Reglur > Samanburður
Samanburður á
Rally flokkur TO (jeppaflokkur) 2023
(útgáfudagur 30.12.2022)
og
Rally flokkur Proto 2023
(útgáfudagur 1.2.2023)
GREIN 1 SKILGREININGAR | GREIN 1 REGLUR FYRIR RALLY FLOKK TO (jeppaflokk) | ||
Taka gildi 1.1.2023. | |||
Gilda a.m.k. til 31.12.2025. | |||
GREIN 2 OPINN FLOKKUR - TO | |||
2.1 | |||
SKILGREININGAR | |||
2.1.1 | |||
Ökutæki þarf ekki að halda upprunalegu útliti í hvívetna, en þarf að standast almenna bifreiðaskoðun. | |||
2.1.1.a | |||
Breytingaskoðun er einnig leyfileg. | |||
2.1.2 | |||
Upphafleg grind eða styrktarvirki ökutækis skal notað. | |||
2.1.2.a | |||
„Space frame" burðarvirki er ekki leyft. (Ekki telst vera space frame þegar veltibúr er soðið á verksmiðjuframleidda grind). | |||
2.1.3 | |||
Heimilt er að færa og breyta hvalbak. | |||
2.1.4 | |||
Staðsetning vélar verður að vera þar sem hún er samkvæmt skráningu bifreiðar, það er að segja fram í eða aftur í. | |||
2.1.5 | |||
Hámarks slagrými vélar er 6.000 sm3. | |||
2.1.6 | |||
Hámarks afl vélar er 300 hestöfl. | |||
2.1.7 | |||
Ef vél ökutækis er með forþjöppu skal nota þrengingar samkvæmt reglum FIA. | |||
2.1.8 | |||
Ökutæki skal ekki vera þyngra en 3.000 kg. á ráslínu. | |||
2.1.9 | |||
Lágmarksþyngd ökutækis skal vera 1.500 kg án áhafnar. | |||
2.1.10 | |||
Ökutæki skal vera fjórhjóladrifið | |||
2.1.10.a | |||
Drifbúnaðurinn þarf að samanstanda af gírkassa/sjálfskiptingu, millikassa og drifsköftum tengdum millikassa og ganga fram og aftur úr millikassanum og tengjast þar með drifásum bifreiðarinnar. | |||
2.1.11 | |||
Hæð hjólbarða skal að hámarki vera 33", eða 10% meira en þvermál dekkja er bifreiðin kemur á. | |||
1.1 | 2.1.12 | ||
Reglur Motorsport Ireland gilda að svo miklu leyti sem við á. | Ökutækis skal uppfylla öryggiskröfur FIA til ökutækja í rally samkvæmt Reglubókinni, viðauka J grein 283, sem og aðrar viðeigandi greinar. | ||
1.1.a | 2.2 | ||
Þær er að finna [hér](https://motorsportireland.com/common/Uploaded%20files/Mi/Technical_Regulations/Proto%20Car%20Technical%20Requirements%202021.pdf). | TAKMARKANIR | ||
1.2 | 2.2.1 | ||
Þessar reglur gilda til 1. janúar 2024. | Allar breytingar á ökutækjum sem ekki eru leyfðar samkvæmt þessum reglum eru bannaðar. | ||
2.2.1.a | |||
Breytingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla öryggiskröfur FIA og kafla 5.2 í Keppnisgreinareglum fyrir rally eru leyfðar. | |||
2.2.1.b | |||
Koma má fyrir viðbótar mælum til að fylgjast með vél og drifrás. | |||
2.2.1.c | |||
Aftursæti má fjarlægja, svo og innréttingu. | |||
2.2.1.d | |||
Leyfilegt er að smíða innréttingu en hún skal vera án skarpra brúna og kanta. | |||
2.2.1.e | |||
Í framhurðum skulu vera hurðarspjöld. | |||
2.2.1.f | |||
Eldveggur verður að vera milli vélar og ökumanna. | |||
2.2.1.g | |||
Fjöðrun er frjáls, þar með talið afstaða, fjöldi og lengd stífa. | |||
2.2.1.h | |||
Demparar eru frjálsir. | |||
2.2.1.h.i | |||
Breytingar á fjöðrun, dempurum, bremsum og stýrisgangi skal standast sérskoðun fyrir breyttar bifreiðar. | |||
2.2.1.i | |||
Bremsur og bremsu efni er frjálst. | |||
2.2.1.j | |||
Stýrisgangur er frjáls, en tjakkstýri bannað. | |||
2.2.1.k | |||
Lofthreinsarar eru frjálsir og má vera án þeirra. Loftrás má aldrei draga loft innan úr ökumannsrými. | |||
2.2.1.l | |||
Hásingar eru frjálsar. | |||
2.2.1.l.i | |||
Drifhlutföll og driflæsingar eru frjálsar. | |||
2.2.1.m | |||
Gírkassi frjáls. | |||
2.2.1.n | |||
Millikassi frjáls. | |||
2.2.1.o | |||
Tryggilega festan auka varahjólbarða má vera með inni í eða utaná bifreiðinni. | |||
2.2.1.p | |||
Auka ljósbúnaði má koma fyrir í pörum. | |||
2.2.1.q | |||
Bæta má við undirvagnsvörn. | |||
2.2.1.r | |||
Heimilt er að setja tank inn í bílinn en þá skal hann vera í aðskildu rými frá ökumönnum. | |||
2.2.1.r.i | |||
Ef FIA viðurkennd bensínsella (e. fuel cell) er notuð þarf ekki aðskilið rými. | |||