Reglur > Samanburður
Samanburður á
Reglugerð um öryggisráð AKÍS
(útgáfudagur 20.3.2021)
og
Reglugerð um öryggisráð AKÍS
(útgáfudagur 26.3.2024)
GREIN 1 SKIPAN | GREIN 1 SKIPAN | ||
1.1 | 1.1 | ||
Öryggisráð skal skipa til að vera ráðgefandi um öryggismál í þeim greinum sem stundaðar eru innan AKÍS. | Öryggisráð er skipað af stjórn AKÍS í samræmi við 15. grein laga sambandsins. | ||
1.2 | 1.2 | ||
Stjórn AKÍS skipar formann og að lágmarki tvo aðra í ráðið og skal leitast við að velja einstaklinga sem sérfróðir eru | Þegar skipunartími öryggisráðsmanns er liðinn, eða segi einhver sig frá sæti í ráðinu, skipar stjórn AKÍS í laust sæti að nýju. | ||
um málefnið og hafa víðtæka þekkingu á mismunandi greinum akstursíþrótta. | |||
1.3 | |||
Stjórn AKÍS heldur lista yfir þá sem sitja í öryggisráði hverju sinni. | |||
1.4 | |||
Þegar skipunartími öryggisráðsmanns er liðinn skipar stjórn AKÍS í laust sæti að nýju. | |||
GREIN 2 HLUTVERK | GREIN 2 HLUTVERK | ||
2.1 | 2.1 | ||
Öryggisráði ber að: | Öryggisráði ber að: | ||
2.1.a | 2.1.a | ||
samræma eftir því sem við á öryggiskröfur sem gerðar eru í mismunandi greinum akstursíþrótta á Íslandi; | leitast við að safna þekkingu um öryggismál og koma henni á framfæri á vef AKÍS og öðrum heppilegum vettvangi eftir atvikum; | ||
2.1.b | 2.1.b | ||
hafa samráð við stjórn AKÍS, keppnisráð og keppnishaldara í störfum sínum; | huga jafnt að öryggismálum er varða keppendur, starfsfólk, áhorfendur, fjölmiðlafólk og almenning; | ||
2.1.c | 2.1.c | ||
huga jafnt að málum er varða keppendur, starfsfólk, áhorfendur, fjölmiðlafólk og almenning; | veita keppnisráðum ráðgjöf um öryggismál í þeim tilgangi að samræma, eftir því sem við á, öryggiskröfur sem gerðar eru í mismunandi greinum akstursíþrótta á Íslandi; | ||
2.1.d | 2.1.d | ||
leitast við að nýta þekkingu og reynslu sem aðgengileg er með alþjóðasamstarfi, svo sem hjá FIA og systursamtökum AKÍS í öðrum löndum; | leitast við að nýta þekkingu og reynslu sem aðgengileg er með alþjóðasamstarfi, svo sem hjá FIA og systursamtökum AKÍS í öðrum löndum; | ||
2.1.e | |||
sjá um fræðslu, þjálfun og viðurkenningu öryggisfulltrúa; | |||
2.1.f | 2.1.f | ||
sjá um fræðslu, þjálfun og viðurkenningu öryggisfulltrúa og sjá þeim fyrir nauðsynlegum stuðningi; | vera öryggisfulltrúum innan handar í störfum þeirra; | ||
2.1.g | 2.1.g | ||
leitast við að safna saman sem mestri þekkingu um öryggismál og koma henni á framfæri á vef AKÍS og öðrum heppilegum vettvangi eftir atvikum; | hafa samráð við stjórn AKÍS, keppnisráð og keppnishaldara í störfum sínum; | ||
2.1.h | 2.1.h | ||
tryggja að fundargerðir séu ritaðar gegnum fundargerðagátt á vefsíðu AKÍS. | tryggja að fundargerðir séu ritaðar gegnum fundargerðagátt á vefsíðu AKÍS. | ||
GREIN 3 SAMSKIPTI | GREIN 3 SAMSKIPTI | ||
3.1 | 3.1 | ||
AKÍS heldur lista yfir netföng þeirra sem sitja í öryggisráði hverju sinni. | Stjórn AKÍS heldur lista yfir nöfn og netföng þeirra sem sitja í öryggisráði hverju sinni. | ||
3.2 | 3.2 | ||
Samskipti AKÍS við öryggisráð eru með tölvupósti. | Samskipti AKÍS við öryggisráð eru með tölvupósti. | ||
3.3 | 3.3 | ||
Öryggisráð getur fengið aðgang að samskiptasvæði á samfélagsmiðli á vegum AKÍS ef það kýs að nýta sér þá leið til samskipta innan ráðsins. | Öryggisráð getur fengið aðgang að samskiptasvæði á samfélagsmiðli á vegum AKÍS ef það kýs að nýta sér þá leið til samskipta innan ráðsins. | ||
3.3.a | 3.3.a | ||
Við mannabreytingar í ráðinu er samskiptasvæðið endurnýjað nema allir aðilar þess óski eftir að það sé ekki gert. | Við mannabreytingar í ráðinu er samskiptasvæðið endurnýjað nema allir aðilar þess óski eftir að það sé ekki gert. | ||
3.4 | 3.4 | ||
AKÍS úthlutar öryggisráði netfang @akis.is sem allir geta notað til að koma erindum til ráðsins. | Tölvupóstfang öryggisráðs er oryggi@akis.is sem allir geta notað til að koma erindum til ráðsins. | ||