuliða, þrautarstarfsmenn, gesti o.s.frv. | Pittur skal vera það stór að þar sé pláss fyrir öll ökutæki, alla keppendur, ökumenn, þjónustuliða, þrautarstarfsmenn, gesti o.s.frv. | ||
| 3.3.3.a | 3.3.3.a | ||
| Þegar aðstæður krefjast þess er keppnishaldara heimilt að skipta pittsvæðinu upp og skal þess þá getið í sérreglum. | Þegar aðstæður krefjast þess er keppnishaldara heimilt að skipta pittsvæðinu upp og skal þess þá getið í sérreglum. | ||
| 3.3.4 | 3.3.4 | ||
| Innan pittsins skal afmarka einn reit fyrir hvert ökutæki og þjónustulið þess sem það hefur til afnota. | Innan pittsins skal afmarka einn reit fyrir hvert ökutæki og þjónustulið þess sem það hefur til afnota. | ||
| 3.3.4.a | 3.3.4.a | ||
| Ökumaður skal aka beint í og úr sínu afmarkaða svæði í pittinum og forðast að koma í svæði annarra ökutækja en síns eigin. | Ökumaður skal aka beint í og úr sínu afmarkaða svæði í pittinum og forðast að koma í svæði annarra ökutækja en síns eigin. | ||
| 3.3.5 | 3.3.5 | ||
| Spól er stranglega bannað á pittsvæði. | Spól er stranglega bannað á pittsvæði. | ||
| 3.3.7 | 3.3.7 | ||
| Á pittsvæði skal aka með fyllstu gát. | Á pittsvæði skal aka með fyllstu gát. | ||
| 3.3.8 | 3.3.8 | ||
| Á pittsvæði skulu staðsett að minnsta kosti tvö slökkvitæki með froðu, að lágmarki 6 kg og skal aðgengi að þeim óhindrað og staðsetning þeirra vel merkt. | Á pittsvæði skulu staðsett að minnsta kosti tvö slökkvitæki með froðu, að lágmarki 6 kg og skal aðgengi að þeim óhindrað og staðsetning þeirra vel merkt. | ||
| 3.3.9 | 3.3.9 | ||
| Öll ökutæki skulu hafa dúk undir sér meðan á viðgerð stendur. | Öll ökutæki skulu hafa dúk undir sér meðan á viðgerð stendur. | ||
| 3.3.9.a | 3.3.9.a | ||
| Hann þarf að vera að minnsta kosti 520 g/m2 að þykkt og skal ná yfir allt svæði ökutækisins. | Hann þarf að vera að minnsta kosti 520 g/m2 að þykkt og skal ná yfir allt svæði ökutækisins. | ||
| 3.3.10 | 3.3.10 | ||
| Keppendur skulu hafa slökkvitæki á pittsvæði sínu að lágmarki 2 kg. | Keppendur skulu hafa slökkvitæki á pittsvæði sínu að lágmarki 2 kg. | ||
| GREIN 3.4 REYNSLUAKSTURSSVÆÐI | GREIN 3.4 REYNSLUAKSTURSSVÆÐI | ||
| 3.4.1 | 3.4.1 | ||
| Á keppnisstað skal vera reynsluaksturssvæði sem er að lágmarki 25 metra langt. | Á keppnisstað skal vera reynsluaksturssvæði sem er að lágmarki 25 metra langt. | ||
| 3.4.2 | 3.4.2 | ||
| Ökutæki má ekki aka á reynsluaksturssvæði fyrr en að lokinni skoðun þess. | Ökutæki má ekki aka á reynsluaksturssvæði fyrr en að lokinni skoðun þess. | ||
| 3.4.3 | 3.4.3 | ||
| Ökumenn eða liðsstjórar geta einungis prófað ökutæki á reynsluaksturssvæði. | Ökumenn eða liðsstjórar geta einungis prófað ökutæki á reynsluaksturssvæði. | ||
| 3.4.4 | 3.4.4 | ||
| Á reynsluaksturssvæðinu skal vera einstefna. | Á reynsluaksturssvæðinu skal vera einstefna. | ||
| 3.4.5 | 3.4.5 | ||
| Reynsluaksturssvæði opnar í síðasta lagi einni klukkustund fyrir ræsingu fyrsta keppanda í fyrstu þraut og lokar þegar síðasta ökutæki hefur ekið síðustu þraut keppninnar. | Reynsluaksturssvæði opnar í síðasta lagi einni klukkustund fyrir ræsingu fyrsta keppanda í fyrstu þraut og lokar þegar síðasta ökutæki hefur ekið síðustu þraut keppninnar. | ||
| GREIN 3.5 SKOÐUN | GREIN 3.5 SKOÐUN | ||
| 3.5.1 | 3.5.1 | ||
| Keppandi skal tryggja að hann eða fulltrúi hans sé við ökutæki meðan skoðun fer fram. | Keppandi skal tryggja að hann eða fulltrúi hans sé við ökutæki meðan skoðun fer fram. | ||
| 3.5.2 | 3.5.2 | ||
| Öll ökutæki skulu standast skoðun til að fá rásleyfi. | Öll ökutæki skulu standast skoðun til að fá rásleyfi. | ||
| 3.5.3 | 3.5.3 | ||
| Skylt er að prófa bremsur ökutækis. Öll hjól skulu læsast. | Skylt er að prófa bremsur ökutækis. Öll hjól skulu læsast. | ||
| 3.5.3.a | 3.5.3.a | ||
| Keppandi skal sýna fram á að ökutækið standist enn þetta próf áður en það leggur í þraut. | Keppandi skal sýna fram á að ökutækið standist enn þetta próf áður en það leggur í þraut. | ||
| GREIN 4 KEPPNISFYRIRKOMULAG | GREIN 4 KEPPNISFYRIRKOMULAG | ||
| GREIN 4.1 RÁSRÖÐ | GREIN 4.1 RÁSRÖÐ | ||
| 4.1.1 | 4.1.1 | ||
| Keppnishaldari dregur í rásröð og skal birta hana á upplýsingatöflu keppninnar, eigi síðar en á keppendafundi. Ekki skal draga í rásröð fyrr en brautir hafa verið lagðar. | Keppnishaldari dregur í rásröð og skal birta hana á upplýsingatöflu keppninnar, eigi síðar en á keppendafundi. Ekki skal draga í rásröð fyrr en brautir hafa verið lagðar. | ||
| 4.1.2 | 4.1.2 | ||
| Eftir hverja þraut skulu fyrstu ökumenn færðir afturfyrir í rásröð. | Eftir hverja þraut skulu fyrstu ökumenn færðir afturfyrir í rásröð. | ||
| 4.1.2.a | 4.1.2.a | ||
| Fjöldi ökumanna sem færður er afturfyrir í hvert skipti skal reiknaður með fjölda keppenda deilt með fjölda þrauta. | Fjöldi ökumanna sem færður er afturfyrir í hvert skipti skal reiknaður með fjölda keppenda deilt með fjölda þrauta. | ||
| 4.1.2.b | 4.1.2.b | ||
| Þegar fjöldi ökumanna er færri en fjöldi þrauta skal aðeins einn ökumaður færast afturfyrir í rásröð. | Þegar fjöldi ökumanna er færri en fjöldi þrauta skal aðeins einn ökumaður færast afturfyrir í rásröð. | ||
| 4.1.3 | 4.1.3 | ||
| Ökumaður skal mæta á ráslínu innan einnar mínútu eftir að honum hefur verið gefið merki um að mæta. | Ökumaður skal mæta á ráslínu innan einnar mínútu eftir að honum hefur verið gefið merki um að mæta. | ||
| 4.1.3.a | 4.1.3.a | ||
| Hverri tilraun til aksturs í þraut telst lokið fari ökumaðurekki af stað innan einnar mínútu frá rásmerki. | Hverri tilraun til aksturs í þraut telst lokið fari ökumaðurekki af stað innan einnar mínútu frá rásmerki. | ||
| 4.1.3.b | 4.1.3.b | ||
| Keppnishaldara er heimilt að leyfa ökumönnum að færast aftast í rásröð þrautar sé ökutæki þeirra í viðgerð þegar kemur að ræsingu þeirra. | Keppnishaldara er heimilt að leyfa ökumönnum að færast aftast í rásröð þrautar sé ökutæki þeirra í viðgerð þegar kemur að ræsingu þeirra. | ||
| 4.1.3.b.i | 4.1.3.b.i | ||
| Á keppendafundi skal tilkynna keppendum hvort þessi heimild gildi eða ekki í keppninni. | Á keppendafundi skal tilkynna keppendum hvort þessi heimild gildi eða ekki í keppninni. | ||
| 4.1.3.b.ii | 4.1.3.b.ii | ||
| Ökumaður eða liðsstjóri skulu tilkynna keppnisstjóra fyrir ræsingu hyggist þeir nýta sér heimildina. | Ökumaður eða liðsstjóri skulu tilkynna keppnisstjóra fyrir ræsingu hyggist þeir nýta sér heimildina. | ||
| 4.1.3.b.iii | 4.1.3.b.iii | ||
| Hverjum ökumanni er aðeins heimilt að nýta sér þetta einu sinni í hverri keppni. | Hverjum ökumanni er aðeins heimilt að nýta sér þetta einu sinni í hverri keppni. | ||
| 4.1.3.b.iv | 4.1.3.b.iv | ||
| Sé beðið um að fara afturfyrir en það ekki nýtt telst þetta eina tækifæri samt fullnýtt. | Sé beðið um að fara afturfyrir en það ekki nýtt telst þetta eina tækifæri samt fullnýtt. | ||
| 4.1.3.b.v | 4.1.3.b.v | ||
| Ökumaður fær aðeins 50% af stigum sem hann vinnur sér inn í þraut sem þessi heimild er nýtt fyrir. | Ökumaður fær aðeins 50% af stigum sem hann vinnur sér inn í þraut sem þessi heimild er nýtt fyrir. | ||
| 4.1.4 | 4.1.4 | ||
| Aki ökumaður ekki strax af stað þegar hann hefur verið ræstur fyrirgerir hann rétti sínum til að aka þrautina og fær engin stig fyrir hana. | Aki ökumaður ekki strax af stað þegar hann hefur verið ræstur fyrirgerir hann rétti sínum til að aka þrautina og fær engin stig fyrir hana. | ||
| 4.1.5 | 4.1.5 | ||
| Keppendur sem hætta keppni skulu umsvifalaust tilkynna það til keppnisstjórnar. | Keppendur sem hætta keppni skulu umsvifalaust tilkynna það til keppnisstjórnar. | ||
| 4.1.6 | 4.1.6 | ||
| Sé ökumaður flaggaður út fyrir mistök hefur ökumaður rétt á að vera ræstur aftur í viðkomandi þraut. Ökumaður fer ekki afturfyrir og á ekki rétt á að fara í pitt áður en hann er ræstur aftur | Sé ökumaður flaggaður út fyrir mistök hefur ökumaður rétt á að vera ræstur aftur í viðkomandi þraut. Ökumaður fer ekki afturfyrir og á ekki rétt á að fara í pitt áður en hann er ræstur aftur | ||
| GREIN 4.2 STIGASVÆÐI OG STIG | GREIN 4.2 STIGASVÆÐI OG STIG | ||
| 4.2.1 | 4.2.1 | ||
| Hverri þraut er skipt niður í 5 stigasvæði sem markast af hliðum: | Hverri þraut er skipt niður í 5 stigasvæði sem markast af hliðum: | ||
| 4.2.1.a | 4.2.1.a | ||
| 0 til 100 stig; | 0 til 100 stig; | ||
| 4.2.1.b | 4.2.1.b | ||
| 100 til 200 stig; | 100 til 200 stig; | ||
| 4.2.1.c | 4.2.1.c | ||
| 200 til 250 stig; | 200 til 250 stig; | ||
| 4.2.1.d | 4.2.1.d | ||
| 250 til 300 stig; | 250 til 300 stig; | ||
| 4.2.1.e | 4.2.1.e | ||
| 300 til 350 stig. | 300 til 350 stig. | ||
| 4.2.2 | 4.2.2 | ||
| 250 stiga hlið skal vera merkt að hámarki 3 metrum fyrir 300 stiga hlið. | 250 stiga viðmiðunarlína skal vera merkt að hámarki 3 metrum fyrir marklínu (300). | ||
| 4.2.3 | 4.2.3 | ||
| 350 stiga hlið (endahlið) skal staðsett þannig að hægt sé að ræsa næsta ökutæki í þrautina án þess að hætta skapist. | 350 stiga viðmiðunarlína skal vera bíllengd framyfir marklínu. | ||
| 4.2.3.a | |||
| Endahlið skal staðsett eins nálægt 300 stiga hliði og hægt er, en þó ekki nær en 10 metra. | |||
| 4.2.3.b | |||
| Ökutæki þarf allt að vera komið í gegnum endahlið til að teljast hafa náð því. | |||
| 4.2.3.c | |||
| Engin refsing er gefin þó keyrt sé yfir stikur í endahliði. | |||
| 4.2.3.d | |||
| Ekki er gefin refsing milli 300 og 350 stiga hliða. | |||
| 4.2.4 | 4.2.4 | ||
| Dómarar geta ákveðið að gefa stig með 10 stiga millibili í fyrstu þremur stigasvæðum, en seinni svæðum er ekki skipt upp. Dæmi: ökumaður getur fengið 240 stig en ekki 260 stig fyrir lengd. | Dómarar geta ákveðið að gefa stig með 10 stiga millibili í fyrstu þremur stigasvæðum, en seinni svæðum er ekki skipt upp. Dæmi: ökumaður getur fengið 240 stig en ekki 260 stig fyrir lengd. | ||
| 4.2.4.a | 4.2.4.a | ||
| Til að gefa 250 stig verður að minnsta kosti eitt framhjól að vera inni í marklínu (300 stiga hliði). | Til að gefa 250 stig verður að minnsta kosti eitt framhjól að vera inni í marklínu (300 stiga hliði). | ||
| 4.2.5 | 4.2.5 | ||
| Fyrir refsilausan akstur í þraut eru gefin 350 stig. | Fyrir refsilausan akstur í þraut eru gefin 350 stig. | ||
| 4.2.5.a | 4.2.5.a | ||
| Að auki geta fengist aukastig kveði sérreglur á um slíkt. | Að auki geta fengist aukastig kveði sérreglur á um slíkt. | ||
| 4.2.6 | 4.2.6 | ||
| Hverju stigasvæði telst lokið þegar miðjur beggja afturhjóla hafa farið yfir viðmiðunarlínu. | Hverju stigasvæði telst lokið þegar miðjur beggja afturhjóla hafa farið yfir viðmiðunarlínu. | ||
| 4.2.7 | 4.2.7 | ||
| Aka verður í gegnum öll hlið í réttri akstursstefnu. | Aka verður í gegnum öll hlið í réttri akstursstefnu. | ||
| 4.2.7.a | 4.2.7.a | ||
| Aðeins má aka einu sinni í gegnum hvert hlið. | Aðeins má aka einu sinni í gegnum hvert hlið. | ||
| 4.2.8 | 4.2.8 | ||
| Ökumanni er einungis heimilt að bakka einu sinni í hverju stigasvæði á milli hliða (sjá reglu 3.2.3.b). | Ökumanni er einungis heimilt að bakka einu sinni í hverju stigasvæði á milli hliða (sjá reglu 3.2.3.b). | ||
| GREIN 4.3 STIGAREFSINGAR | GREIN 4.3 STIGAREFSINGAR | ||
| 4.3.1 | 4.3.1 | ||
| Stoppað í þraut og haldið áfram -10 stig. | Stoppað í þraut og haldið áfram -10 stig. | ||
| 4.3.1.a | 4.3.1.a | ||
| Ekki er dæmd refsing ef stöðvað er í 2 sekúndur eða skemur. | Ekki er dæmd refsing ef stöðvað er í 2 sekúndur eða skemur. | ||
| 4.3.2 | 4.3.2 | ||
| Eitt dekk utan við eða snertir stiku þrautarhliðs -20 stig. | Þrautarhlið snert með einu dekki -20 stig. | ||
| 4.3.3 | 4.3.3 | ||
| Tvö dekk utan við eða snerta stiku þrautarhliðs -40 stig. | Þrautarhlið snert með tveimur dekkjum -40 stig. | ||
| 4.3.4 | 4.3.4 | ||
| Þrjú dekk utan við eða snerta stiku þrautarhliðs -80 stig. | Þrautarhlið snert með þremur dekkjum -80 stig. | ||
| 4.3.5 | 4.3.5 | ||
| Bakkað (gildir þegar keppandi heldur akstri áfram) -40 stig. | Bakkað (gildir þegar keppandi heldur akstri áfram) -40 stig. | ||
| 4.3.6 | 4.3.6 | ||
| Snertir afmörkunarborða eða -stiku -40 stig. | |||
| 4.3.7 | |||
| Tvö dekk út fyrir afmörkunarborða eða -stiku -80 stig. | |||
| 4.3.8 | |||
| Eyðilegging á þraut að óþörfu -50 stig. | Eyðilegging á þraut að óþörfu -50 stig. | ||
| 4.3.9 | 4.3.7 | ||
| Hámarksrefsing fyrir eitt hlið er -80 stig. | Hámarksrefsing fyrir eitt hlið er -80 stig. | ||
| 4.3.10 | 4.3.8 | ||
| Refsing í 300 stiga hliði er 50% minni en venjuleg refsing. | Refsing í 300 stiga hliði er 50% minni en venjuleg refsing. | ||
| 4.3.11 | 4.3.9 | ||
| Fari ökutæki ekki í gegnum neitt þrautarhlið þá fæst hvorki stig né refsing. | Fari ökutæki ekki í gegnum neitt þrautarhlið þá fæst hvorki stig né refsing. | ||
| 4.3.12 | 4.3.10 | ||
| Lágmarks stig fyrir hverja þraut er 0 stig. | Lágmarks stig fyrir hverja þraut er 0 stig. | ||
| GREIN 4.4 AUKASTIG FYRIR ÞRAUT | GREIN 4.4 AUKASTIG FYRIR ÞRAUT | ||
| 4.4.1 | 4.4.1 | ||
| Í sérreglum keppni er heimilt að skilgreina eina þraut, en þó ekki tímaþraut, sem gefur aukastig. | Í sérreglum keppni er heimilt að skilgreina eina þraut, en þó ekki tímaþraut, sem gefur aukastig. | ||
| 4.4.2 | 4.4.2 | ||
| Í þraut með aukastigum er mældur tími frá ráslínu að marklínu. | Í þraut með aukastigum er mældur tími frá ráslínu að marklínu. | ||
| 4.4.2.a | 4.4.2.a | ||
| Besti tími gefur 50 stig, annar besti tími 25 stig, þriðji besti tími 10 stig. Aðrir fá ekki stig. | Besti tími gefur 50 stig, annar besti tími 25 stig, þriðji besti tími 10 stig. Aðrir fá ekki stig. | ||
| 4.4.3 | 4.4.3 | ||
| Tíminn er mældur eins og í tímaþraut en ræst er úr kyrrstöðu. | Tíminn er mældur eins og í tímaþraut en ræst er úr kyrrstöðu. | ||
| 4.4.4 | 4.4.4 | ||
| Tímataka hefst um leið og rásmerki er gefið. | Tímataka hefst um leið og rásmerki er gefið. | ||
| GREIN 4.5 TÍMAÞRAUT | GREIN 4.5 TÍMAÞRAUT | ||
| 4.5.1 | 4.5.1 | ||
| Tímaþraut ætti að vera fær öllum ökutækjum; að því tilskyldu að þau séu í lagi. | Tímaþraut ætti að vera fær öllum ökutækjum; að því tilskyldu að þau séu í lagi. | ||
| 4.5.2 | 4.5.2 | ||
| Þrautarhlið í tímaþraut skulu vera númeruð og vel sjáanleg. | Þrautarhlið í tímaþraut skulu vera númeruð og vel sjáanleg. | ||
| 4.5.3 | 4.5.3 | ||
| Tímamæling í tímaþraut: | Tímamæling í tímaþraut: | ||
| 4.5.3.a | 4.5.3.a | ||
| hefst þegar ökutæki fer yfir ráslínu (ræsing á ferð); | hefst þegar ökutæki fer yfir ráslínu (ræsing á ferð); | ||
| 4.5.3.b | 4.5.3.b | ||
| lýkur þegar ökutæki fer yfir marklínu. | lýkur þegar ökutæki fer yfir marklínu. | ||
| 4.5.4 | 4.5.4 | ||
| Notast skal við sjálfvirkan tímatökubúnað við tímamælingu. | Notast skal við sjálfvirkan tímatökubúnað við tímamælingu. | ||
| 4.5.4.a | 4.5.4.a | ||
| Sé því ekki komið við skal nota þrjár skeiðklukkur og skal miðtími þeirra notaður. | Sé því ekki komið við skal nota þrjár skeiðklukkur og skal miðtími þeirra notaður. | ||
| 4.5.4.b | 4.5.4.b | ||
| Sé því heldur ekki komið við skal nota tvær skeiðklukkur og nota meðaltalstíma þeirra. | Sé því heldur ekki komið við skal nota tvær skeiðklukkur og nota meðaltalstíma þeirra. | ||
| 4.5.5 | 4.5.5 | ||
| Ökumaður sem nær bestum tíma í tímaþraut fær 350 stig. | Ökumaður sem nær bestum tíma í tímaþraut fær 350 stig. | ||
| 4.5.5.a | 4.5.5.a | ||
| Stig annara ökumanna reiknast frá besta tíma en dregið er frá 1 stig fyrir hvern tíunda hluta sekúndu lakari tíma. | Stig annara ökumanna reiknast frá besta tíma en dregið er frá 1 stig fyrir hvern tíunda hluta sekúndu lakari tíma. | ||
| 4.5.6 | 4.5.6 | ||
| Lágmarksstig fyrir að ljúka tímaþraut eru 150 stig. | Lágmarksstig fyrir að ljúka tímaþraut eru 150 stig. | ||
| 4.5.7 | 4.5.7 | ||
| Tímaþraut er skipt niður í fjögur stigasvæði. | Tímaþraut er skipt niður í fjögur stigasvæði. | ||
| 4.5.7.a | 4.5.7.a | ||
| Nái ökumaður ekki að ljúka tímaþraut fær hann 25 stig fyrir hvert stigasvæði sem hann byrjar á. | Nái ökumaður ekki að ljúka tímaþraut fær hann 25 stig fyrir hvert stigasvæði sem hann byrjar á. | ||
| 4.5.8 | 4.5.8 | ||
| Hámarkstími í tímaþraut er 3 mínútur. | Hámarkstími í tímaþraut er 3 mínútur. | ||
| 4.5.8.a | 4.5.8.a | ||
| Nái ökumaður ekki að ljúka tímaþraut innan hámarkstíma fær hann 25 stig fyrir hvert stigasvæði sem hann byrjar á. | Nái ökumaður ekki að ljúka tímaþraut innan hámarkstíma fær hann 25 stig fyrir hvert stigasvæði sem hann byrjar á. | ||
| 4.5.9 | 4.5.9 | ||
| Aka skal í gegnum öll þrautarhlið tímaþrautar í réttri röð og akstursstefnu. | Aka skal í gegnum öll þrautarhlið tímaþrautar í réttri röð og akstursstefnu. | ||
| 4.5.10 | 4.5.10 | ||
| Refsing fyrir hvert snert þrautarhlið í tímaþraut er 10 stig. | Refsing fyrir hvert snert þrautarhlið í tímaþraut er 10 stig. | ||
| 4.5.11 | 4.5.11 | ||
| Að lágmarki eitt hjól ökutækis þarf að fara í gegnum hvert þrautarhlið svo því teljist lokið. | Að lágmarki eitt hjól ökutækis þarf að fara í gegnum hvert þrautarhlið svo því teljist lokið. | ||
| 4.5.12 | 4.5.12 | ||
| Ökumaður má bakka og snúa við án refsingar. | Ökumaður má bakka og snúa við án refsingar. | ||
| GREIN 4.6 STIGAGJÖF | GREIN 4.6 STIGAGJÖF | ||
| 4.6.1 | 4.6.1 | ||
| Staðreyndadómarar hætta að gefa stig þegar: | Staðreyndadómarar hætta að gefa stig þegar: | ||
| 4.6.1.a | 4.6.1.a | ||
| ökumaður fer af stað í þraut áður en rásmerki hefur verið gefið (þjófstart); | ökumaður fer af stað í þraut áður en rásmerki hefur verið gefið (þjófstart); | ||
| 4.6.1.b | 4.6.1.b | ||
| veltibúr snertir jörð; | veltibúr snertir jörð; | ||
| 4.6.1.c | 4.6.1.c | ||
| ökumaður fer rangt í þrautarhlið; | ökumaður fer rangt í þrautarhlið; | ||
| 4.6.1.d | 4.6.1.d | ||
| ökumaður fer rangt í B hlið (sjá reglu 3.2.5.b); | ökumaður fer rangt í B hlið (Sjá reglu 3.2.5.b.); | ||
| 4.6.1.e | 4.6.1.e | ||
| ökumaður bakkar oftar en einu sinni innan stigasvæðis; | ökumaður bakkar oftar en einu sinni innan akstursvæðis; | ||
| 4.6.1.f | 4.6.1.f | ||
| ökumaður bakkar lengra en að næstu hliðlínu (framdekk mega ekki fara út úr stigasvæðinu); | ökumaður bakkar lengra en bíllengd; | ||
| 4.6.1.g | 4.6.1.g | ||
| ökumaður fer með þrjú dekk eða fleiri út fyrir afmörkunarborða eða -stiku; | ökumaður fylgir ekki réttri akstursstefnu; | ||
| 4.6.1.h | 4.6.1.h | ||
| ökumaður fylgir ekki réttri akstursstefnu; | ökumaður festir ökutæki eða stöðvar í meira en eina mínútu; | ||
| 4.6.1.i | 4.6.1.i | ||
| ökumaður festir ökutæki eða stöðvar í meira en eina mínútu; | ökumaður losar hjálm eða öryggisbelti; | ||
| 4.6.1.j | 4.6.1.j | ||
| ökumaður losar hjálm eða öryggisbelti; | |||
| 4.6.1.k | |||
| ökumaður gefur merki um að hann sé hættur. | ökumaður gefur merki um að hann sé hættur. | ||
| GREIN 4.7 ÚRSLIT KEPPNI | GREIN 4.7 ÚRSLIT KEPPNI | ||
| 4.7.1 | 4.7.1 | ||
| Sigurvegari í hverjum flokki er sá sem hefur flest stig að loknum öllum þrautum. | Sigurvegari í hverjum flokki er sá sem hefur flest stig að loknum öllum þrautum. | ||
| 4.7.2 | 4.7.2 | ||
| Úrslit hverrar þrautar skulu vera aðgengileg að henni lokinni á upplýsingatöflu keppninnar. | Úrslit hverrar þrautar skulu vera aðgengileg að henni lokinni á upplýsingatöflu keppninnar. | ||
| 4.7.3 | 4.7.3 | ||
| Ljúki tveir eða fleiri ökumenn keppni jafnir að stigum vinnur sá sem unnið hefur hinn í fleiri þrautum í keppninni. | Ljúki tveir eða fleiri ökumenn keppni jafnir að stigum vinnur sá sem unnið hefur hinn í fleiri þrautum í keppninni. | ||
| 4.7.3.a | 4.7.3.a | ||
| Sé enn jafnt vinnur sá ökumaður sem fékk flest stig í síðustu þraut. | Sé enn jafnt vinnur sá ökumaður sem fékk flest stig í síðustu þraut. | ||
| 4.7.3.b | 4.7.3.b | ||
| Sé enn jafnt vinnur sá ökumaður sem fékk flest stig í næstsíðustu þraut og svo framvegis. | Sé enn jafnt vinnur sá ökumaður sem fékk flest stig í næstsíðustu þraut og svo framvegis. | ||
| GREIN 4.8 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA | GREIN 4.8 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA | ||
| 4.8.1 | 4.8.1 | ||
| Sá ökumaður sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari. | Sá ökumaður sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari. | ||
| 4.8.2 | 4.8.2 | ||
| Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu: | Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu: | ||
| 1. sæti : 20 stig | 1. sæti : 20 stig | ||
| 2. sæti : 17 stig | 2. sæti : 17 stig | ||
| 3. sæti : 15 stig | 3. sæti : 15 stig | ||
| 4. sæti : 12 stig | 4. sæti : 12 stig | ||
| 5. sæti : 10 stig | 5. sæti : 10 stig | ||
| 6. sæti : 8 stig | 6. sæti : 8 stig | ||
| 7. sæti : 6 stig | 7. sæti : 6 stig | ||
| 8. sæti : 4 stig | 8. sæti : 4 stig | ||
| 9. sæti : 2 stig | 9. sæti : 2 stig | ||
| 10. sæti : 1 stig | 10. sæti : 1 stig | ||
| 4.8.3 | 4.8.3 | ||
| Ef tveir eða fleiri ökumenn eru með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem var ofar í þeirra síðustu innbyrðis keppni. | Ef tveir eða fleiri ökumenn eru með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem var ofar í þeirra síðustu innbyrðis keppni. | ||
| GREIN 4.9 VERÐLAUN | GREIN 4.9 VERÐLAUN | ||
| 4.9.1 | 4.9.1 | ||
| Veita skal verðlaun fyrir að lágmarki þrjú fyrstu sæti í lokaúrslitum keppninnar. | Veita skal verðlaun fyrir að lágmarki þrjú fyrstu sæti í lokaúrslitum keppninnar. | ||
| GREIN 5 ÖRYGGISMÁL | GREIN 5 ÖRYGGISMÁL | ||
| GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNA | GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNA | ||
| 5.1.1 | 5.1.1 | ||
| Um útbúnað og öryggismál ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur - Tæknilegar reglur og Torfærureglur Götubílar - Tæknilegar reglur. | Um útbúnað og öryggismál ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur - Tæknilegar reglur og Torfærureglur Götubílar - Tæknilegar reglur. | ||
| GREIN 5.2 ÞRAUTAVERÐIR | GREIN 5.2 ÞRAUTAVERÐIR | ||
| 5.2.1 | 5.2.1 | ||
| Þrautaverðir skulu staðsettir við ráslínu og marklínu. | Þrautaverðir skulu staðsettir við ráslínu og marklínu. | ||
| 5.2.2 | 5.2.2 | ||
| Þrautaverðir við ráslínu og marklínu skulu hafa hjá sér: | Þrautaverðir við ráslínu og marklínu skulu hafa hjá sér: | ||
| 5.2.2.a | 5.2.2.a | ||
| duftslökkvitæki, lágmark 6 kg. | duftslökkvitæki, lágmark 6 kg. | ||
| 5.2.3 | 5.2.3 | ||
| Þrautarvörður við ráslínu skal hafa hjá sér: | Þrautarvörður við ráslínu skal hafa hjá sér: | ||
| 5.2.3.a | 5.2.3.a | ||
| kolsýruslökkvitæki. | kolsýruslökkvitæki. | ||
| 5.2.4 | 5.2.4 | ||
| Þrautaverðir skulu hafa aðgang að öflugum klippum og hníf til að skera á belti. | Þrautaverðir skulu hafa aðgang að öflugum klippum og hníf til að skera á belti. | ||
| GREIN 5.3 ÖRYGGISBÚNAÐUR VIÐ ÞRAUTINA | GREIN 5.3 ÖRYGGISBÚNAÐUR VIÐ ÞRAUTINA | ||
| 5.3.1 | 5.3.1 | ||
| Að minnsta kosti ein sjúkra-/björgunarbifreið ásamt áhöfn skal vera viðstödd alla keppnina. | Að minnsta kosti ein sjúkra-/björgunarbifreið ásamt áhöfn skal vera viðstödd alla keppnina. | ||
| 5.3.2 | 5.3.2 | ||
| Að minnsta kosti tvö mönnuð tæki með búnaði til hífa og lyfta ökutæki skulu vera til staðar og tiltæk alla keppnina. | Að minnsta kosti tvö mönnuð tæki með búnaði til hífa og lyfta ökutæki skulu vera til staðar og tiltæk alla keppnina. | ||
| 5.3.3 | 5.3.3 | ||
| Gæta skal vel að því að fjarlægð áhorfenda frá þrautum sé nægileg til að þeim stafi engin hætta af akstri ökutækja. | Gæta skal vel að því að fjarlægð áhorfenda frá þrautum sé nægileg til að þeim stafi engin hætta af akstri ökutækja. | ||
| 5.3.4 | 5.3.4 | ||
| Marklína tímaþrautar skal aldrei vera í stefnu að áhorfendum. | Marklína tímaþrautar skal aldrei vera í stefnu að áhorfendum. | ||
| GREIN 5.4 FLÖGG OG MERKJAGJÖF | GREIN 5.4 FLÖGG OG MERKJAGJÖF | ||
| 5.4.1 | 5.4.1 | ||
| Notast skal við þrjár gerðir af flöggum fyrir merkjagjöf til ökumanna: rautt, grænt og rásflagg. | Notast skal við þrjár gerðir af flöggum fyrir merkjagjöf til ökumanna: rautt, grænt og rásflagg. | ||
| 5.4.2 | 5.4.2 | ||
| Rautt flagg er notað til að sýna að þraut sé lokuð og til þess að sýna ökumanni að hann sé flaggaður út úr þraut. | Rautt flagg er notað til að sýna að þraut sé lokuð og til þess að sýna ökumanni að hann sé flaggaður út úr þraut. | ||
| 5.4.2.a | 5.4.2.a | ||
| Rautt flagg skal einnig notað til þess að sýna ökumanni ef hætta er á ferð. | Rautt flagg skal einnig notað til þess að sýna ökumanni ef hætta er á ferð. | ||
| 5.4.3 | 5.4.3 | ||
| Grænt flagg er notað til að sýna að þraut sé tilbúin til aksturs og er sett niður um leið og ökutæki leggur af stað í þraut. | Grænt flagg er notað til að sýna að þraut sé tilbúin til aksturs og er sett niður um leið og ökutæki leggur af stað í þraut. | ||
| 5.4.4 | 5.4.4 | ||
| Rásflagg er notað til þess að ræsa ökutæki af stað í hverja þraut. | Rásflagg er notað til þess að ræsa ökutæki af stað í hverja þraut. | ||
| 5.4.4.a | 5.4.4.a | ||
| Einnig er heimilt að nota ljósbúnað til þess að ræsa í þraut. | Einnig er heimilt að nota ljósbúnað til þess að ræsa í þraut. | ||
| GREIN 6 KEPPNISFLOKKAR | GREIN 6 KEPPNISFLOKKAR | ||
| GREIN 6.1 REGLUR SEM GILDA FYRIR ALLA FLOKKA | GREIN 6.1 REGLUR SEM GILDA FYRIR ALLA FLOKKA | ||
| 6.1.1 | 6.1.1 | ||
| Keppnisstjórn er heimilt að færa ökumenn um flokk fram að ræsingu fyrstu ferðar. | Keppnisstjórn er heimilt að færa ökumenn um flokk fram að ræsingu fyrstu ferðar. | ||
| GREIN 6.2 SÉRÚTBÚNIR BÍLAR | GREIN 6.2 SÉRÚTBÚNIR BÍLAR | ||
| 6.2.1 | 6.2.1 | ||
| Sérútbúnir bílar | |||
| 6.2.2 | |||
| Um útbúnað, flokkun og öryggismál ökutækja og ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur - Tæknilegar reglur. | Um útbúnað, flokkun og öryggismál ökutækja og ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur - Tæknilegar reglur. | ||
| GREIN 6.3 SÉRÚTBÚNIR GÖTUBÍLAR | GREIN 6.3 SÉRÚTBÚNIR GÖTUBÍLAR | ||
| 6.3.1 | 6.3.1 | ||
| Sérútbúnir götubílar | |||
| 6.3.2 | |||
| Um útbúnað, flokkun og öryggismál ökutækja og ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur - Tæknilegar reglur. | Um útbúnað, flokkun og öryggismál ökutækja og ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur - Tæknilegar reglur. | ||
| GREIN 6.4 GÖTUBÍLAR | GREIN 6.4 GÖTUBÍLAR | ||
| 6.4.1 | 6.4.1 | ||
| Götubílar. | |||
| 6.4.2 | |||
| Um útbúnað, flokkun og öryggismál ökutækja og ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur Götubílar - Tæknilegar reglur. | Um útbúnað, flokkun og öryggismál ökutækja og ökumanna gilda reglurnar Torfærureglur Götubílar - Tæknilegar reglur. | ||
| GREIN 7 MERKINGAR | GREIN 7 MERKINGAR | ||
| GREIN 7.1 KEPPNISNÚMER | GREIN 7.1 KEPPNISNÚMER | ||
| 7.1.1 | 7.1.1 | ||
| Keppnisnúmer ökutækis skulu vera: | Keppnisnúmer ökutækis skulu vera: | ||
| 7.1.1.a | 7.1.1.a | ||
| svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla; | svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla; | ||
| 7.1.1.b | 7.1.1.b | ||
| svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla; | svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla; | ||
| 7.1.1.c | 7.1.1.c | ||
| svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla: | svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla: | ||
| 7.1.1.d | 7.1.1.d | ||
| 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka. | 35 cm á hæð og 25 cm á breidd fyrir alla flokka. | ||
| 7.1.2 | 7.1.2 | ||
| Keppandi skal merkja ökutæki með vel sýnilegu keppnisnúmeri á báðum hliðum þess fyrir skoðun. | Keppandi skal merkja ökutæki með vel sýnilegu keppnisnúmeri á báðum hliðum þess fyrir skoðun. | ||
| GREIN 7.2 AÐRAR MERKINGAR | GREIN 7.2 AÐRAR MERKINGAR | ||
| 7.2.1 | 7.2.1 | ||
| Keppnishaldara er heimilt að selja auglýsingar á ökutæki og skal hún komast fyrir á rásnúmeri sbr. gr. 7.1.1.d. | Keppnishaldara er heimilt að selja auglýsingar á ökutæki og skal hún komast fyrir á rásnúmeri sbr. gr. 7.1.1.d. | ||
| 7.2.1.a | 7.2.1.a | ||
| Hyggist hann nýta sér heimildina skal þess getið í sérreglum. | Hyggist hann nýta sér heimildina skal þess getið í sérreglum. | ||
| 7.2.1.b | 7.2.1.b | ||
| Keppnishaldara er heimilt að sleppa keppanda við að merkja ökutæki með auglýsingu hans gegn greiðslu gjalds sem keppnishaldari ákveður og skal þá vera auglýst í sérreglum. | Keppnishaldara er heimilt að sleppa keppanda við að merkja ökutæki með auglýsingu hans gegn greiðslu gjalds sem keppnishaldari ákveður og skal þá vera auglýst í sérreglum. | ||
| 7.2.1.b.i | 7.2.1.b.i | ||
| Slíkt gjald má að hámarki vera kr. 20.000 fyrir hvert ökutæki. | Slíkt gjald má að hámarki vera kr. 20.000 fyrir hvert ökutæki. | ||