Reglur > Samanburður
Samanburður á
Keppnisgreinarreglur fyrir hermikappakstur 2023
(útgáfudagur 13.11.2022)
og
Keppnisgreinarreglur fyrir hermikappakstur 2026
(útgáfudagur 14.11.2025)
| GREIN 1 ALMENNT | GREIN 1 ALMENNT | ||
| GREIN 1.1 GILDISSVIÐ | GREIN 1.1 GILDISSVIÐ | ||
| 1.1.1 | 1.1.1 | ||
| Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í hermikappakstri. | Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í hermikappakstri. | ||
| 1.1.1.a | 1.1.1.a | ||
| Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum. | Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum. | ||
| 1.1.2 | 1.1.2 | ||
| Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni. | Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni. | ||
| 1.1.3 | 1.1.3 | ||
| Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA. | Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA. | ||
| GREIN 2 SKRÁNING | GREIN 2 SKRÁNING | ||
| GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN | GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN | ||
| 2.1.1 | 2.1.1 | ||
| Keppendum er heimilt að skrá sig einu sinni í hverja keppni. | Keppendur skrá sig einu sinni í allar keppnir íslandsmóts á hverju keppnistímabili. | ||
| 2.1.2 | 2.1.2 | ||
| Skráður ökumaður verður sjálfur að stýra sínum bíl í keppni. | Skráður ökumaður skal sjálfur aka ökutæki sínu í keppni. | ||
| 2.1.3 | 2.1.3 | ||
| Fyrstu 40 keppendur til að skrá sig og greiða á síðu AKÍS fá þátttökurétt. | Fyrstu 30 keppendur til að skrá sig og greiða á síðu AKÍS fá þátttökurétt. | ||
| 2.1.4 | 2.1.4 | ||
| Sá má keppa sem verður að minnsta kosti 15 ára á árinu sem keppnin er haldin. | Sá má keppa sem verður að minnsta kosti 12 ára á árinu sem keppnin er haldin. | ||
| GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG | GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG | ||
| GREIN 3.1 ALMENNT | GREIN 3.1 ALMENNT | ||
| 3.1.1 | 3.1.1 | ||
| Ræst er á ferð með fylgdarbíl og stillingum iRacing. | Ræst er úr kyrrstöðu með stillingum iRacing. | ||
| 3.1.2 | 3.1.2 | ||
| Komi upp sú staða að iRacing þjónn krefjist ræsingar frá stoppi mun keppnistjórn taka yfir ræsingu. keyrður verður upphitunarhringur með öryggisbíl eknum af keppnisstjórn og svo ræst á ferð samkvæmt tilmælum Keppnisstjórnar í gegnum hljóðrás iRacing. | Komi upp sú staða að iRacing þjónn krefjist ræsingar á ferð skal það gilda. | ||
| 3.1.2.a | 3.1.2.a | ||
| Þegar ræst er án fylgdarbíls iRacing er keppendum ætlað að aka upphitunarhring á eftir öryggisbíl keppnisstjórnar að ráslínu í réttri röð og ekki hraðar en 120kmh, öryggisbíll mun aka inní pit að loknum upphitunarhring og ræsing fer fram þegar fremsti bíll fer yfir Ráslínu Eða þegar keppnisstjórn kallar “ræs ræs ræs” á hljóðrás iRacing. | Þegar ræst er á ferð er ökumanni ætlað að aka upphitunarhring á eftir öryggisbíl að ráslínu í réttri röð og ekki hraðar en ökutækið fyrir framan. Öryggisbíll mun aka í pitt að loknum upphitunarhring og ræsing fer fram þegar fremsta ökutæki fer yfir ráslínu. | ||
| 3.1.2.b | 3.1.2.b | ||
| Sé þörf á að tala við keppendur gerir keppnisstjóri það í gegnum hljóðrásir iRacing ef tæknilegar ástæður innan iRacing forritsins krefjast ekki endurræsingar. | Sé þörf á að tala við ökumenn gerir keppnisstjóri það í gegnum hljóðrásir iRacing ef tæknilegar ástæður innan iRacing forritsins krefjast ekki endurræsingar. | ||
| 3.1.3 | 3.1.3 | ||
| Skylt er að virkja hljóðrásir í iRacing svo keppnisstjóri geti gefið fyrirmæli ef þörf er á. | Skylt er að virkja hljóðrásir í iRacing svo stjórnendur geti gefið fyrirmæli ef þörf er á. | ||
| 3.1.4 | 3.1.4 | ||
| Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum. | Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum. | ||
| 3.1.4.a | 3.1.4.a | ||
| Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að marktækur hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé ekki við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu. | Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að marktækur hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé ekki við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu. | ||
| 3.1.4.b | 3.1.4.b | ||
| Til að taka af allan vafa, nemi framendi ökutækis sem reynir að komast framúr við afturdekk fremra ökutækisins telst það vera marktækur hluti. | Til að taka af allan vafa, nemi framhjól ökutækis sem reynir að komast framúr við afturhjól fremra ökutækisins telst það vera marktækur hluti. | ||
| 3.1.4.c | 3.1.4.c | ||
| Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur. | Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd, í miðri beygju, fyrir framan þann sem reynir framúrakstur. | ||
| 3.1.5 | 3.1.5 | ||
| Ætli ökumenn sér að nota EXIT VEHICLE möguleikan í æfingu eða tímatöku, verða þeir að gera það utan brautar eða augljósrar aksturslínu. | Ætli ökumenn sér að nota EXIT VEHICLE möguleikan í æfingu eða tímatöku, verða þeir að gera það utan brautar eða augljósrar aksturslínu. | ||
| 3.1.6 | 3.1.6 | ||
| Æfing á ræsingu eða önnur svipuð aksturshegðun er einungis leyfð á meðan æfingu stendur, og má aðeins framkvæma á lengsta beina kafla og úr aksturslínu. | Æfing á ræsingu eða önnur svipuð aksturshegðun er einungis leyfð á meðan æfingu stendur, og má aðeins framkvæma á lengsta beina kafla og úr aksturslínu. | ||
| 3.1.7 | 3.1.7 | ||
| Í lok aksturs ber ökumönnum að forðast árekstra og aka sem fyrst inn í pit. | Í lok hverrar aksturslotu ber ökumönnum að forðast árekstra og aka inn í pitt. | ||
| 3.1.7.a | 3.1.7.a | ||
| Fagnaðar spól er leyfilegt en velja skal stað sem er ekki á miðri braut eða gæti valdið árekstri. | Fagnaðar spól er leyfilegt en velja skal stað sem er ekki á miðri braut eða gæti valdið árekstri. | ||
| 3.1.8 | 3.1.8 | ||
| Verði meiriháttar árekstur við upphaf keppni hefur keppnisstjóri möguleika á að kalla út öryggisbíl til að hægja niður keppni þar til ökumenn sem atvik hafði áhrif á hafa látið laga skemmdir bílanna og eru komnir aftast í röðina. | Verði meiriháttar árekstur við upphaf eða miðbik keppni hefur keppnisstjóri möguleika á að kalla út öryggisbíl til að hægja niður keppni þar til ökumenn sem atvik hafði áhrif á hafa látið laga skemmdir ökutækjanna og eru komnir aftast í röðina. | ||
| 3.1.9 | 3.1.9 | ||
| Sé öryggisbíll sendur út fá þeir ökumenn sem lentu í atviki að fara aftast í röðina sem er á eftir öryggisbíl í þeirri röð sem þeir koma úr pittinum. Öryggisbíll er í sumum tilfellum ekinn af keppnisstjórn og mun þá Keppnistjórn nota Hljóðkerfi iRacing til að gefa skipanir | Ökumenn sem aka úr pitti eftir viðgerðir þegar öryggisbíll er í braut fara aftast í röðina á eftir öryggisbílnum, í þeirri röð sem þeir koma úr pittinum. | ||
| 3.1.9.a | 3.1.9.a | ||
| Þegar ökumenn koma úr pitti undir þessum kringumstæðum er þeim gert kleift að taka fram úr öryggisbíl til þess að ná stöðu sinni aftast í röð. Svokallað “WAVEBY” er notað. | Keppnisstjóri hefur heimild undir þessum kringumstæðum til að nota svokallaða “WAVEBY” reglu til þess að gera öllum hringuðum ökumönnum kleift að af-hringa sig og ná stöðu sinni aftast í röð. | ||
| 3.1.9.b | 3.1.9.b | ||
| Ökumönnum ber að fylgjast vel með skipunum sem iRacing gefur á meðan öryggisbíll er í braut. | Ökumönnum ber að fylgjast vel með skipunum sem iRacing gefur á meðan öryggisbíll er í braut. | ||
| GREIN 3.2 KEPPNISUMHVERFI | GREIN 3.2 KEPPNISUMHVERFI | ||
| 3.2.1 | 3.2.1 | ||
| Keppt er í iRacing tölvuleiknum. | Keppt er í iRacing ökuherminum. | ||
| 3.2.2 | 3.2.2 | ||
| Keppendur þurfa að vera í áskrift hjá iRacing og eiga þær brautir og bíl sem notuð eru í mótaröðinni. | Keppendur þurfa að vera í áskrift hjá iRacing og eiga þær brautir og ökutæki sem notuð eru í mótaröðinni. | ||
| 3.2.3 | 3.2.3 | ||
| Keppendur hafa kost á að keppa með eigin búnaði, láns eða leigubúnaði, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. | Keppendur hafa kost á að keppa með eigin búnaði, láns eða leigubúnaði, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. | ||
| 3.2.3.a | 3.2.3.a | ||
| Keppendum er heimilt að vera staðsettir hvar sem þeim hentar. | Keppendum er heimilt að vera staðsettir hvar sem þeim hentar. | ||
| 3.2.3.b | 3.2.3.b | ||
| Keppendur verða nota stýri sem stjórntæki eða álíka búnað, ekki er heimilt að nota stýripinna. | Keppendur skulu nota stýri sem stjórntæki eða álíka búnað, ekki er heimilt að nota stýripinna. | ||
| 3.2.4 | 3.2.4 | ||
| Keppendur verða að nota iRacing aðgang með því nafni sem þeir eru skráðir undir til keppni. | Keppendur skulu nota iRacing aðgang með því nafni sem þeir eru skráðir undir til keppni. | ||
| 3.2.5 | 3.2.5 | ||
| Keppendur verða vera skráðir í GT Akademíu deildina/League(Deild #4302) í iRacing þar sem hún er notuð til að halda utan um Íslandsmótið innan iRacing hugbúnaðarins. | Keppendur skulu vera skráðir í GT Akademíu deildina/League(Deild #4302) í iRacing þar sem hún er notuð til að halda utan um Íslandsmótið innan iRacing ökuhermisins. | ||
| 3.2.6 | 3.2.6 | ||
| Aðstoðar tækni ekki leyfð. Td, sjálfvirk kúpling, sjálfvirk gírskipting. | Aðstoðar tækni ekki leyfð. Td, ökulínur, sjálfvirk kúpling, sjálfvirk gírskipting. | ||
| 3.2.6.a | 3.2.6.a | ||
| “Anti-stall” og “Autostart” verður leyft, svo keppendur þurfa ekki að ræsa bílana sína sjálfir. | “Anti-stall” og “Autostart” er leyft svo ökumaður þarf ekki að ræsa ökutæki sítt sjálfur. | ||
| 3.2.7 | 3.2.7 | ||
| Skemmdir á bílum eru hafðar á raunverulegustu stillingu. | Skemmdir á ökutækjum eru hafðar á raunverulegustu stillingu. | ||
| 3.2.8 | 3.2.8 | ||
| Ætli ökumenn að virkja hraða takmarkara (e. pit limiter) þurfa þeir að gera það sjálfir áður en ekið er inn á pittsvæðið. | Ætli ökumenn að virkja hraðatakmarkara (e. pit limiter) þurfa þeir að gera það sjálfir áður en ekið er inn í pitt. | ||
| GREIN 3.3 TÆKNILEGT UMHVERFI | GREIN 3.3 TÆKNILEGT UMHVERFI | ||
| 3.3.1 | 3.3.1 | ||
| iRacing forritið mun að mestu leyti sjá um tæknilega keppnisstjórn og úthlutar refsingum fyrir útafakstur, þjófstart, árekstra og svo framvegis sem teljast gildir staðreyndadómar. | iRacing forritið mun að mestu leyti sjá um tæknilega keppnisstjórn og refsar fyrir útafakstur, þjófstart, árekstra og fleira. Þetta munu teljast gildir staðreyndadómar. | ||
| 3.3.2 | 3.3.2 | ||
| Komi upp sú staða í keppni að allir ökumenn missi samband við netþjón iRacing er keppnistjóra heimilt að ljúka keppni ef 67% hennar hafa þegar verið eknir. Að öðrum kosti skal endurræsa keppnina með 15 mínútna keppnistíma eftir á klukkunni. | Komi upp sú staða í keppni að allir ökumenn missi samband við netþjón iRacing er keppnistjóra heimilt að ljúka keppni ef 67% keppninnar hefur þegar verið ekin. Að öðrum kosti skal endurræsa keppnina með 15 mínútna keppnistíma eftir á klukkunni. | ||
| GREIN 3.4 REFSINGAR | GREIN 3.4 REFSINGAR | ||
| 3.4.1 | 3.4.1 | ||
| Atvikastig/Incident points (sem iRacing forritið dæmir á ökumenn): | Atvikastig/Incident points (sem iRacing forritið dæmir á ökumenn): | ||
| 3.4.1.a | 3.4.1.a | ||
| Létt snerting við annan bílstjóra (e. Light contact with another driver) x 0 | Létt snerting við annað ökutæki (e. Light contact with another driver) x 0 | ||
| 3.4.1.b | 3.4.1.b | ||
| Dekk útaf braut (e. Wheels off the racing surface) x1 | Dekk útaf braut (e. Wheels off the racing surface) x1 | ||
| 3.4.1.c | 3.4.1.c | ||
| Missa stjórn (e. Loss of control) x2 | Missa stjórn (e. Loss of control) x2 | ||
| 3.4.1.d | 3.4.1.d | ||
| Snerting við hluti í braut (e. Contact with other object) x2 | Snerting við hluti í braut (e. Contact with other object) x2 | ||
| 3.4.1.e | 3.4.1.e | ||
| Mikil snerting við annan bílstjóra (e. Heavy contact with another driver) x4 | Mikil snerting við annað ökutæki (e. Heavy contact with another driver) x4 | ||
| 3.4.2 | 3.4.2 | ||
| Þegar ökumaður hefur fengið 25 atvikastig eða fleiri ber honum að stoppa í pitti. | Þegar ökumaður hefur fengið 15 atvikastig eða fleiri ber honum að stoppa í pitti. | ||
| 3.4.2.a | 3.4.2.a | ||
| Fyrir hver auka 10 stig eftir það er annað stopp í pitti. | Fyrir hver auka 7 stig eftir það er annað stopp í pitti. | ||
| 3.4.3 | 3.4.3 | ||
| Fyrir of hraðan akstur ökutækis inn í pittsvæði eða pittakrein má vísa keppanda úr keppni | Fyrir of hraðan akstur ökutækis inn í pitt eða pittakrein má vísa ökumanni úr keppni | ||
| 3.4.4 | 3.4.4 | ||
| Ströngustu reglur og viðurlög leiksins gilda í keppni og er refsingum beitt innan leiksins gerist ökumaður brotlegur (styttir sér leið, ekur utan vegar, ekur of hratt in á pittsvæði og svo framvegis). | Ströngustu reglur og viðurlög leiksins gilda í keppni og er refsingum beitt innan leiksins gerist ökumaður brotlegur (styttir sér leið, ekur utan vegar, ekur of hratt inn í pitt og svo framvegis). | ||
| GREIN 3.5 ÆFING/UPPHITUN | GREIN 3.5 ÆFING/UPPHITUN | ||
| 3.5.1 | 3.5.1 | ||
| Skráðir keppendur skulu skrá sig inn á keppnisþjón(server) á keppnisdegi í gegnum iRacing forritið áður en iRacing æfingarlotu(practice) lýkur svo þeir geti fengið aðgang að tímatökum. Ekki þarf að opna leikinn sjálfan, en að lágmarki þarf að ýta á “register” takkann áður en æfingalotu lýkur. | Skráðir keppendur skulu skrá sig inn á keppnisþjón (server) á keppnisdegi í gegnum iRacing forritið áður en iRacing æfingarlotu (practice) lýkur svo þeir geti fengið aðgang að tímatökum. Ekki þarf að opna leikinn sjálfan, en að lágmarki þarf að ýta á “register” takkann áður en æfingalotu lýkur. | ||
| 3.5.1.a | 3.5.1.a | ||
| Keppnisþjón er að finna í GT Akademíu Deildinni í iRacingUI. | Keppnisþjón er að finna í GT Akademíu Deildinni í iRacingUI. | ||
| 3.5.2.b | 3.5.2.b | ||
| Liðsstjóri eða aðstoðarmaður keppenda skal skrá sig inn með “Watch” takkanum. | Liðsstjóri eða aðstoðarmaður ökumanns skal skrá sig inn með “Watch” takkanum. | ||
| 3.5.2.c | 3.5.2.c | ||
| Aðeins einn aðstoðarmaður eða liðstjóri má tengjast keppnisþjón. | Aðeins einn aðstoðarmaður eða liðstjóri má tengjast keppnisþjóni. | ||
| 3.5.3 | 3.5.3 | ||
| Keppendafundur verður haldinn þegar 20 mínútur eru eftir af þessari æfingu/upphitun. | Keppendafundur verður haldinn þegar 20 mínútur eru eftir af þessari æfingu/upphitun. | ||
| GREIN 3.6 TÍMATAKA FYRIR RÁSPÓL | 3.5.3.a | ||
| Ökumönnum er óheimilt að aka á brautinni á meðan keppendafundi stendur. | |||
| GREIN 3.6 TÍMATAKA | |||
| 3.6.1 | 3.6.1 | ||
| Að loknum keppendafundi klárast æfing á keppnisþjóni og þá hefst Tímataka. | Að loknum keppendafundi klárast æfing á keppnisþjóni og þá hefst Tímataka. | ||
| 3.6.2 | 3.6.2 | ||
| Tímataka fyrir ráspól er opin í 30 mínútur og eru allir ökumenn saman á brautinni meðan á henni stendur. | Tímataka er opin í 15 mínútur og eru allir ökumenn saman á brautinni meðan á henni stendur. | ||
| 3.6.3 | 3.6.3 | ||
| Ökumaður sem er á úthring verður að víkja fyrir umferð. | Ökumaður sem er á úthring verður að víkja fyrir umferð. | ||
| 3.6.3.a | 3.6.3.a | ||
| Óheimilt er að tefja fyrir bíl á hröðum hring og ber ökumanni að víkja úr aksturslínu til að hleypa bíl á hröðum hring framúr. (“Ökumaður á hröðum hring” er ökumaður sem er að aka hraðar en þú þrátt fyrir að þú sért búinn að ljúka þínum úthring.) | Óheimilt er að tefja fyrir ökutæki á hröðum hring og ber ökumanni að víkja úr aksturslínu til að hleypa ökutæki á hraðari hring fram úr. | ||
| 3.6.3.a.i | |||
| "Ökutæki á hröðum hring" er ökutæki sem ekur hraðar en næsta fyrir framan þrátt fyrir að fremra ökutækið sé á tímatökuhring. | |||
| 3.6.3.b | 3.6.3.b | ||
| Ef hraðari bíll nær keppanda þarf sá keppandi að víkja fyrir hraðari bíl. | Ef hraðara ökutæki nær öðrum ökutæki þarf hægara ökutækið að víkja. | ||
| 3.6.3.c | |||
| Ökumaður skal hafa nægt pláss fyrir framan og aftan ökutæki sitt. | |||
| GREIN 3.7 KEPPNI | GREIN 3.7 KEPPNI | ||
| 3.7.1 | 3.7.1 | ||
| Að lokinni tímatöku fyrir ráspól hefst keppnislota. | Að lokinni tímatöku hefst keppnislota. | ||
| 3.7.1.a | 3.7.1.a | ||
| Raðað er upp í rásröð eftir niðurstöðum tímatöku, í réttri röð. | Raðað er upp í rásröð eftir niðurstöðum tímatöku, í réttri röð. | ||
| 3.7.2 | 3.7.2 | ||
| keppnislota er 60 mínútur. | Keppnislota er um 60 mínútur eða 180 km. | ||
| 3.7.3 | |||
| Gefin eru stig samkvæmt stigatöflu til Íslandsmeistara. | |||
| GREIN 6 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA | GREIN 4 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA | ||
| 6.1 | 4.1 | ||
| Sá keppandi sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr 5 efstu sætum hvers keppanda í keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari. | |||
| 6.2 | |||
| Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu: | Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu: | ||
| 1. sæti : 25 stig | 1. sæti : 35 stig | ||
| 2. sæti : 18 stig | 2. sæti : 28 stig | ||
| 3. sæti : 15 stig | 3. sæti : 25 stig | ||
| 4. sæti : 12 stig | 4. sæti : 22 stig | ||
| 5. sæti : 10 stig | 5. sæti : 20 stig | ||
| 6. sæti : 8 stig | 6. sæti : 18 stig | ||
| 7. sæti : 6 stig | 7. sæti : 16 stig | ||
| 8. sæti : 4 stig | 8. sæti : 14 stig | ||
| 9. sæti : 2 stig | 9. sæti : 12 stig | ||
| 10. sæti : 1 stig | 10. sæti : 11 stig | ||
| 11. sæti : 10 stig | |||
| 12. sæti : 9 stig | |||
| 13. sæti : 8 stig | |||
| 14. sæti : 7 stig | |||
| 15. sæti : 6 stig | |||
| 16. sæti : 5 stig | |||
| 17. sæti : 4 stig | |||
| 18. sæti : 3 stig | |||
| 19. sæti : 2 stig | |||
| 20. sæti : 1 stig | |||
| 6.3 | 4.2 | ||
| Að auki fást tvö stig fyrir hraðasta hring hverrar keppni. | Að auki fær ökumaður sem er með fæst atvikastig og ók 100% keppninnar eitt auka stig. | ||
| 6.4 | 4.2.1 | ||
| Að auki fær “Cleanest Driver” kurteisasti ökumaður keppninnar eitt auka stig. | Eigi þetta við um fleiri en einn ökumann fá þeir allir eitt stig. | ||
| 6.4.1 | 4.3 | ||
| séu tveir eða fleiri ökumenn með fæstu atvikastigin, fá allir þeir allir eitt stig. | Sá ökumaður sem hlýtur flest stig samanlagt í keppnisflokki til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari ökumanna. | ||
| 6.5 | 4.3.1 | ||
| Að auki fá allir ökumenn með tvö eða færri atvikstig eftir að hafa lokið keppni, eitt auka stig | Fimm stigahæstu keppnir ökumanns gilda. | ||
| 6.6 | 4.4 | ||
| Séu tveir eða fleiri með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem oftar hefur sigrað keppnir á tímabilinu. | Séu tveir eða fleiri með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem oftar hefur sigrað keppnir á tímabilinu. | ||
| 6.6.a | 4.4.1 | ||
| Sé staða enn jöfn skal telja fjölda 2. sætis og svo koll af kolli. | Sé staða enn jöfn skal telja fjölda 2. sætis og svo koll af kolli. | ||
| GREIN 7 KEPPNISFLOKKAR | GREIN 5 KEPPNISFLOKKAR | ||
| GREIN 7.1 GT3 | GREIN 5.1 Formula 4 | ||
| 7.1.1 | 5.1.1 | ||
| Allir ökumenn aka á bílum í GT3 flokk með stillingum úthlutuðum af keppnishaldara (e. fixed setup). | Allir ökumenn aka á FIA Formúlu 4 ökutækjum. | ||
| 7.1.2 | |||
| Listi leyfilegra bíla í GT3 flokki: | |||
| McLaren MP4-12C GT3 | |||
| Audi R8 LMS GT3 | |||
| BMW M4 GT3 | |||
| Lamborghini Huracán GT3 EVO | |||
| Porsche 911 GT3 R | |||
| Ferrari 488 GT3 Evo 2020 | |||
| Mercedes-AMG GT3 2020 | |||
| 7.1.3 | |||
| Keppnishaldara er frjálst að úthluta stillingum þegar honum hentar en þó ekki seinna en 4 klukkustundum fyrir keppni. | |||
| 7.1.4 | 5.1.2 | ||
| Setup/stillingar frá iRacing verða notaðar og einungis verður átt við bensínmagn. | Stillingar ökutækis eru frjálsar. | ||