Reglur > Samanburður
Samanburður á
Reglur fyrir fjölmiðlafólk í aksturskeppnum
(útgáfudagur 1.1.2017)
og
Rally flokkur Proto 2025
(útgáfudagur 12.11.2024)
GREIN 1 SKILGREININGAR | 1 | ||
Almennt | |||
1.1 | 1.1 | ||
Reglur Motorsport Ireland (Proto Car Technical Requirements 2021.pdf) gilda að svo miklu leyti sem við á. | Keppnishaldari ákveður hverjir það eru sem fá aðgang að keppni sem myndatöku- og fjölmiðlafólk. Skrá skal viðkomandi sérstaklega inn í gögn keppninnar. | ||
1.1.a | 1.2 | ||
Þær er að finna [hér](https://www.motorsportireland.com/s/Proto-Car-Technical-Requirements-2021.pdf) | Gengið skal úr skugga um að þeir sem eru við myndatöku, eða er leyft að fara um lokuð keppnissvæði, séu klæddir í áberandi öryggisvesti. | ||
1.3 | |||
Fari myndatöku- og fjölmiðlafólk ekki eftir leiðbeiningum starfsfólks getur það átt von á því að verða vísað burt af keppnissvæðinu. | |||
2 | |||
Leyfi til myndbirtingar | |||
2.1 | |||
Umsóknarferli | |||
2.1.1 | |||
Aðilar geta sótt um að fá leyfi til myndbirtingar fyrir ákveðið keppnistímabil. Umsóknir eiga að vera sendar til stjórnar AKÍS. | |||
2.1.2 | |||
Umsókn skal gerð á umsóknareyðublaði á vef AKÍS og verður að uppfylla kröfur sem fram koma á því eyðublaði. Þar er tekið fram hvort um er að ræða ljósmyndir eða myndbönd ásamt því hvar efnið er birt. | |||
2.1.3 | |||
AKÍS getur beðið umsækjendur að leggja fram frekari upplýsingar en þær sem eru í umsókn. | |||
2.1.4 | |||
AKÍS er heimilt að ákveða gjald fyrir útgáfu leyfa til myndbirtingar og verða umsóknir um leyfi til myndbirtingar ekki veittar fyrr en gjaldið er að fullu greitt. | |||
2.1.5 | |||
AKÍS hefur einhliða rétt til að samþykkja, hafna, afturkalla eða breyta leyfi til myndbirtingar að hluta eða öllu leyti. | |||
2.1.6 | |||
Aðilar fá sérstakt skírteini til að bera á viðburðum ásamt sérmerktu vesti. Tryggingargjald greiðist fyrir vestið og ber að skila vestinu í lok keppnistímabils gegn endurgreiðslu tryggingargjalds. | |||
2.2 | |||
Gildistími og framsal | |||
2.2.1 | |||
Samþykkt umsókn gildir út það keppnistímabilið er hún var samþykkt á. | |||
2.2.2 | |||
Samþykkt umsókn er ekki framseljanleg til þriðja aðila og verða handhafar leyfis til myndbirtingar að tryggja að leyfi þeirra sé ekki notað af öðrum aðilum. | |||
2.3 | |||
Stig leyfa til myndbirtingar | |||
2.3.1 | |||
AKÍS gefur út leyfi til myndbirtingar í tveimur mismunandi stigum. | |||
2.3.1.a | |||
Leyfið er ætlað aðilum með reynslu og að verk þeirra hafi verið birt. Einnig er þetta ætlað atvinnumönnum sem birta efni reglulega í fjölmiðlum sem fjalla um akstur og | |||
akstursíþróttir. | |||
2.3.1.b | |||
Leyfið er ætlað byrjendum í myndatöku akstursíþrótta og er ólíklegt til að gefa aðgang að stærri viðburðum akstursíþrótta. Það er ætlað til notkunar hjá félögum og | |||
er gott fyrsta skref til að öðlast reynslu í faginu. | |||
2.3.2 | |||
Aðilar með leyfi til myndbirtingar fá ekki sjálfkrafa aðgang á viðburð. Aðgangur og leyfi til myndatöku er ávallt ákvörðun keppnisstjórnar. Hins vegar geta þeir sem hafa hærra stig viðurkenningar almennt búist við að vera heimill aðgangur að fleiri viðburðum. | |||
2.4 | |||
Afturköllun leyfis | |||
2.4.1 | |||
AKÍS getur afturkallað eða breytt leyfi til myndbirtingar hvenær sem er vegna brota á ákvæðum þessara reglna eða annarra gefnum út af AKÍS. | |||
2.5 | |||
Sýning leyfis | |||
2.5.1 | |||
Þegar aðilar með leyfi til myndbirtingar eru að taka upp skulu þeir bera gilt skírteini með sýnilegum hætti og vera í vestinu sem AKÍS úthlutaði. | |||
2.6 | |||
Hættur og bótaréttur | |||
2.6.1 | |||
Hvort sem aðili er með leyfi AKÍS til myndbirtingar eða fær leyfi keppnishaldara til myndatöku skal hann ætíð: | |||
2.6.1.a | |||
hafa kynnt sér lög og reglur AKÍS er varðar keppnishald og samþykkir að fara eftir þeim | |||
2.6.1.b | |||
muna að hann er á eigin ábyrgð | |||
2.6.1.c | |||
gera sér grein fyrir að akstursíþróttir eru hættulegar | |||
2.6.1.d | |||
fara eftir öllum tilmælum frá starfsfólki keppninnar að viðlagðri fyrirvaralausri brottvísun af keppnissvæðinu | |||
2.6.1.e | |||
halda AKÍS, keppnishaldara, keppnisstjóra, landeiganda eða starfsmönnum keppninnar skaðlausum vegna hugsanlegs tjóns sem hann kann að verða fyrir | |||
2.6.1.f | |||
afsala sér öllum hugsanlegum bóta- og/eða kröfurétti á hendur AKÍS, keppnishaldara, starfsmönnum keppninnar, keppendum eða landeiganda vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni hvort heldur sem um er að ræða eigna- eða líkamstjón og hvernig sem því er valdið | |||
2.6.1.g | |||
virða friðhelgi einstaklinga sem lenda í slysum eða öðrum atvikum, hvort heldur er í eða utan keppni. Forðist að birta myndir af slysum eða öðrum viðkvæmum atvikum. | |||
2.7 | |||
Hættusvæði | |||
2.7.1 | |||
Hvort sem aðili er með leyfi AKÍS til myndbirtingar eða fær leyfi keppnishaldara til myndatöku skal hann ætíð: | |||
2.7.1.a | |||
fylgja reglum og reglugerðum í tengslum við viðburð og: | |||
2.7.1.a.i | |||
semja við keppnishaldara tímanlega til að ræða aðgengi ásamt því að mæta á kynningarfundi viðburðar | |||
2.7.1.a.ii | |||
einungis vera þar sem heimilt er og ekki á bannsvæði | |||
2.7.1.a.iii | |||
uppfylla allar reglur og reglugerðir AKÍS og keppnisstjórnar ásamt leiðbeiningum gefnum af starfsmönnum keppninnar | |||
2.7.1.a.iv | |||
haga sér í samræmi við öll skilti, hindranir og önnur leiðarmerki sem sýna hvar á og á ekki að vera | |||
2.7.1.b | |||
vera ljóst að keppnistæki í keppni getur: | |||
2.7.1.b.i | |||
skotið frá sér grjóti eða rusli | |||
2.7.1.b.ii | |||
tekið óvænta stefnu og ekki fylgt nákvæmlega merktri eða ætlaðri leið | |||
2.7.1.b.iii | |||
rekist á og losað hindranir eða aðra hluti í kringum það | |||
2.7.1.c | |||
vera meðvitaðir um eigið öryggi og: | |||
2.7.1.c.i | |||
standa frekar en að leggjast eða setjast niður | |||
2.7.1.c.ii | |||
standa þar sem auðvelt er að færa sig ef óhapp verður og forðast að standa framan varnargarða, ræsi, veggi og þess háttar | |||
2.7.1.c.iii | |||
vera í öryggisvesti því sem AKÍS úthlutaði | |||
2.7.1.c.iv | |||
að vera utan öryggissvæðis keppnisbrauta (enska: run-off area, safety zone). Ef það er ekki hægt, að vera á bakvið hlut sem er líklegur til að stöðva keppnistækið | |||
2.7.1.c.v | |||
aldrei stíga inn á brautina eða annars staðar þar sem keppnistæki er á ferðinni | |||
2.7.1.c.vi | |||
ekki standa á svæðum þar sem keppnistæki getur eða eru líkleg til að geta farið út úr braut, það er hemlunarsvæði, utanverðar beygjur og þess háttar | |||
2.7.1.c.vii | |||
ekki valda öðrum hættu | |||
2.7.1.c.viii | |||
að hindra ekki sýn á merki og önnur atriði sem hafa verið sett til að tryggja öryggi viðburðarins | |||
2.7.1.d | |||
gera sér grein fyrir því að sjónsviðið er takmarkað þegar myndavél eða önnur tæki eru notuð og tryggja að: | |||
2.7.1.d.i | |||
vera vakandi | |||
2.7.1.d.ii | |||
vera meðvitaður um umhverfi sitt og takmörkunum á sjónsviði og heyrn | |||
2.7.1.d.iii | |||
þeir hafa skýra sjónlínu til keppnistækja og þeirrar hættu sem skapast getur | |||
2.7.1.e | |||
vera kurteis og sýna nærstöddum tillitssemi og virðingu | |||
2.8 | |||
Leyfi til myndbirtingar | |||
2.8.1 | |||
Aðilar með leyfi til myndbirtingar geta fengið aðgang að svæðum sem yfirleitt eru ekki í boði fyrir almenning. Eins og áður hefur komið fram tryggir leyfi til myndbirtingar þó ekki aðgang að viðburði þar sem keppnisstjórn hefur heimild til að ákvarða aðgengi. | |||
2.9 | |||
Samþykki | |||
2.9.1 | |||
Aðilar með leyfi til myndbirtingar gera sér grein fyrir því að ávallt er krafist upplýsts samþykkis. Það er því á ábyrgð þessara aðila að tryggja fullt samþykki frá öllum aðilum (og hugsanlega forráðamanni ef einstaklingur er undir 18 ára aldri) áður en efnið er birt opinberlega. | |||
2.9.2 | |||
Aðilar með leyfi til myndbirtingar ættu að huga vandlega að efni sem dreifa á í atvinnuskyni svo það sé ekki: | |||
2.9.2.a | |||
óeðlilegt eða uppáþrengjandi | |||
2.9.2.b | |||
ósæmilegt | |||
2.9.2.c | |||
ærumeiðandi | |||